Birtingur - 01.01.1966, Blaðsíða 94
I
launuÖu þegnar velferSarríkisins. Og hver
hagnast ekki á að kaupa ódýrt vinnuafl eða
andlega raforku undir framleiðsluverði?
Spyrjið Swiss Aluminium.
Listafélag Menntaskólans
Þetta litla skólaféiag hefur í formannstíð Þor-
steins Helgasonar rækilega sannað, hve sigur-
sæll er góður vilji. Hvílík lifandi býsn mætti
ekki gera til að auðga líf þessa litla bæjar, ef
öll félög með fagrar stefnuskrár störfuðu af
annarri eins reisn og röggsemi.
Tæplega var búið að opna skóladyrnar í haust
fyrr en Listafélagið bauð Reykvíkingum að
skoða mikla Kjarvalssýningu, þar sem komnar
voru á veggi sjávarmyndir allt frá æskudögum
málarans — og fylgcli sýning á leikþætti eftir
hann eins og í kaupbæti.
Snemma hausts stóð kvikmyndafélag skólans
fullskapað. Er skemmst af að segja, að kvik-
myndaveizlur hafa ekki aðrar eins þekkzt hér
í bý og boðið hefur verið til í vetur á vegum
félagsins.
Á öndverðu skólaári komu út Menntaskóla-
Ijóð: 12 postular milli tektar og tvítugs á þingi
með jafnmörgum skólaskáldum frá fyrri tíð
og einu betur, því að Halldór Laxness ritaði
formála að bókinni. Sannarlega uppörvandi
að sjá stráka vart af barnsaldri yrkja Ijóð eins
og Ævisögu.
ICringum hátíðirnar flutti leiklistardeild fé-
lagsins Straumrof eftir Laxness — leikrit sem
fáir hafa séð, því að það var aðeins sýnt í örfá
skipti í Iðnó endur fyrir löngu og síðan ekki
söguna meir fyrr en nú.
Þegar þetta er ritað, er verið að sýna 65
myndir eftir Snorra Arinbjarnar í kjallara
nýja skólans, bezta sýningarsal borgarinnar.
Maður fellur í stafi. Listasafni Islands væri
stórsæmd að slíku framtaki. En hvaða orð á
að hafa um aðra eins hugkvæmni með atorku
hjá fámennu nemendafélagi? Ég segi eins og
Steinþór á Hala um Suðursveitina sína: Guð
blessi hana alla daga. ^
Nú fer Herranótt að og býður í þetta sinn til
fagnaðar með Óskari Wilde.
Ótalin eru erindi, bókmenntakynningar, tón-
leikar, myndlistarsýning nemenda og guð má
vita hvað og hvað. Og það er ekki komið að
Gvöndardegi enn.
Dýr úlflutningnr
Ætli margur hafi ekki orðið hugsi, þegar
hann heyrði kynntan dagskrárlið í útvarpinu
fyrir skömmu: Fiskisaga frá Róm — viðtal við
fjóra íslenzka fiskifræðinga. Þetta er sem sagt
veruleiki: í túnjaðri páfa eru staðsettir fjórir
íslenzkir sérfræðingar í fiskveiðum, Einar
Kvaran, Hilmar Kristjónsson, Jóhann Guð-
mundsson, Magnús Sigurðsson. Og einhvers
92
BIRTINGUR