Birtingur - 01.01.1966, Page 102

Birtingur - 01.01.1966, Page 102
THOR VILHJÁLMSSON: SYRPA Kanaklak á íslenzkum heimilum ... Agalegt er nú að láta svona einsog þeir láta þessir helvítis kommúnistar, og ætli hinir séu ekki bara verri en kommúnistarnir þessir menn sem eru að koma yfir okkur austrænni kúgun án þess að vera þó kommúnistar; sem væri þá afsökun fyrir þá, eða miklu frekar heldur en fyrir hina sem hafa bara alls enga afsökun að vera að innleiða þetta rússneska ófrelsi hérna, einsog þessir sextíumenningar eða hvað þeir nú eru margir; og af hverju mega menn ekki vera frjálsir að hafa það sem þeir vilja; og ég segi nú bara fyrir mig að ég vil ekki láta neinn segja mér fyrir um það hvað ég megi horfa á, — þetta er nú bara kúg- un; og svo er þetta sjónvarp engin ómenning, heldur eru bara alveg ágætir þættir í því, eins- og tii dæmis hefurðu nokkurntíma séð þáttinn Iloly Smoke, eða Gunsmoke, þar sem það er nú bara svoleiðis að það góða sigrar alltaf, og er meira að segja ofan á þegar hver þáttur endar útaffyrirsig, þó það sé stundum dálítið tvísýnt, og er það kannski ekki líka svona í lífinu sjálfu? og það gengur nú allavega, og það er ekki allt eintómt sólskin; og ég held Ijörnin hafi ekkert vont af því að kynnast því strax; því að ég segi nú fyrir mig að ég held að ef maður er morðingi þá er hann fæddur morðingi; hvaðsegir þú til dæmis um stjörnu- spána sem er alltaf að koma fram einhvers- staðar á hncttinum? og ætli sjónvarpið breyti nú nokkru? og svo get ég líka sagt þér það sem þú kannski ekki veizt að þessir þættir í ameríska sjónvarpinu: það er það bezta úr allri Ameríku, og er alveg toppurinn; cream of the crop honey; og þið viljið kannski líka láta banna bió, nema það sé talað á íslenzku og hafa þá bara gamli bærinn í dalnum, og svo getur nú líka vel verið að þeir fáist í Kefla- vík til að sýna einhverja íslenzka mynd, — cinsog til dæmis ef Njála verður kvikmynduð, en þá þýðir náttúrlega ekkert að vera með neinn íslenzkan púkaskap í því, og gera þetta alltof fornfálegt, heldur verða hetjurnar að vera dáldið smart, og það þýðir ekkert að vera að sýna tuttugu menn að berjast heldur verða þeir að hafa það dáldið marga, einsog þegar Gyðingarnir gengu yfir Rauðahafið hjá Sí- sill-bíddu-mill og þá þyrftum við auðvitað að eignast okkar Sí-sill-bíddu-mill sem skilur þetta, og hver veit líka nema við eigum hann; en þá þyrfti náttúrlega að fá Hollywood til að kvikmynda dáldið stórar sjóorustur; og sjálf- sagt þyrfti galeiður; og hvað er á móti því að láta Gunnar berjast við blámenn? einsog þessa sem eru að gera byltingarnar alltaf núna í Af- ríku, þar sem allt var áður í friði og spekt; og jrá kemur sér sjálfsagt vel að Gunnar Eyjólfs- son hefur reynslu af þeim af því að var hann ekki einu sinni í Ghana og fékk gulu; kannski 100 BIRTINGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.