Vera - 01.02.2002, Qupperneq 3

Vera - 01.02.2002, Qupperneq 3
„Ég er jafnréttissinni, ekki kvenréttindakona," sagði ung kona úr við- skiptalífinu í blaðaviðtali nýlega og bætti við að hún vildi engin sérrétt- indi fyrir konur og teldi ekki að karlmenn væru andstæðingar kvenna eöa færu illa með þær. í þessum orðum liggja einmitt þeir fordómar gagnvart feminisma sem hafa verið til umræðu undanfarið, m.a. í málfundaröð á vegum Stúdenta- ráðs og Jafnréttisnefndar Háskóla íslands. Svo virðist sem talinn sé stigs- munur á því að vera jafnréttissinni, kvenréttindakona og /eða femínisti. Að vera jafnréttissinni er sjálfsögð og viðurkennd yfirlýsing í huga meiri- hlutans, að vera kvenréttindakona er að stíga skrefið of langt, heimta sér- réttindi og telja karlmenn andstæðinga sína. Að vera femínisti er þá lík- lega að stíga skrefið enn lengra, biðja um meiri sérréttindi og líta á karl- menn sem enn meiri andstæðinga- eða hvað? Hver er annars munurinn á kvenréttindakonu og feminista? Umræða um þessa orðanotkun er mjög mikilvæg því fordómar verða til vegna ranghugmynda og vanþekkingar og upplýsing er besta leiðin til að uppræta þá. Þegar við byrjuðuni að vinna þetta blað ætluðum við að fjalla um fordóma gegn femínisma en eftir því sem á leið langaði okkur meira að fjalla um það hvað er að vera femínisti og hvaða fólk telur sig vera femínista. Okkur þykir Ijóst að margir vita ekki hvað femínismi er og því hlýtur umræða um það að vera nauðsynleg. Saga kvennabaráttu síð- ustu áratuga er ekki kennd í islenskum skólum og því er margt ungt fólk ótrúlega illa upplýst um þær breytingar sem kvennabaráttan hefur kom- ið til leiðar. fyrir námskeið og auglýsingar þar sem konur eru hvattar til þátttöku í stjórnmálum. Hlutur kvenna í sveitarstjórnum er aðeins 28,2% og því þarf að gera betur í kosningunum 25. maí nk. A heimasíðu nefndar- innar segir: „Konur og karlar hafa að mörgu leyti ólík- an bakgrunn, uppeldi og reynslu. Akvaröanir sem við tökum eru byggðar á menntun okkar uppeldi og reynslu. Konur eru helmingur þjóðarinnar og það er því í þágu jafnréttis og lýðræöis að konur og karlar taki þátt í að móta samfélagið." Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir fyrir fyrirspurn til heilbrigðisráðherra um hvort setja eigi í lög hér á landi bann viö umskurði stúlkna eða kvenna og viðurlög við slíkum verknaði. Alþjóðastofn- anir hafa hvatt til þess að lönd taki skýra afstöðu gegn slikum verknaði en vandamál af þessu tagi hafa komið upp í fjölmenningarlegum samfélögum. Jón Kristjáns- son tók undir orð Ástu og telur aö setja þurfi slíkar reglur hér á landi. íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir að verölauna Sigríöi Dúnu Kristmundsdóttur fyrir bókina Björg þar sem rakin er ævisaga merkrar konu og brautryðjanda í menntun íslenskra kvenna en saga hennar var flestum gleymd. Svona viðurkenning er hvatning til að halda áfram aö skrá (gleymda) sögu kvenna. Þegar fjallað var um fordóma gegn femínisma á Stöð tvö nýlega voru unglingar spurð hvað þeim finnist um femínista. Svar ótrúlegra margra drengja var að femínismi snúist um að konur séu æðra kynið. Þar var ekki spurning um jafnrétti, heldur hvort kynið hafi yfirráðin. Að sjálfsögðu voru strákarnir ekki til í að afsala sér þeim völdum sem þeirra kyn hefur haft í gegnum aldirnar og líta því neikvætt á femínisma. fyrir að leggja léttari dæmi fyrir stelpur heldur en stráka og ætla með því að sýna fram á hvernig „jákvæð mismunun" virkar. Hver er femínisti og hver ekki? Svör þeirra sex sem Vera spurði hvort nota það orð til að lýsa lifsafstöðu sinni eru athyglisverð. Það er einnig athygl- isvert að lesa svörin við spurningu blaðsins á bls. 6 - hver er uppáhalds femínistinn þinn? Konurnar sem þar eru nefndar eru frábærir fulltrúar kvenna en hvort þær kalla sig feminista eða aðrir líti á þær sern slíkar er annað mál. Eða hvað? Er þetta kannski bara spurning um mismunandi orð og merkimiða á sama innihald? P.S. Á heimasíöu Veru, vera.is, má lesa fyrirlestur undirritaðrar um for- dóma gegn femínisma sem haldinn var á málþingi Stúdentaráðs og Jafn- réttisnefndar HÍ. Vefþjóðviljinn (andriki.is) fyrir pistil 24. febrúar þar sem á ósmekklegan hátt er snúið út úr hugtakinu jákvæö mismunun en það hug- tak virðist fara óskaplega illa í unga, hægrisinna um þessar mundir. Þeim virðist greinilega ekki finnast þörf á að hvetja konur til þátttöku í stjórnmálum, hvorki í sveitarstjórnum né á Alþingi. fyrir að hleypa Egyptanum Abraham Anter Seyed inn í landið en fyrrum eiginkona hans, Guöríöur Ingólfs- dóttir, var búin að biöja unr að það yröi ekki gert eftir að hafa þurft að fara til Egyptalands og frelsa dóttur þeirra úr höndum föðurins sem vildi kyrrsetja hana og gifta hana í Egyptalandi gegn vilja sínum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.