Vera - 01.02.2002, Blaðsíða 58
Robles hefur líka tekiö á heimilisofbeldi, nauögunum og kyn-
feröislegri áreitni, í landi þar sem skuldinni hefur lengst af ver-
iö skellt á fórnarlömb nauðgara og eiginmenn komist upp meö
ofbeldi án þess að vera refsað.
endur yröu tafarlaust leystir úr haldi.
Ekkert fordæmi var fyrir því að em-
bættismenn véfengdu gerðir alríkis-
valdsins og fjölmörgum mótmælendum
var sleppt. Ortega telur þennan atburð
hafa markað tímamót fyrir Robles og
fært sónnur á kjark hennar. Hún segir
einnig að almenningur telji aðdáunar-
vert hvernig Robles brást við þegar lög-
reglan setti upp vegtálma í kringum
miðborgina þegar loforð borgaryfir-
valda um launauppbót brást. „Hún
mætti á staðinn og samdi um málið.
Það hefði enginn karlmaður gert."
Alejandro Quintero, forstjóri stofnunar
sem fer með mál kennara og verkafólks
í borginni, segir Robles horfast í augu
við vandamálin. „Hún fer út á meðal
fólksins og ræðir við það, sem er frá-
brugið stjórnarháttum Cárdenas," segir
hann. „Hún er hörkutól, " segir Román
Revueltas blaðamaður á óháða dag-
blaðinu Milenio. „Þetta er karlrembu-
land en hún nýtur virðingar. Hún er
hrein og bein og það kunnum við að
meta." Henni tókst þó að móöga fyrr-
verandi forseta landsins, Ernesto
Zedillo, þegar hún neitaði að fylgja
honum í skoðunarferð um borgina.
„Konur elska mig vegna þess að yfirleitt
er það karlinn sem hafnar konunni en í
þetta sinn var því öfugt farið, " segir
hún. Þótt lagabætur Robles gildi aðeins
í Mexíkóborg, hafa þær haft víðtæk
áhrif á landsbyggðinni. Stjórn höfuð-
borgarinnar er talið valdamesta em-
bætti landsins, næst á eftir forseta-
embættinu, svo verk hennar hafa vakið
eftirtekt, einkum hvað snertir afskipti
hennar af fóstureyöingalöggjöfinni.
„Um það bil milljón konur fara í fóstur-
eyðingu í Mexíkó ár hvert, " segir hún.
„Og margar, sérstaklega þær fátæk-
ustu, deyja af afleiðingum ólöglegra
fóstureyðinga. Það er fjórða algeng-
asta dánarorsök barnshafandi kvenna,
svo þetta er ekki siðferðilegt vandamál
heldur snertir málið heilsufar þjóðar-
innar." Þar til nýlega voru fóstureyð-
ingar ólöglegar í öllum fylkjum Mexíkó,
31 að tölu, og sömuleiðis í höfuðborg-
inni, en undanþágur voru þó til staðar
heföi konu verið nauðgað eða með-
ganga og fæðing talin lífshættuleg.
Robles gerði róttækar breytingar á
fóstureyðingalöggjöf borgarinnar, þeg-
ar hún í ágúst árið 2000 knúði fram
reglugerð sem kveður á um að fóstur-
eyðing sé heimil ef heilsufari konu sé
hætta búin (ekki lífi hennar) eða ef um
alvarlega fæðingargalla sé að ræða.
Luis Reynoso Cervantes, biskup og lög-
fræðilegur ráðunautur mexíkóska bisk-
uparáðsins, kallaði hana morðingja og
heigul, en Robles var föst fyrir og
reyndist njóta stuðnings 75% borgar-
búa. Hún hefur líka tekið á heimilis-
ofbeldi, nauðgunum og kynferðislegri
áreitni, í landi þar sem skuldinni hefur
lengst af verið skellt á fórnarlömb
nauðgara og eiginmenn komist upp
með ofbeldi án þess að vera refsað.
Robles er ekki eina stjórnmálakon-
an sem ræðst gegn félagslegu órétt-
læti. Konur I Mexíkó fengu fyrst rétt til
að bjóða sig fram í kosningum árið
1953 en gegna nú nokkrum veigamikl-
um embættum, svo sem embætti utan-
ríkisráðherra, umhverfisráðherra og
þingforseta, auk þess sem konur eru
formenn tveggja stjórnmálaflokka, PRD
og PRI. „Að sjá konu sem borgarstjóra
hefur breytt ímynd valdsins," segir
Robles, „en samfélagsleg breyting er
enn aðeins á frumstigi. Breytingar eru
lengi að skjóta rótum." Og hún er stolt
yfir hlutverki sínu í mexikóskum stjórn-
málum. „Konum er kennt að óttast
ákvarðanatöku. Eitt af því sem ég þurfti
að læra var að nota völdin." En völdin
verða að bíða enn um sinn og hvað
varðar hugsanlegt forsetaframboð seg-
ir hún aðeins að langt sé í kosningar.
Sigríöur Magnúsdóttir þýddi úr MS
58
Women's News Fréttadreifing með tölvupósti Dæmi um efnisflokka: Fátækt Glæpir og (ó)réttlæti Heilsa
H;wjt er að gerast áskrifandi að fréttum og greinum um feminisma sem safnaö er saman hvaöanæva úr heiminum. Til að gerast áskrifandi þarf að senda tölvupóst á WQmensnews826@aol.com og rita 'Subscribe' sem efni bréfs. Eftir að hafa skráö sig fœr kona daglega tölvupóst frá frcttagyöjunni Mary Ann. Lesbíur Listir og menning Stríð og friður Pólitík Vændi