Vera - 01.02.2002, Blaðsíða 71
ISLENSK 0AA1
KNATTSPYRNA *vU I
Arnar Gíslason og Guðni Rúnar Gíslason
/* _ \ fýpiP;
#
Islensk knattspyrna
Fyrir jólin kom út bókin Islensk knatt-
spyrna eftir Viði Sigurðsson og er þetta
sú 21. í röðinni. Flér er fjallað um allt
það helsta sem gerðist á knattpyrnu-
vellinum af mikilli nákvæmni og hlut-
leysi höfundar. Itarleg tölfræðiúttekt
ásamt miklum fjölda mynda, viðtala og
öðrum fróðleik gefur góða mynd af
knattspyrnuárinu 2001. Bókin er nokk-
uð skemmtileg aflestrar og getur
hvorutveggja nýst sem uppflettirit, til
að fylgjast með gengi síns lið í gegnum
tímabilið, eða til að athuga með ein-
staka leikmenn; en auk þess má lesa
bókina sem spennusögu spjaldanna á
milli, þar sem lesandi er dreginn inn í
stemningu hverrar umferðar fyrir sig.
Athyglisvert er að bregða á sig kynja-
gleraugunum við lestur bókarinnar.
Víðir Sigurðsson
Skjalborg
Svo virðist sem karlar séu í þó nokkrum
meirihluta knattspyrnuiðkenda. Arið
2001 luku lið frá 51 félagi keppni í
meistaraflokki karla en aðeins þriðj-
ungur af því, eða 17 félög, luku keppni
í meistaraflokki kvenna. í yngri flokk-
unum eru yfirleitt um helmingi fleiri
karla- en kvennalið í hverjum flokki en
þó er þetta jafnast í allra yngstu flokk-
unum. Einkennilegt er að efstu deild í
meistaraflokki, Símadeildinni, er gerð
öllu betri skil í karla- en kvennaflokki.
Umfjöllunin hjá körlunum spannar 46
síður, en konurnar eru afgreiddar á 10
siöum. Að vísu eru liðin 10 hjá körlun-
um en 8 hjá konunum og því eru leikn-
ar fleiri umferðir hjá körlunum, en það
útskýrir þetta ekki að fullu. Helsta skýr-
ingin er sú að umfjöllun um efstu deild
kvenna er á svipuðu formi og umfjöll-
un um næstefstu deild karla. Ekki er
verið að spandera litasíðum eða
tveggja heilsíðna umfjöllun um hvert
lið deildarinnar í konurnar eins og í
karlana, auk þess sem hver umferð er
afgreidd á minna rými en i umfjöllun
um efstu deild karla. Ef til vill er þessi
ofuráhersla á Símadeild karla tilkomin
vegna væntinga höfundar og/eða út-
gefanda um lesendahópinn.
Hugsanlega er búist við að bókin
lendi aðallega í jólapökkum ungra
knattspyrnudrengja og til að slíkur
pakki verði framvegis á óskalistanum
þá sé talið að bókin megi ekki snúast of
mikið um einhverjar konur í fótbolta.
En spurning er hvað ungum knatt-
pyrnudömum þykji um pakkann. Ætli
þær séu sáttar við hvernig farið er með
þeirra fyrirmyndir?