Vera - 01.02.2002, Page 17
Hv<i$ er fíiðf
F,
ifoMviMftáttír Pj«r^«rílóttir
yrsta bylgjan vísar til súffragett-
anna sem börðust fyrir kosningarétti
kvenna á 19. öld og í byrjun 20. aldar. Þær
háðu harða baráttu fyrir kosningaréttin-
um, sérstaklega í Bretlandi þar sem fjöl-
margar þeirra voru handteknar af yfir-
völdum og þeim misþyrmt. Þessi bylgja
varð aldrei stór hér á landi. íslenskar kon-
ur fengu kosningarétt árið 1915 og er Brí-
et Bjarnhéðinsdóttir þekktust íslenskra
kvenna sem tilheyrðu fyrstu bylgjunni.
Önnur bylgjan á rætur sínar að rekja
til kvennahreyfinga á 7. og 8. áratugnum.
Konur áttuðu sig á því að þrátt fyrir að
kosningaréttinum hafði verið náð, hallaði
enn á þær í samfélaginu. Á þessum ára-
tugum var mikil gróska í kvenréttindabar-
áttu. Fjöldi hópa, sem hver hafði sína
skoðun á því hvernig jafnrétti skyldi náð,
spruttu upp. Með misróttækum aðgerðum
náðu þessir hópar miklum árangri í jafn-
réttismálum. Flest þau réttindi sem nú á
dögum eru talin sjálfsögð, svo seni réttur-
inn til sömu launa fyrir sömu vinnu og
rétturinn yfir eigin líkama, er baráttu
þessara kvenna að þakka. Barátta þessarar
hreyfingar var svo almenn og svo sýnileg
að þegar fólk hugsar um feminisma í dag
hugsa flestir um hreyfingar þessara ára.
Ekki er hægt að finna eina allsherjar skil-
greiningu á þeim feminisma sem tíðkaðist
á þessum árum. Hóparnir sem uröu áber-
andi á þessum tíma voru allt frá virðuleg-
um og gamalgrónum stofnunum, eins
Kvenréttindafélagi Islands, til nýrra og
róttækari hópa eins og Rauðsokkanna. Ef
til vill er hægt að draga saman kenningar
þessara mismunandi hópa i eina setningu
sem kom fram í bók Simone de Beauvoir,
Le Deuxiéme Sexe árið 1949: „Þú fæðist
ekki kona, heldur verður þú kona." Fem-
inistar þessara ára lögðu áherslu á að kyn-
hlutverkin eru ekki eðlislæg heldur ásköp-
uð af samfélaginu.
Þriðja bylgjan er merkileg fyrir þær
sakir að upphafskonur hennar tilheyra
fyrstu kynslóð kvenna sem elst upp við að
kvenréttindi séu talin sjálfsögð mannrétt-
indi. En hún sker sig frá forverum sínum
að því leyti að hún er ekki pólitísk fjölda-
hreyfing. Flún á upptök sín í háskólum
vesturlanda og ennþá er hún aðallega
bundin við akademíuna. Þriðja bylgjan
leggur mikla áherslu á fjölbreytileika. Flún
hefur engu að síður verið gagnrýnd fyrir
það hversu bundin hún er við akademíuna
og höfði ekki til almennings. Að þessu
leyti fellur hún í sömu gryfju og forverar
hennar. Þriðja bylgjan gagnrýnir eldri
femínista fyrir að hafa hundsað konur í
minnihlutahópum en er sjálf gagnrýnd
fyrir að höfða eingöngu til menntakvenna
og hundsa almenning. Þá hafa baráttumál
þriðju bylgjunnar einnig verið talin heldur
óljós. Þessu hefur verið svarað með því að
í þriðju bylgjunni felist ákveðin afstaða
frekar en ákveðin baráttumál. Þessi af-
staða hefur stundum verið kölluð „girl
power" og felst í því að viðurkenna fjöl-
breytileika einstaklinganna og rétt kvenna
til að vera það sem þær vilja og gera það
sem þær vilja.
Ein ástæða þess að þriðju bylgjunni
hefur ekki enn tekist að fylkja sér um eitt
ákveðið pólitískt markmið er sú að mis-
réttið er ekki lengur eins augljóst og það
var. í dag felst mismununin yfirleitt í
menningunni og það er hún sem feminist-
ar hafa snúið sér gegn. Barátta þeirra er
ekki lengur einskorðuð við lands- og
sveitarstjórnmál, heldur fer hún líka fram
á síðum tímarita, bóka, dagblaða, menn-
ingarrita, netsíðna svo og í kvikmyndum,
leiklist, tónlist og myndlist, svo fátt eitt sé
nefnt. :)
f«fr<?áí ík«p«r fordóMn
Þrátt fyrir þessar þrjár mismunandi bylgj-
ur hefur grundvallarhugmyndin sem býr
að baki feminisma alltaf verið sú sama:
Jafnrétti óháð kynferði! Flugmyndafræði
feminismans gengur út á að gagnrýna
samfélagið og ráðast gegn stöðluðum
ímyndum af hlutverkum kynjanna sem
endurspeglast á öllum sviðum menningar
okkar. Fylgikvillar þessara stöðluðu hug-
mynda birtast til dæmis í eðlishyggjunni
sem gengur út á að skýra mun kynjanna
með vísan til óbreytanlegs eðlis. Þannig er
reynt að telja konum trú um að þær hafi
aðra eiginleika en karlar og það vilji bara
svo „óheppilega" til að þeir eiginleikar
sem konum eru eignaðir séu minni að
verðleikum en þeir sern eignaöir eru körl-
um. Þessi hugsunarháttur hvetur til kven-
fyrirlitningar sem endurspeglast meðal
annars í launamun kynjanna. Mismunandi
útfærslur á hinum ýmsu leiðum til að öðl-