Vera - 01.02.2002, Qupperneq 25

Vera - 01.02.2002, Qupperneq 25
Aðvera femínisti er hluti af minni sjálfsmynd Unnur Dís Skaptadóttir mannfræðingur og lektor við Háskóla íslands M ■ V ■ cr finnst sjálfsagt aö kalla mig femínista og í minum huga hefur femínismi jákvæöa merkingu. Ég hef alltaf stutt kvennabaráttu þó ég hafi aldrei tekið þátt I kvennahreyfingum. Það aö vera femínisti er hluti af minni sjálfsmynd og lífssýn sem hefur áhrif á daglegt líf mitt og fræöistörf. Ég undrast alltaf þegar fólk sem segist aðhyllast lýðræöi, einstaklingsfrelsi og mannréttindi grettir sig þegar minnst er á feminisma. Fyrir mig merkir feminismi fyrst og fremst baráttu fyrir því að konur og karlar hafi sömu möguleika til að njóta sín sem einstaklingar óháð kyni. Þó ég hafi verið hlynnt kvenréttinduni frá unglingsárum, þá get ég ekki sagt að ég hafi farið að líta á mig sem femínista fyrr en eftir tvítugt þegar ég dvaldi við nám í Bandaríkjunum. í háskólanámi mínu þar kynntist ég ólíkum femínískum stefnum hjá bæði karl- og kvenkennurum. í mann- fræði, eins og I öðrum greinum félagsvísinda hefur áhrifa femíniskra nálgana gætt á margvíslegan hátt, til dæmis að fjalla á gagnrýnin hátt um ósýnileika kvenna og með því að skoða og greina kyngerfingu i ólíkum samfélögum og hvernig hún tengist ólíkri stöðu kynjanna. í Bandaríkjunum tók ég þátt í mínum fyrsta feminiska leshring ásamt nokkrum íslenskum konum í New York. Þessi leshringur hefur nú nýlega verið end- urvakinn, en er nú fyrst og fremst skautaklúbbur og nokkrar dætur hafa bæst í hópinn. Það er algengt að ungar konur I dag átti sig ekki á að atvinnu- og menntunarmögu- leikar þeirra i nútimasamfélagi eru tilkomnir vegna baráttu kvenréttindakvenna fyrri tíma. Mér finnst mikilvægt að við munum eftir þessari sögu og kom- um henni til skila til næstu kynslóða kvenna og karla. Ottinn við breytingar virðist hins vegar leiða til þess að haldið er I gamlar klisjur um hina hræðilegu femínista. Því miður þurfum við ekki að líta langt til að sjá að víöa er nokkuð langt I land I baráttu fyrir jafnri stöðu kvenna og karla. Þetta sjáum við meðal annars I slæmri efna- hagslegri stöðu kvenna I heiminum, i ofbeldi gegn konum og stöðluðum og einhæfum myndum af konum og körlum í fjölmiðlum. Femínismi ögrar stöðluðum kynímyndum, en slíkar ímyndir dylja valdamun með þvi að gefa í skyn að þær séu á einhvern hátt nátt- úrusprottnar. Femínismi beinir sjónum okkar að því að staða karla og kvenna er ekki eðlis- læg heldur félagslega sköpuð og eitthvað sem hægt er að breyta. í þessari hugmynd liggur einmitt lykillinn að kvenfrelsinu og möguleikun- um til að vera konur á ólíkan hátt og um leið til að jafna stöðu kynjanna. Femínismi beinir sjónum okkar aö því aö staöa karla og kvenna er ekki eðlislæg heldur félagslega sköpuö og eitthvaö sem hægt er að breyta.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.