Vera - 01.02.2002, Síða 35

Vera - 01.02.2002, Síða 35
Rapparinn og þáttarstjórnandinn Erpur Eyvindarson, einnig þekkt- ur sem Johnny International og Blazroca, hefur veriö áberandi í fjölmiölum undanfarið. Hann hefur ásamt félögum sínum í rapp- hljómsveitinni XXX Rottweiler hafiö íslenskt rapp til vegs og virö- ingar og óhemju vinsælda á íslandi síöustu árin. Sem Johnny International hefur hann hneykslaö margan íslendinginn í sam- nefndum þáttum á Skjá einum. Erpur hefur oft veriö gagnrýndur fyrir fordóma og kvenfyrirlitningu í textum sínum og hlutverki sínu í Johnny International. Veru fannst því kominn tími til aö tala við hann sjálfan og gefa honum tækifæri til aö svara þessari gagnrýni. Hvernig sérö þú feminisma? Eg er alinn upp á mjög meðvituðu heimili og þegar ég hugsa um feminista sé ég fyrir mér konur sem sameinast á grundvelli kynferðis og berjast fyrir réttindum sínum á eigin forsendum, í stað þess að treysta á að karlarnir bjargi bara málunum. Auðvitaö getur jafnrétti ekki náðst án þess að til séu karlar sem eru samþykkir þessari hug- myndafræði. Ég væri eitthvað geðveik- ur ef ég væri ekki samþykkur því að konur hafi sama rétt og við. Auðvitað styð ég takmark feminista þótt það megi alveg deila um aðferðafræði. Mér finnst sumir feministar festa sig í smá- atriðum, orðalagi, klæðaburði o.s.frv. „Maður" þýðir samkvæmt orðabók manneskja, sem getur bæði verið karl- maður og kvenmaður svo ég myndi persónulega ekki eyða tíma i þessa „þingkona/þingmaður" pælingu. Og það að hinar ýmsu kynhneigðir séu stimplaðar niðrandi fyrir konur er vit- leysa. Sadómasókiskt kynlíf er ekkert meira niðrandi fyrir konur en karlmenn. Það er alveg eins kallinn sem fær epli upp i sig og gúrku í rassinn. Svo nokkur dæmi séu nefnd. Þaö er að sjálfsögðu fullt sem stelpur hafa fram yfir stráka. Stelpur eru farnar á trúnó út af minnstu vandamálum og öllum finnst það bara í lagi. Strákar hinsvegar eiga helst ekk- ert að tala um sín vandamál enda eru þeir mun liklegri til að bæla allt inni og sleppa síðan spennunni út með ein- hverjum slagsmálum eða álíka fyllerís- rugli. Besta dæmið eru samt sjálfs- morðin. Strákar fremja mun frekar sjálfsmorð en stelpur og ég held að þessi bæling karlmanna sé aðalástæð- an. Samfélag dagsins í dag gengur mik- ið út á útlitsdýrkun. Sennilega beinist það meira aö konum enda eru þær miklu liklegri til að gleypa við alls kon- ar svona rugli. Ég meina, ég myndi aldrei setja eitthvað sílikon í mig til að líta út eins og ég væri með vöðva. „Vera með vöðva!" Hvað er það? Auðvitað er fullt af gaurum sem nenna að reyna að lifa upp i eitthvað svona og formúlan fyrir „sexí gaur" er auðvitað til. „Karl- mannlegasti karlmaðurinn", „Herra Ís- land" og eitthvað svona. Gaurarnir eru með svo mikið af vöðvum að þeir geta ekki gengið eðlilega, það er varla að þeir geti sagt nafnið sitt fyrir vöðvum. Mér myndi finnast þessi útlitspæling Strákar hinsvegar eiga helst ekk- ert aö tala um sín vandamál enda eru þeir mun líklegri til aö bæla allt inni og sleppa síöan spenn- unni út meö einhverjum slags- málum eöa álíka fyllerís-rugli. alveg jafn misheppnuð hvort sem ég væri strákur eða stelpa. Það er þess vegna sem ég segi í einum textanna minna: „ef ég væri kona þá væri ég rauðsokka / því ég myndi aldrei nenna að plokka píkuhár!" Eru Johny (Inter) National og Erpur einn og sami maöurinn? Engan veginn. Þetta er eins og að spyrja Ladda hvort hann og Elsa Lund séu ekki ein og sama persónan. Allir sem þekkja mig, og bara allir sem hafa lagt einhverja stund á leiklist, sjá strax að þetta er bara spuni, bara tilbúning- ur sem á lítið sameiginlegt með mér. Þetta form hentar mér mjög vel. Það eru oft grinistar sem stunda skörpustu þjóðfélagsádeilurnar eins og leikrit Dario Fo sanna. Auðvitað er ég lika bara að fíflast i þáttunum en það er oft einhver alvarlegri undirtónn. Ég geng stundum mjög langt og geri hluti sem fólk ætti ekki að leika eftir. En J.Naz er ekki kennsluþáttur í lífsmynstri eða uppeldi. Foreldrar geta bara alið börnin sín upp sjálf, ég hef aldrei boðist til þess. Enda er þátturinn frekar seint á kvöldin. Viðmælendur rnínir eru stund- um frekar slakir og ég fæ þá ekkert endilega í viðtal til að upphefja þá. Það er nú yfirleitt ekki þannig að neinum sé greiði gerður að koma í viðtal til mín. En ég geng mun harðar að sumum. Því þröngsýnni skoðanir, því lengra geng ég, eins og sést kannski best á því að þeir sem hafa gengið móðgaðir út úr miðjum viðtölum hjá mér eru Páll Ara- 35

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.