Vera - 01.02.2002, Blaðsíða 40

Vera - 01.02.2002, Blaðsíða 40
Fólk í stjórnunarstörfum er ekki endilega aö stjórna, þaö er alveg eins aö þjóna. Þaö á aö skapa skilyrði til þess aö starfsfólkið geti skilaö árangri, hvetja þaö og hafa skýr markmið og framtíöarsýn. Þegar fjölskyldan flutti aftur til íslands 1999 var Gallup aö hefja þjálfun fyrir stjórnendur fyrirtækja og var Eyþór ráöinn til aö sjá um hana. Þau Ingrid höfðu skrif- aö bók um stjórnun í Hollandi og þau sáu um að ritstýra tímariti og ritröö bóka um stjórnun. Hún var því komin vel inn í kenningar um nútíma stjórnunarhætti og var ráöin til að byggja upp stjórnendafræðsluna hjá Gallup, ásamt Eyþóri. „Um 1996 byrjaöi Gallup aö bjóöa fyrirtækjum vinnustaða- greiningar þar sem greindír eru ýmsir þættir sem tengjast innra heilbrigði fyrirtækisins. Spurningalisti er lagður fyrir starfsfólkiö og þaö spurt um ýmsa þætti - hvernig því líði í vinnunni, hvort stjórn- endur beri umhyggju fyrir því, stolt af vinnustaönum, hvort álit þess skipti máli, samskipti, upplýsingaflæöi o.s.frv. Þegar niöur- stöðurnar lágu fyrir spuröu mörg fyrirtæki: Hvað svo? Þau vildu lagfæra þaö sem I Ijós kom aö var ekki í lagi og því ákvaö Gallup að koma á fót þjálfun fyrir stjórnendur sem upphaflega hét Stjórn- endaþjálfun Gallup en var síðan breytt I Þekkingarsmiðjan þegar farið var aö bjóöa upp á námskeið á fleiri sviöum og fyrir fleiri markhópa, þar á meðal framlínufólk, þ.e. fólk I þjónustustörfum. Þaö haföi veriö boöiö upp á ýmis stjórnendanámskeið hérlendis i formi fyrirlestra en nýjungin sem við komum meö var þjálfun þar sem fólk er sett inn I aðstæður, látið fara í hlutverkaleiki og takast á viö vandamálin á sýnilegan hátt. Þaö er staöreynd að reynslan kennir fólki mest, þ.e. ef fólk fær að upplifa hlutina, klúðra þeim og prófa aftur. Hlutverk stjórnenda hefur breyst, þeir koma nú meira aö beinum samskiptum viö starfsmenn heldur en þegar þeir voru bara á toppnum og sáust aðeins viö hátíðleg tækifæri. Stjórnendur koma meira aö ráðningu starfsfólks og uppsögnum, þeir þurfa aö taka meiri ábyrgö á daglegum rekstri og verða aö kunna að umgangast starfsfólkiö - hvetja þaö, segja því til og hrósa. Þannig sjá stjórn- endur nú um ýmislegt af því sem starfsmannastjórar geröu áður, eins og aö taka starfsmannasamtöl og launaviðtöl, aö reka fólk og ráða fólk. Þetta krefst miklu meira af stjórnandanum. Um leiö eru starfsmannastjórar orönir meira stefnumótandi aöilar innan fyrir- tækja, þeir skapa skilyrði, móta ferli, t.d. I sambandi við móttöku nýliöa, og starfsmannamálin tengjast I auknum mæli stefnu og markmiðum fyrirtækisins. j Þaö má segja að stjórnendur hafi verið að færast yfir á mýkri brautir, frá því aö vera sá eöa sú sem stýrði og sagöi til, sem tók eftir frávikum frá markmiðum, leiörétti og skammaöi. Nú þurfa stjórnendur aö stýra sérfræðingum, fólki sem vinnur störf sem byggja á hugviti, þjónustu og þekkingu og þeir vita ekki allt best. Stjórnandi þarf að skapa skilyrði fyrir þá sérfræöinga sem hjá honum vinna og því má segja aö orðið stjórnandi sé að veröa tímaskekkja. Fólk I þessum störfum er ekki endilega að stjórna, þaö er alveg eins aö þjóna. Þaö á að skapa skilyrði til þess að starfsfólk- ið geti skilað árangri, hvetja það og hafa skýr markmiö og framtíðarsýn. Stjórnendur þurfa ekki aö vera bestir á því sviöi sem þeir starfa á, þeir hafa fólk meö sérþekkingu I vinnu, eiga ekki aö gera allt sjálfir heldur leiðbeina og skapa góö skilyrði svo starfsfólk- ið nái árangri. Mér finnst vanta mjög viöa á íslenskum vinnustöðum aö starfs- fólk fái endurgjöf (feed baek), þ.e. fái aö vita hvernig það stendur sig. Það kemur mjög oft í Ijós I vinnustaöargreiningum aö fólki finnst þaö vanta viðurkenningu fyrir velunnin störf. Fólk vinnur myrkranna á milli en fær aldrei hrós, fær aldrei að vita hvort þaö þurfi að bæta sig o.s.frv. Við slíkar aðstæöur verður fólk óöruggt, þaö veit ekki hvort það er að gera vel og missir móðinn. Ég nota oft samlíkinguna um þaö hvernig Völu Flosadóttur myndi líða ef hún fengi aldrei aö vita um árangur sinn, hún væri alltaf aö stökkva en fengi engin viöbrögö. Eöa ef við færum í keilu og þaö væri alltaf dregið fyrir, við fengjum ekki aö sjá hvort viö hittum keilurnar. Rannsóknir sýna aö þaö sé lágmark aö fólk fái vitneskju um árang- ur verka sinna a.m.k. einu sinni I mánuði. Það er líka vitaö aö fólk lærir meira af því sem kemur á eftir hegðun, (hrós, hvatning) held- ur en þaö sem kemur á undan henni (fyrirmæli, skipanir). JF stjórnendanámskeiðum er líka lagt mat á hvernig Astjórnandinn er meö því að fá umsagnir starfsfólksins. Stjórnandi getur ekki sjálfur metið hvernig hann stjórnar, alveg eins og það er ekki þjónsins aö mæla gæöi matar á veitingastað heldur viöskiptavinarins. Viö mælum meö því aö stjórnendur fái nánasta samstarfsfólk til aö gefa umsögn um sig en hann þarf líka aö læra aö meta árangurinn sjálfur. Þar vinnum við meö sjálfsskoðun. Það er öllum nauösynlegt að staldra viö og líta I eigin barm, spyrja sig: Hvaö er ég að gera? Hverju hef ég gaman af? Hvaö geri ég vel? Hvaö má ég bæta? Svo þarf aö spyrja samstarfsfólkið aö því sama og bera niðurstöðurnar saman. Það er stundum munur á þessum niöurstöðum, sumir telja sig t.d. vera góða I aö hrósa en fá síðan þau ummæli frá samstarfs- fólkinu aö þeir kunni ekki að láta fólk vita ef það gerir vel. Viö kennum stjórnendum hvernig best sé að hrósa og láta fólk vita ef þaö þarf aö lagfæra eitthvaö. Þaö er ekki sama hvernig þaö er gert, t.d. er mjög mikilvægt aö greina á milli persónu og þeirra mistaka sem hún gerir. Þaö á ekki að alhæfa, segja t.d. viö fólk að það sé ónákvæmt ef það gerir fimm villur, frekar aö benda því á aö það geti lagað þessar fimm villur. Ekki heldur segja aö fólk sé óstund- víst heldur frekar aö þaö hafi komiö tvisvar of seint." Ingrid segir aö þessar nýju hugmyndir I stjórnun liggi vel viö mörgum konum því þar séu sömu eiginleikar I heiöri hafðir og viö barnauppeldi. Ingrid Kuhlman ætlaði að læra sænsku hér á landi en læröi þess í staö íslensku og er eini Hollendingurinn meö masterspróf í íslensku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.