Vera - 01.02.2002, Qupperneq 41

Vera - 01.02.2002, Qupperneq 41
Ingrid með börnum sínum, Gunnari og íris Anítu, nærri heimili þeirra á Álftanesi þar sem stutt er í fjöruna og náttúruna. „Tilfinningagreind er hugtak sem notið hefur vaxandi skilnings og umhugsunar. Þar er m.a. rætt um samkennd, eða hlut- tekningu, það að geta sett sig í spor ann- arra. Það er eins og konur eigi auðveldara með það og að velta fyrir sér hvaða áhrif eitthvað hafi á líf annarra, hugsa um það hvernig fólki líði. Vissulega eru fleiri konur í stjórnunarstörfum nú en fyrir tiu árum, en þær eru hins vegar allt of fáar. Þegar við höldum stjórnendanámskeið í fyrirtækjum er stjórnendahópurinn oft 12 til 15 manns °9 þar af tvær til þrjár konur. Þetta er athyglisvert þegar litiö ertil þess hve marg- ar konur Ijúka Háskólanámi. Þær skila sér ekki í stjórnendastörfin og þar held ég að vanti á aö þær hafi trú á sjálfum sér og sæki um þessi störf. Konur virðast síður taka áhættu heldur en karlar og eru oftar með fullkomnunaráráttu. Karlmenn eru óhræddari við að kasta fram hugmyndum án þess að vera búnir að hugsa þær ofan i kjölinn á meðan konur koma kannski með vel útfærða hugmynd sem þær hafa legiö Vfir en draga samt úr henni og afsaka sig. Þessi munur á kynjunum kemur líka glöggt fram i atvinnuviðtölum þar sem konur geta verið mjög ákveðnat þangað til kemur að því að ræða launin, þá verða þær óöruggar °g gera of litlar kröfur fyrir sig." Þegar talið berst að átaksverkefni HÍ, Konur til forystu - jafnara námsval kynj- anna, þar sem unnið er að því að fjölga kvennemum í raunvísindum og karlnemum i hjúkrunarfræði, segir Ingrid að borið hafi á því að stelpunum finnist óþarfi að verið sé aö styöja þær sérstaklega, t.d. með starfs- frama námskeiði, þærstandi alveg jafnfætis strákunum. Það er ekki fyrr en þær koma út á vinnumarkaðinn sem þær finna fyrir þvi að leiðin er ekki eins greið og þær héldu. „Það á sérstaklega við núna þegar farið er að þrengja að á vinnumarkaði og margir eru um hvert starf," segir Ingrid. „Ég hef heyrt að það geti verið allt upp i 190 umsækjendur um ritarastarf og þá segir sig sjálft að það skiptir miklu máli hvernig t.d. er gengið frá ferilskránni og hvernig fólk kemur fyrir i atvinnuviðtalinu. Atvinnu- rekendur hafa svo mikið val aö fólk verður að hafa rnikið sjálfstraust til að koma yfir- leitt til álita, sýna áhuga á starfinu, spyrja spurninga um fyrirtækið og koma vel fyrir á allan hátt. Fólk þarf líka að geta nefnt styrkleika sina og veikleika til að sýna fram á að það hafi raunhæft sjálfsmat." Ingrid segir að einn mikilvægasti hæfileiki fólks á vinnumarkaði í dag sé aðlögunarhæfni. Breytingarnar séu svo hraðar að konur sem fara t.d. i sex mánaða fæðingarorlof finni fyrir breytingum þegar þær koma til baka. „Við þurfum ekki að fara svo mörg ár aftur í tímann til aö rifja upp timann áður en allir voru með farsima, tölvupóst eða heima- tengingu á netið. Öll þessi tækni hefur Vissulega eru fleiri konur í stjórnunarstörfum nú en fyrir tíu árum, en þær eru hins vegar allt of fáar. breytt aðstæðum á vinnumarkaði mjög mikið og ef fólk tileinkar sér hana ekki á þaö á hættu að detta út. „Það er talið að þekking úreldist á tveggja til þriggja ára fresti, þess vegna verður alltaf þörf fyrir fræðslu á sviði atvinnulífsins," segir Ingrid þegar hún er spurð hvernig henni lítist á aðstæöur fyrir nýja fyrirtækið þeirra Eyþórs, Þekkingar- miðlun. „Námsgráða frá árinu 1986 t.d. i raunvísindum segir ekkert um þekkingu fólks í dag. Ef fólk hefur ekki viðhaldið þekkingu sinni og bætt við sig er slik gráða einskis viröi. Það mætti þess vegna stimpla á námsgráðu sem gefin er í dag: „notist fyrir 2005". Líftími stjórnunarnámskeiða er líka stuttur, eöa tvö til þrjú ár, það þarf að endurnýja þá þekkingu eins og aðra. Þann- ig skiptir námsgráða ekki lengur mestu máli, heldur að fólk vilji læra. Þess vegna höfum viö sem kjörorð í okkar fyrirtæki til- vitnun i Arie de Geus, Hollending sem vann í 40 ár hjá Shell um allan heiminn og skrif- aði bókina The Living Company: Growth, Learning and Longevity in Business, þar sem hann segir: „Eina varanlega samkeppnis- forskotið er hæfileikinn til að læra." 41
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.