Vera - 01.02.2002, Qupperneq 45

Vera - 01.02.2002, Qupperneq 45
Rabbdagskrá, kl. 12.00-13.00, Norræna húsið: 14. mars: Dr. Sif Einarsdóttir, sálfrœöingur: Stuðla áhugakannanir að hefðbundnu starfsvali karla og kvenna? Athugun á kynbundinni skekkju í Áhugakönnun Strong. 4. apríl: Dr. Annadis G. Rúdólfsdóttir, félagssálfrœöingur: Ungar mæður. 18. apríl: Kristin Þóra Kjartansdóttir, sagnfrœöingur: Frásögn af tveimur heimum: (slenskur veruleiki um miðja 20. öld frá sjónarhóli þýskrar konu. Opinber fyrirlestur, kl. 16.00 í Norræna húsinu: 7. mars: Dr. Hólmfridur Garðarsdóttir, bókmenntafrœöingur: Um sjálfsmynd og sjálfsmat kvenna við árþúsundalok og pólitískt hlutverk samtímarithöfunda í Argentinu. 16. maí: Dr. Marjaliisa Hentila, hagsögufrœðingur: Atvinnuþátttaka kvenna í Finnlandi um aldamótin 1900. starfi hefur verið hægt að leggja vinnu í að sækja um fé til rannsóknaverkefna, en þá vinnu hef ég unnið í nánu sam- starfi við Þorgerði Einarsdóttur, félags- fræðing og lektor I kynjafræðum, sem ráðin var sem slík í janúar 2001," segir Irrna. „Þegar ég kom til starfa, haustið 2000, var frestur til að sækja um í innlenda sjóði liðinn. Við leituðum því fyrst á náðir erlendra sjóða og skrif- uðum umsókn ásamt Norðmönnum til að fjármagna evrópskt verkefni um kyn- bundinn launamun. Styrkur fékkst til verkefnisins frá Jafnréttisáæltun Evrópusambandsins og eru samstarfs- aðilar okkar auk Norðmanna, Danir, Englendingar og Grikkir. í þessu verkefni eru teknar fyrir þrjár starfstéttir, en þær eru verkfræðingar, framhaldsskóla- kennarar og fiskvinnslufólk, og borið saman m.a. starfsmenning og launa- umhverfi til að varpa Ijósi á nokkra þsetti í launamyndun og launamun karla og kvenna innan greinanna. Verkefninu er stýrt af Norðmönnum og við vinnum þaö í umboði Jafnréttisráðs. Nú er unnið að gagnasöfnun hér á landi og síðan verða niðurstöður kynntar á loka- ráðstefnu í Noregi í nóvember. Styrkur til verkefnisins hlaust einnig úr rann- sóknasjóði Háskóla íslands. Jafnréttis- áætlun Evrópusambandsins 2001 til 2005 er metnaðarfull áætlun þar sem miklu fé er varið til alls kyns rannsókna. Einn áhersluflokkur áætlunarinnar er samræming einkalífs og atvinnulífs sem hefur verið ofarlega í umræðunni. Ataksverkefnið um jafnara námsval kynjanna undirbýr nú umsókn sem fellur undir liðinn „bætt staða umönn- unarstarfa" þar sem markmiðið er að auka þátttöku karla í umönnunarstörf- um. I átaksverkefninu er einmitt unnið að því að fjölga körlum í hjúkrunarfræði °g félagsráðgjöf og verður stofan vísindalegt bakland verkefnis sem unnið er i samstarfi við félög hjúkrunar- fræðinga, félagsráðgjafa, námsráðgjöf- ina í HÍ og Reykjavíkurborg. Við leitum nú eftir evrópskum samstarfsaðilum og jafnframt eftir mótframlagi frá hérlend- um aðilum en okkur ber að útvega 20% af heildarkostnaði við verkefnið. Ungt fólk, kyn og ofbeldi Annað verkefni sem er að fara af stað undir stjórn Rannsóknastofunnar nefnist Ungt fólk, kyn og ofbeldi. Það hefur fengið styrki úr Vísindasjóði og Rannsóknasjóöi HÍ og erum við nú að undirbúa umsókn sem aðalumsækjendur til Rannsóknasjóðs Norrænu vísinda- akademíunnar sem er með sérstaka áætlun til fjögurra ára um kynbundið ofbeldi. í rannsóknahópnum eru auk mín fjórir fræðimenn en ég er verkefnis- stjóri. Rannsökuð verða tengsl kyns og ofbeldis og hvernig það kemur fram í reynsluheimi ungra kvenna og karla. Meðal annars verður skoðuð sú kynja- myndun sem ofbeldi leiðir af sér í menningar- og afþreyingarefni ætluðu ungu fólki og tekin viðtöl til að meta hugsanleg áhrif ofbeldis á reynsluheim ungs fólks. Okkur finnst þetta brýnt efni nú þegar kynlífsvæðingin hefur aukist svo mjög, ekki bara hér á landi, það er alþjóðlegt vandamál. Við veltum t.d. fyrir okkur hvaða áhrif allt það ofbeldi sem fylgir klámi og klámmyndum hefur á ungt fólk. Kvennagagnabanki Eitt af þeim verkefnum sem Rann- sóknastofa í kvennafræðum hefur ýtt úr vör á síðastliðnum mánuðum er undir- búningur Kvennagagnabanka á netinu. Við ákváðum að drífa þetta verkefni af stað en umræður um nauðsyn þess hafa víða verið í gangi. Tilgangur gagna- bankans er að safna á einn stað nöfnum kvenkyns sérfræöinga í hinum ýmsu störfum samfélagsins til upplýsinga og til að auðvelda fólki sem vill leita til þeirra aðgang að þeim. Við byrjuðum á að fá fé frá nokkrum aðilum og réðum Erlu Huldu Halldórsdóttur, fyrrverandi forstööumann Kvennasögusafnsins í hlutastarf í tvo mánuði til að koma þessu af stað. Hún hefur unnið að frekari fjármögnun og undirbúningi og vonandi tekst að koma þessu endanlega í höfn og fá aðila til að halda utan um þetta. Svona gagnabankar eru til víða í nágrannalöndunum, t.d. hefur norski gagnabankinn, kvinnebasen.no, verið okkur fyrirmynd. Þar eru nöfnin flokkuð eftir starfsgrein, sérfræðiþekkingu, búsetu o.fl. og konurnar skrá sig sjálfar og gefa þær upplýsingar sem þær vilja koma á framfæri. Við höfum svo fengið undirbún- ingsstyrk úr Sókrates áætlun Evrópu- sambandsins til verkefnis sem tengist endurmenntun í jafnréttis- og kynja- fræðum og ætlum að vinna það í samvinnu við þrjú Evrópulönd. Ef við fáum áframhaldandi styrk gæturn við eflt starfsemi á sviði endurmenntunar og námskeiðahalds en margar sambæri- legar stofnanir leggja mikla áherslu á slikt starf. Námskeiðin yrðu að öllum líkindum unnin i samvinnu við símennt- unarstofnanir en nú á þessu vormisseri bjóðum við einmitt upp á tvö námskeið í samvinnu við Endurmenntun H.í. Á fyrra námskeiðinu sem hófst í byrjun febrúar eru kynnt grunnatriði kynja- fræða og mikilvægi kynjavitundar i samfélgasumræðu og stefnumótun. Seinna námskeiðið, sem verður haldið 4. og 6. mars, fjallar um gerð jafnréttis- áætlana. Fariö verður í stöðu kynja á vinnumarkaði, hugmyndafræði að baki samþættingu jafnréttissjónarmiða, gerð jafnréttisáætlana og eftirfylgni. Að lokum vil ég minna á að 4. og 5. október i haust verður þriðja ráðstefnan um íslenskar kvenna- og kynjafræði- rannsóknir haldin hér við Háskólann. Ráðstefnan verður þverfagleg og á að endurspegla stöðu kvenna- og kynja- fræðirannsókna árið 2002. Stjórn Rannsóknastofu i kvenna- fræöum skipa nú: Arnfríöur Guðmundsdóttir formaður, skipuð af Háskólaráði, Dagný Kristjánsdóttur úr hugvísindadeild, Edda Benediktsdóttir úr raunvísindadeild, Guðný Guðbjörnsdóttir úr félagsvísindadeild, Ólöf Ásta Ólafsdóttir af heilbrigðisvísin- dasviði, Þorgeröur Einarsdóttir, Rósa Erlingsdóttir og Rannveig Traustadóttir skipaðar af Háskólaráði. 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.