Vera - 01.02.2002, Síða 50

Vera - 01.02.2002, Síða 50
Bára Magnúsdóttir Hin æösta sæla Jane Austen (1775-1817) skrifaöi klassískar bókmenntir sem eignuðust nýja aödáendur þeg- ar bíómyndir og sjónvarpsþættir voru gerðir eft- ir þeim á síðasta áratug tuttugustu aldarinnar. I öllum sögum hennar eru ógiftar stúlkur í aðal- hlutverkum, og er sagt frá misvænlegum biðlum þeirra og svo ástinni einu. Bækurnar hafa lengstum verið vinsælar sem ástarsögur, en í þeim má líka sjá vandaðar og fróðlegar samfé- lagslýsingar. Persónur í sögum Jane Austen eru oftar en ekki í andstöðu við ríkjandi gildi í sam- félaginu og hegða sér ekki rétt og lenda í vand- ræðum út af því. Börn ekki á dagsskrá í bókum Jane Austen ber ekkert á því aö söguhetjurnar langi til að eignast börn. Þær hvorki tala um það né hugsa, þótt engin þeirra tali illa um börn og sjái fyrir sér að það sé fínt að passa þau endrum og sinnum. Þá virðast vonbiðlarnir ekkert spá í það að hjónaband feli i sér barneignir, þeir minnast ekki á slíkt í bónorðum sinum. Þau fela eingöngu í sér ástarjátn- ingar (ef ekki tilvísanir í efnahagslegan ávinning kvonfangs- ins af ráðahagnum). í bókunum er reyndar þó nokkuð um börn, mörg þeirra eru meira að segja nafngreind, en yfirleitt eru þau annaðhvort kornabörn eða fjarverandi í skóla, þau eiga semsé engar replikkur í textanum, og þar sem börn eru nú helst vinsæl fyrir krúttleg tilsvör og heimspekilegar spurn- ingar þá er athygIisvert að ekkert slíkt fái að fljóta með. Af því verður helst dregin sú ályktun að höfundinum hafi ekki bráð- legið á að gera þeim hátt undir höfði, þau eru ekki það sem máli skiptir. Staða barna Börn þóttu reyndar ekkert merkilegt fyrirbæri framanaf öld- um. Þau áttu það til að hrökkva uppaf við minnsta hnjask og þessvegna ekkert sniðugt aö bindast þeim nánum tilfinninga- böndum. Þau voru þvi vart talin með mönnum fyrr en þau höfðu sýnt fram á að ætla að verða eitthvað stálpuð. Þannig 50

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.