Vera - 01.02.2002, Qupperneq 53

Vera - 01.02.2002, Qupperneq 53
Og ef fyrirmyndarhjónabandið er barnlaust, ganga þá söguhetjur Jane Austen í hjónaband til þess að eignast börn? „Hún hafði aldrei gert sér háar hug- myndir um karlmenn eða hjónaband en alltaf ætlað sér að giftast. Það var eina heiðarlega staðan sem vel nienntaðar stúlkur í litlum efnum gátu vonast eft- ir, og þótt það gæfi enga tryggingu fyr- ir hamingju þá var það þægilegasta leiðin til að verjast skorti. Nú hafði hún komið sér upp þessari vörn. Hún var tuttugu og sjö ára, hafði aldrei þótt lagleg og henni fannst hún lukkunnar pamfíll." (þýding: Silja Aðalsteinsdóttir.) Collins þykir henni reyndar „hvorki skynsamur né aðlaðandi" og hún gerir sér engar grillur um að hann sé ást- fanginn af henni: „En hann yrði maður- inn hennar." Hún summar þarna upp þær ástæður fyrir hjónabandi sem ganga eins og rauður þráður gegnum bækurnar: Konur eiga engra annarra kosta völ, því þær geta ekki séð fyrir sér á annan hátt. Emma hefur aðra skoðun, enda býr hún við aðrar aðstæður og finnst að mun betra sé aö vera ógift: „Að ég sé aðlaðandi, Harriet, er ekki nóg til að fá mig til að giftast; mér verður að finnast annað fólk aðlaðandi - eða allavega ein önnur manneskja. Og ekki nóg með að ég ætli ekki að giftast á næstunni, heldur hef ég ekki hug á að giftast yfirleitt. Ég hef ekki sömu hvata til að giftast og aðrar konur. Ef ég yrði ástfangin væri allt annað uppi á ten- ingnum! En ég hef aldrei verið ástfang- in, það er ekki í eðli mínu og ég held ég verði það aldrei. Og án ástar væri kjána- legt af mér að breyta högum minum. Peninga þarf ég ekki, vinnu þarf ég ekki, virðingu þarf ég ekki: ég held að fáar giftar konur ráði eins miklu á eigin heimili og ég geri á Hartfield." Það er alveg Ijóst að i upptalningu hennar á tilgangi kvenna með því að ganga í hjónaband er hvergi minnst á barneignir. Og Emma gengur lengra, því að skoðun hennar er sú að „Það er ein- göngu fátækt sem fær almenning til að fyrirlíta skírlífi! En einhleyp kona í góð- um efnum er alltaf til sóma, og getur verið eins skynsöm og indæl og hver önnur." 'Eöli kvenna' hefur ekkert breyst síðan á tímum Jane Austen heldur bara áherslur samfélagsins. Þess samfélags sem á hennar tíma lagði ekki mikið uppúr móðurhlutverkinu. Tilgangurinn með hjónabandi á þeim tíma sem lýst er í bókum hennar er aö tryggja gagn- kvæma hagsmuni. Barneignir eru ekki inni í myndinni. Það má koma í veg fyr- ir slíkt með því að hjónin sofi í sitthvoru herberginu, eins og Jane Austen stakk einmitt uppá í bréfi til vinkonu sinnar. Bestu hjónaböndin eru meira að segja barnlaus. Barnleysi er kostur Frú Croft og aðmirállinn hennar í Persuasion njóta þess heiöurs að eiga eitt besta hjónabandið í öllum bókum Jane Austen. Hitt dæmið eru Gardiner hjónin í Hroka og hleypidómum. Croft hjónin eru samhent og samrýmd, sjálf- um sér nóg og hrifin hvort af öðru. Frú- in er sérlega sjálfstæö og skynsöm en það er annað en almennt má segja um þær mæður sem birtast í bókunum. Þau eru nefnilega barnlaus, sem hlýtur að vera kostur, því hvergi er minnst á að það sé galli. Þegar þau ætla að leigja hús Elliot fjölskyldunnar þá er það einmitt sérstaklega tekið fram að að- mírállinn sé „kvæntur maður og barn- laus: alveg eins og best verður á kosið." Og ef fyrirmyndarhjónabandið er barn- laust, ganga þá söguhetjur Jane Austen í hjónaband til þess að eignast börn? Svarið hlýtur að vera nei. Heimildaskrá * Austen, Jane (1986). Juvenilia of Jane Austen and Charlotte Bronte. Harmondsworth, Middlesex: Penguin Books. * Austen, Jane (1995). Northanger Abbey. Harm- ondsworth, Middlesex: Penguin Books. * Austen, Jane (1995). Sense and Sensibility. Harm- ondsworth, Middlesex: Penguin Books. * Austen, Jane (1996). Pride and Prejudiee. Harm- ondsworth, Middlesex: Penguin Books. * Austen, Jane (1996). Mansfield Park. Harm- ondsworth, Middlesex: Penguin Books. * Austen, Jane (1996). Emma. Harmondsworth, Middlesex: Penguin Books. * Austen, Jane (1985). Persuasion. Harmondsworth, Middlesex: Penguin Books. * Austen, Jane (1988). Hroki og hleypidómar. Þýöing Silja Aöalsteinsdóttir. Reykjavík: Mál og menning. * Bassib, D., M.Honey and M.M. Kaplan ed. "Repres- entations of Motherhood". New Haven: Yale Uni- versity Press. * de Beauvoir, Simone (1987). The Second Sex. Harmondsworth, Middlesex: Penguin Books. * Braidotti, Rosi: The Politics of Ontological Differ- ence." í Teresa Brennan ed. (1989). Between Fem- inism and Psychoanalysis. London and New York: Routledge. * Eyer, D.E. (1992). Construeting motherhood and in- fancy, í Mother-lnfant Bonding: A Scientific Fict- ion. New Haven: Yale University Press. * Moore, Henrietta (1988). "Feminism and Ant- hropology: The Story of a Relationship." í Femin- ism and Anthropology. Minneapolis: University of Minnesota Press. * Lynn Nead (1984): "The Magdalen in Modern Times: Thc Mythology of the Fallen Woman in Pre-Rap- haelite Painting." * í Rosemary Betterton ritstj. (1989). Looking On: Images of Femininity in the Visual Arts and Media. London: Pandora. * Thurer, Shari L. (1994). The Myths of Motherhood: How Culture Reinvents the Good Mother. Harm- ondsworth, Middlesex: Penguin Books, Ltd. 4 53
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.