Vera - 01.02.2002, Qupperneq 54

Vera - 01.02.2002, Qupperneq 54
Heilsa Arndís Guðmundsdóttir og Alda Ásgeirsdóttir Lungnakrabbamein Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskránni greindust 109 íslendingar að meðaltali á ári með lungnakrabbamein á árunum 1996-2000. Lungna- krabbamein er orðið næst al- gengasta krabbameinið bæði meðal karla og kvenna, en heldur er farið að draga úr ný- gengi þess. Yngstu sjúklingarn- ir eru á þrítugsaldri en tilfellum fjölgar með hækkandi aldri. Lungnakrabbamein á byrjunarstigi er oftast án einkenna en þegar æxli stækkar getur það þrengt að berkju og valdið slímmyndun sem leiðir til lungnabólgu. Þannig getur lungna- bólga verið fyrsta einkenni meinsins, sérstaklega hjá þeim sem hafa reykt lengi. Mæði og verkur fyrir brjósti, baki og síðu geta einnig verið einkenni lungnakrabbameins. Ári eftir greiningu eru þrír af hverjum tíu sem fá lungna- krabbamein enn á lífi en einn af hverj- um tíu eða tólf lifir fimm ár eða leng- ur. Horfur þessara sjúklinga hafa lítið breyst síðustu þrjátíu árin. Orsakir og aldur Með umfangsmiklum rannsóknum hef- ur verið sýnt fram á óyggjandi sam- band milli reykinga og krabbameins eða í um 85% tilfella. Stórreykingafólk fær aðallega sjúkdóminn. Þeir sem reykja lítið fá sjúkdóminn frekar en þeir sem reykja ekki. Rannsóknir á lungna- krabbameinssjúklingum sýna að litn- ingaskaði í lungnafrumum er mestur hjá þeim sem byrja ungir að reykja (John Wiencke, Journal of the National Cancer Institute. Vol. 91, april, 2001) „Til þess að losna við að kafna hægt úr illri meinsend í lungunum verða menn að hætta að reykja" (Niels Dungal, 1950). Winston maðurinn Hinn heimsfrægi kvikmyndaleikari og fyrrverandi sígarettufyrirsæta, Alan Landers, hefur fengið krabbamein í bæði lungu, gengist undir hjartaað- gerð, hlotið taugaskemmdir og skaddað raddbönd, auk þess þjáist hann af lungnaþembu. Landers kennir tó- baksneyslu um tjón sitt. Þegar hann kom til íslands í febrúar 2001 fundaði hann með framhaldsskólanemum til þess að upplýsa þá um hættuna af völdum reykinga og hvernig þeir geti séð í gegnum þá blekkingarmynd sem tóbaksfyrirtækin draga upp af reyking- um. Landers starfaði um áralangt skeið sem fyrirsæta fyrir Winston-tóbaksfyr- irtækið og vann að markaðsstarfi sem beindist að ungu fólki. Hann er einn af fáum sígarettufyrirsætum frá sjöunda og áttunda áratugnum sem eru enn á lífi. Dregur úr lungnakrabbameini Eftir því sem færri reykja þeim mun meira dregur úr lungnakrabbameini. Nýjar tölur frá krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins benda til þess að dregið hafi úr lungnakrabbameini bæði hjá konum og körlum. Hér á landi var nýgengi hjá konum með því hæsta sem þekkist, en hefur lækkað úr 32 á hverj- ar 100 þúsund konur niður í 27. Þar sem nýgengi lungnakrabbameins tekur 10 til 20 ár að myndast er skýringanna að leita nokkra áratugi aftur í tímann. En eins og prófessor Richard Peto í Oxford háskóla sagði þá eru „mörg þús- Alan Landers, Winston maðurinn und miðaldra Bretar á lífi í dag vegna þess að þeir hættu að reykja." Aldrei of seint í nýlegri rannsókn (Diane Feskanich, Sc.D., Journal of the National Cancer Institute. Vol. 92, nóv. 2000) kemur frani að konur sem borða mikið grænmeti fá síður lungnakrabbamein en aðrar kon- ur, sérstaklega grænmeti af kross- blómaætt eins og t.d. brokkóli, rósakál, einnig sítrusávexti, vatnsmelónur, greipaldin, tómata, salatjurtir, spínat, gulrætur o.fl. Um það bil 15 árum eftir að fólk hættir að reykja eru líkurnar á því að fá sjúkdóminn orðnar svipaðar og hjá þeim sem aldrei hafa reykt. Einnig er talið víst að mengun frá tó- baksreykingum á heimilum og vinnu- stöðum (óbeinar reykingar) geti valdið lungnakrabbameini hjá þeim sem ekki reykja. Lungnakrabbamein er eitt af fáum krabbameinum sem við getum komið í veg fyrir - því er mikilvægt að snúast gegn orsakavaldinum og hvetja fólk til reykleysis. Þekkt fólk sem hefur fengið lungnakrabbamein: George Harrison Betty Grable Carl Wilson Duke Ellington John Wayne Lee Remick Melina Mercouri Robert Mitchum Steve McQueen Václav Havel Walt Disney Wayne McLaren Winston maðurinn 54
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.