Vera - 01.02.2002, Side 57

Vera - 01.02.2002, Side 57
Á embættisferli sínum geröi Robles róttækar breytingar til hins betra á lögum er snerta málefni kvenna og virti aö vettugi gamalgróið karlaveldi stjórnmálanna. 31 árs háskólanemi. „Það er sagt að PRD (Party of the Democratic Revolution - flokkur Robles) hafi sigrað í borgarstjórakosningunum vegna alls þess sem hún hefur áorkað í borginni." Stjórnmálaáhugi Robles fékk byr undir báða vængi þegar hún stundaði nám við National Autonomous háskól- ann í Mexíkó (UNAM), eða eins og hún segir: „Eg var umkringd kennurum með róttækar stjórnmálaskoðanir. Við fylgdumst með uppreisn kommúnista í Kína og Kúbu og þróun mála í Chile og Rf rnitt tók gagngerum breytingum." í UNAM kynntist hún fyrrverandi hag- fræðiprófessornum Julio Moguel, sem síðar varð eiginmaður hennar og faðir dótturinnar Mariönu. Eftir að hafa lok- 'ö námi þar tók hún M.A. gráðu í byggðaþróun (rural developement) við Autonomous Metropolitan háskólann, en gerðist síðan kennari við UNAM þar sem hún varð einnig frumkvöðull að stofnun stéttarfélags. „Það voru ekki til neinir samningar við konur svo ég hóf aróður fyrir því innan háskólans, þannig að það var einniitt þar sem ég tók að berjast fyrir réttindum kvenna. E9 kom af vinstri væng stjórnmálanna, hafði tengsl við kvennahreyfinguna og barðist fyrir réttindum kvenna á þeirra ei9in forsendum." Um þetta leyti kynntist hún Uuautémoc Cárdenas, syni Lázaro Cár- denas, sem var forseti Mexíkó 1934 - 1939 og naut mikilla vinsælda. Árið 1988 bauð Cárdenas yngri sig fram til forseta fy ri r demókrataflokkinn (National Democratic Party). Roblesvar með þeim fyrstu úr hópi róttækra vinstrimanna sem studdi framboð hans og hún rak af kappi áróður fyrir hon- um, einkum innan háskólans. Cárdenas tapaði í kosningunum en margir telja að um kosningasvindl hafi verið að ræða og árið eftir stofnaði hann ásamt Robles og fleirum nýjan stjórnmála- flokk, PRD. Árið 1997 skipulagði hún grasrótarsamtök sem talin eru hafa haft úrslitaáhrif á yfirgnæfandi sigur Cárdenas í fyrstu borgarstjórakosning- unum í Mexíkóborg, en áður hafði for- setinn skipað í embættiö. Cárdenas skipaði Robles í embætti borgarritara, næstæðsta embættið innan borgar- stjórnarinnar, og þegar hann ákvað að bjóða sig fram til forseta bað hann hana að taka við borgarstjórastólnum. „Sem borgarritari var ég vel í stakk búin til að taka við embættinu en sú staðreynd að ég er kona þýddi að það var vafasamt hvort mér myndi hlotnast það." En Robles fékk flest atkvæði nefndarinnar sem um málið fjallaði og 29. september 1999 varð hún fyrsta konan til að gegna embætti borgar- stjóra Mexíkóborgar. „Konur stöðvuðu mig á götu, föðmuðu mig og sögðust standa með mér, en karlar veltu fyrir sér hvort ég réði við ábyrgðina." Sem borgarstjóri tók Robles á málum sem flestir karlmenn hefðu veigrað sér við og upp- skar fyrir þaö virðingu og þakk- læti. í febrúar árið 2000, þegar mót- mæli nemenda við UNAM hafði staðið í nærri heilt ár, réðst alríkislögreglan inn á háskólasvæðið og handtók mörg hundruð mótmælendur. Robles kom fram í sjónvarpi þar sem hún fordæmdi árásina og krafðist þess að mótmæl- 57

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.