Vera - 01.08.2002, Page 61
Stebba: Eitt sem hefur breyst mikið síðustu árin eru
samgöngumál. Hór var Oddsskarð ekki opið svo dög-
um skipti og allar vörur komu sjóleiðis.
Olína: Við fengum Moggann frá þriðjudegi til sunnu-
dags í einum bunka.
Stebba: Það er mikill munur á þessu núna, ekki endi-
lega með tilkomu jarðganga heldur er vegunum bara
haldið opnum. Við sameiningu sveitarfélaga vinnur
fólk í auknum mæli í næsta bæ.
Finnst ykkur konur á lcmdsbyggðinni hafa minni
tækifæri í atvinnulífinu en menn?
Olína: Við Stebba erum sjómannskonur...
Stebba: ...sem gerir okkur að framkvæmdastjórum
heimilisins sem hafa alla ábyrgðina oft á tíðum. En
að eiga góða foreldra og tengdaforeldra hefur verið
lykillinn að því að ég hef fengið að njóta mín. Ég færi
ekki út og suður í blakferðir sem sjómannskona
nema ég hefði þetta.
En er þá ekki erfitt að fá karlinn svo í land og vera
allt í einu tvö við stjórnvölinn?
Stebba: Nei, ekki endilega. f góðu hjónabandi ræðir
fólk hlutina. Strákarnir taka við matargerð og þrifum
þegar þeir koma í land en eru ekkert að púla endi-
lega. Þeir taka ekki við ábyrgðinni heldur eru bara
með.
Olína: Það er kannski helst að það verði ruglingur
þar sem við erum vanar að láta ábyrgðina yfir á þá,
svo kemur maður heim og upp-
götvar að hvorugt hefur látið
börnin læra heima. Eg er vön að
gera allt ein og held að hann
hafi tekið yfir.
Stebba: Konur úti á landi hafa
kannski ekki aðgang að þessum
mörgu störfum og það getur ver-
ið heilmikil barátta. Það er
hugsanlega minna um að báðir
aðilar sóu í miklu framapoti og
mikið af sjómannskonum eru
því ekki í stjórnunarstöðum.
Það er erfitt að taka að sér
stjórnun og sjá um heimilið um
leið.
Hrönn: Það er minna hér um
störf sem krefjast mikillar
menntunar. Slík störf skapast í
kringum þjónustu en reyndar
eru fyrirtæki eins og Kaupþing
farin að opna hórna með til-
komu Netsins.
Stebba: Talandi um Netið, sí-
menntun og fjarnám sem fer í
gegnum það er frábært fyrir
landsbyggðarfólk og breyting-
arnar eru eiginlega meiri fyrir
konur.
Stebba, sjómannskona
í Neskaupstað.
Ólína, sjómannskona og
háskólanemi á Akureyri.
Hrönn, rekstrarfræðingur og
fyrrum sjókona í Neskaupstað.
Smábrauðin
sem krydda tilveruna
- nýjar og spennandi bragðtegundir
hvítlaukur... cheddarostur
Nýbakaö brauö þegar þér hentar