Vera - 01.10.2003, Qupperneq 69
Monnkyns- og listfræði með
femfnískum gleraugum
DA VINCI LYKILLINN
Dan Brown.
Ásta S. Guðbjartsdóttir þýddi.
Bjartur, 2003
Allir elska samsæriskenningar, segir prófess-
orinn Robert Langdon í hinum umtalaða Da
Vinci lykli sem nýverið kom út á íslensku. Og
það er víst, og það veit höfundurinn Dan
Brown líka; í það minnsta er það forsenda
þess að bókmenntategundin „reyfari" gangi upp, rétt eins og að ævin-
týramynd þarf á sínum vondu köllum að halda. Einn daginn verður fólk
þó þreytt á Indiana Jones, hefur ekki tíma fyrir afþreyingu sem engu
ögrar eða bætir við í heilabúið. Það er einhver auka-galdur sem Da
Vinci lykillinn hefur sem gerir það að verkum að lestur á henni virðist
jafnvel afsaka nemendur sem mæta of seint í tíma, virtir bókarýnendur
fullyrða að í henni felist efniviður í margar doktorsritgerðir o.s.frv.
„Skyldulesning" læturfólkjafnvel hafa eftir sér-og það ætla ég að gera
hér, með ákveðnum fyrirvara þó því ævintýrið hleypur vitanlega með
fólk í gönur og ekki viljum við að börnin okkar stökkvi útum glugga
með hatt á höfði þó þau hafi lesið æðislegan kafla í Harry Potter.
Margur hefur fótum troðið helgisögnina um kaleikinn sem Jesú á að
hafa byrlað lærlingunum blóð sitt í á skírdag og hefur leitin að þeirri
sögusögn verið eitt lífseigasta yrkisefni sem um getur. Og þó Da Vinci
lykillinn sé fjarlægt tilbrigði við stef á þeim nótum þá er það að mínu
mati fyrst og fremst listilegur dulbúningur fyrir hraðnámskeið í mann-
kyns- og listfræðum með femínískum gleraugum. Vandinn við bókina
er sá að sökum framúrskarandi framsetningar á „nýjum" staðreyndum,
verður lesandinn svo opinmynntur að nánast öllu sem bókin setur
fram er trúað sem nýju neti. Sagnfræðiblærinn Ijær sögunni töfraljóma
svo lesandinn getur varla lagt frá sér bókina; hann er við það að kom-
ast að einhverju algjörlega nýju í mannkynssögunni! (Og vissulega
lærist margt, sé viðkomandi ekki þess útlærðari i málefnum gyðjunnar
og guðdómsins.) Ég verð þó að viðurkenna að eina lexíu lærði ég öðr-
um fremur við lestur bókarinnar; mikið getur maður látið leiða sig
áfram ef efniviðurinn er réttur; maður lætur jafnvel endurtekningasam-
an, þurran og beinlínis forheimskandi texta sem ferskan sumarþyt um
augun fljóta því mann langar svo að leyndarmálið komist upp!
Hvaða leyndarmál? Er þetta sögulegt afrek? Bókmenntir á heims-
mælikvarða? Jah, hversvegna les maður bækur? Sumar bækur opna
manni heima, nýjar víddir ímyndunar og skynjunar. Hversvegna er t.d.
Hundrað ára einsemd einhverskonar hvirfilbylur á endanum sem víkk-
ar heiminn og opnar á þér hvirfilinn? Hvað er það við Meistarann og
Margarítu sem víkkar sýn manns á kristindóminn? Ekki eru þetta
spennusögur í likingu við Da Vinci lykilinn - og hafa allt öðruvísi áhrif;
aftur á móti er í þeirri bók rótað upp i mannkynssögunni sem við höld-
um okkur þekkja og þar með þeirri sýn sem margur hefur á heiminn -
á kirkjuna, trúarbrögðin, listina. Á karllægan heim þar sem hin mikla
gyðja hefur lúrt undir, ofsótt á stundum en upphafin líka - þegar að er
gáð. Móðir Náttúra allra lista birtist til að mynda í þessari bók í hlutverki
Maríu Magdalenu sem, nota bene, kapella nokkur í Frakklandi tilkynnti
fyrir löngu að hvíldi í skauti sínu. Og sorrý, krossferðirnar voru bissness
þá eins og nú og kaleikurinn uppspuni munka til réttlætingar. Ekkert
Roslin Plantard Saint-Clair kjaftæði, plís. En vel að verki staðið.
Leikmannaskóli
\ Þjóðkir-kjunnar
Hin vinsælu sjálfstyrkingarnámskeið
• Konur eru konum bestar i janúar
Kennari er séra Petrína Mjöll Jóhannesdóttir
• Konur eru konum bestar II ífebrúar
Kennari er séra Petrína Mjöll Jóhannesdóttir
Nánari upplýsingar hjá Leikmannaskóla kirkjunnar
sími 535 1500 eða á vef skólans,
www.kirkjan.is/leikmannaskoli
£F
w,
Eiriar Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 • Símar: 520 7901 & 520 7900 • www.ef.is
EXPRESSO - CAPPUCCINO
kaffivélarnar mala og laga alla vin-
sælustu kaffidrykkina á augabragöi
eins og á bestu kaffihúsum.
Úrval fylgihluta
SUPER IDEA
vera / 5-6. tbl. / 2003 / 69
Arnoldur Móni Finnsson