Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1924, Blaðsíða 116
4. Fita i húðinni. Mörgum mönnum þykir mein að
því að hafa mjög fituborna húð. Albragðsráð við
þessu er talið, að áfir séu. Pað er svo um marga
tnenn, að fitukirtlarnir í andlitinu gefa frá sér allt of
mikið filuefni, svo að litarhátturinn getur ekki fengið
á sig þann blæ, sem fegurstur þykir. En með þessu
einfalda ráði, áfunum, geta menn venjutega skjótt
ráðið bót á þessu meini. Mönnum er ráðið til þess
að strjúka á hverju kveldi, áður en menn Ieggjast til
hvilu, yfir andlitið með baðmullarrýju, dýfðri ofan
í nýjar áfir, og láta síðan áfirnar þorna inn i húðina.
Ekki má þvo þær af fyrr en næsta morgun. Petta sé
ítrekað daglega um hríð, þangað til árangurs verður
vart. Auk þess að áfirnar draga úr fitu húðarinnar,
gera þær einnig litarháttinn hreinan.
5. Arfi og illgresi eru hinar mestu meinvættir viða
og til mikillar óprýði í hlaðvörpum, húsagörðum og
jufnvel í borgum í stéttum með götum tram. í París-
arborg er þetta ráð notað til útrýmingar illgresi. í
járnpotti miklum er soðið 100 pund vatns saman við
20 pund af Ieskjuðu kalki og 2 pund af hreinsuðum
brennisteini. Petta er látið standa stutta stund. Síðan
er rennt af pottinum, leðjan skilin eftir, en vatns-
blandið, sem þynna má eftir vild, notað til þess að
stökkva á stéttirnar eða aðra staði, þar sem illgresið
vex.
6. Ullarklœðnuðum hæltir til að þófna fljótt. Gott
ráð til pess að aftra því þykir vera að þvo þá úr sápu
í eins heitu vatni og unnt er, og er hreinir eru, að
skola þá þegar úr köldu vatni, breiða úr þeim og
hengja síðan upp til þerris.
7. A/engiog œvilengd. Kunnur danskur hagfræðingur,
Har. Westergaard prófessor, reiknaði það út einu
sinni eftir skýrslum lífsábyrgðarfélaga, að áfengis-
bindindismenn í lélögunum næðu hærra meðalaldri
en hinir, er ekki væru bindindismenn, svo að næmi
því, að fjórðungi meiri dánarhætta hvíldi á neyt-
(102)