Freyr - 01.04.2003, Blaðsíða 8
Heyrúllurnar eru fluttar á dráttarvél inn i hlöðu, á lyftigálga vélarinnar er hníf-
ur sem klýfur þær I tvennt og siðan er heyið flutt með talíu á hlaupaketti inn
á garðana.
Það hefur gjaman verið talið hér
22. maí hvað margt er eftir óborið
og þá er burður yfirleitt rúmlega
hálfnaður.
Við gefum ánum engan fóður-
bæti fyrr en í apríl og ekki á fengi-
tíð. Við rýjum líka aftur í mars og
ég geri það sjálfur núorðið..
Sauðburður fer svo allur fram á
húsi. Við setjum upp einstak-
lingsstíur í hlöðunni fyrir sauð-
burðinn. Æmar bera yfirleitt inni
í krónni en fara síðan beint í stí-
umar. Þar em lömbin mörkuð.
Þaðan fara ær og lömb í ijölbýli
eftir 1-2 daga og svo út á tún
u.þ.b. viku frá burði.
Eitlhvað þarf að venja undir?
Já, það skiptir tugum. Það er
nokkuð mikið af þrílembum og
jafnvel Qórlembum og eins em
allmargar veturgamlar ær tví-
lembdar. Við sitjum því um allar
einlembumar og reynum að nýta
alla möguleika til að venja undir.
Tekst þci að róðstafa öllum
aukalömbum?
Ólöf Björg: Já nánast, við höf-
um ekki verið með heimalninga
síðan við tókum við, jú reyndar
einn. Ég ólst upp við það að móð-
ir mín hvatti okkur Svanborgu
systur til að venja undir því að
hún vildi ekki fá heimalninga. Þar
vandist ég á það að vera stanslaust
að venja undir á sauðburði og nota
við það allar hugsanlegar aðferðir
sem virka.
Hvert fara lambærnar þegar
þœr fara út?
Meðan gróðurinn er að ná sér á
strik þá notum við smærri hólf,
þar sem er svolítil beit en gefum
með. Þegar líður á sauðburð fara
æmar hins vegar beint út á tún,
ýmist reknar eða keyrðar.
Vegna þess hve þessi túnstykki
em stór þá er mikilvægt að hafa
aldur á lömbunum sem líkastan á
hverju sfykki. Það er mun léttara
að reka út af túnunum þegar
lömbin em nokkuð svipuð í aldri,
það villist þá síður undan.
Dreifirféð sér jafnt ú heiðina?
Nei, það er ótrúlegt hvað fé
okkar heldur sig saman á sumar-
beit. Sem dæmi get ég nefnt að
við smöluðum aðeins fyrir hefð-
bundnar leitir sl. haust vegna
þess hve kálið var orðið fallegt
og tilbúið til beitar. Við fómm
hér rétt upp fyrir og náðum á 4.
hundrað lömbum ásamt mæðmm
og það vom ekki með því fé
nema um 10 kindur frá öðmm
bæjum.
Smalið þið allt ú hestum?
Já, mest allt, en þó ekki Ar-
mannsfellið, þar fara menn gang-
andi.
Við eigum ekki í vandræðum
með að fá fólk til að smala fyrir
okkur. Við eigum bæði stórar íjöl-
skyldur og svo er fólk beinlínis að
spyrjast fyrir um það að fá að
smala. Þetta er líka svo þægilegt
að alltaf er komið lieim eftir
v
18 - Freyr 3/2003