Freyr - 01.04.2003, Blaðsíða 54
Tilraunastarfið á Hesti
2002
Tilraunastarf í sauðfjár-
rækt hefur verið stundað
af auknum krafti að
undanförnu, með myndarlegri
styrkvcitingu til rannsókna í
sauðtjárrækt sem kemur af
þróunarfé búvörusamnings í
sauðfjárrækt. Gerð hefur verið
áætlun til þriggja ára frá og
með 2002 um verkefni á sviði
sauðfjárræktar í samvinnu við
fagráð í sauðfjárrækt. Kjarni
þessa starfs er á tilraunastöð-
inni á Hesti og hafa verkefnin
verið tengd við nám háskóla-
nema við LBH, sem vinna að
lokaverkefnum á sviði sauð-
fjárræktar.
I tilraununum á Hesti er meðal
annars lögð áhersla á að þróa hag-
kvæmar aðferðir til að ala lömb til
slátrunar utan hefðbundins slátur-
tíma. Tilgangurinn með því að
lengja sláturtímann er einkum:
* að bæta nýtingu sláturhúsa og
lækka þar með sláturkostnað
* að tryggja framboð á fersku
dilkakjöti yfír stærri hluta árs-
ins en áður, bæði á innanlands-
markaði og til útflutnings
* að jafna gæði sláturíjár, þannig
að lömb séu alin til hæfílegs
þroska í stað þess að slátra öllu
á sama tíma
Jafnframt er unnið að viðamiklu
verkefni varðandi gólfgerðir í
ljárhúsum með tilliti til endingar
og hagkvæmni mismunandi gólf-
efna og fylgst er með þrifum og
heilsufari fjárins.
Hér verður gerð stutt grein fyrir
þeim rannsóknaverkefnum sem
unnið er að í þessari áætlun á
Hesti og greint ffá fyrstu niður-
stöðum þar sem þess er kostur. I
öllum tilvikum er um að ræða nið-
urstöður úr fýrstu áföngum verk-
efha sem fyrirhugað er að halda
áfram næstu tvö ár.
Haustbötun og innieldi
SLÁTURLAMBA
Þetta verkefni hófst í raun með
tilraun með lýsingu hjá lömbum í
innieldi, sem gerð var veturinn
2001-2002. í þá tilraun voru valin
64 smálömb að hausti, sem voru
bötuð á grænfóðri í rúman mánuð
og síðan alin inni í 14 vikur. Helm-
ingur lambanna var hafður i ljósi í
16 tíma og myrkri 8 tíma á sólar-
hring allan fóðrunartímann en
hinn helmingurinn bjó við náttúru-
lega daglengd. Lömbin fengu hey
að vild og helmingur lambanna í
hvorri ljósameðferð fékk kjam-
fóðurblöndu með heyinu.
Helstu niðurstöður vom þær að
lömbin, sem vom í 16 tima ljósi,
þyngdust töluvert meira en þau
sem höfðu náttúrlega daglengd.
Lömbin í ljósahópnum vom u.þ.b.
5 kg þyngri á fæti fyrir slátmn.
Munur í vexti kom þó ekki fram
fyrr en seint í desember, eftir um 6
vikna fóðmn. Nokkur kynjamun-
ur kom fram þar sem gelt hrút-
lömb uxu meira en gimbrar í báð-
um meðferðum en gimbrarnar
vom hins vegar töluvert feitari.
Þungamunur skýrðist fyrst og
fremst af meira gróffóðuráti í
ljósahópnum en hins vegar var
kjötprósenta lakari þar, þannig að
fallþungaaukning var hlutfallslega
minni en aukning í lifandi þunga.
Sigríður Jóhannesdóttir, nemandi
eftir
Emmu Eyþórsdóttur,
Jóhannes Sveinbjörnnsson,
Eyjólf Kristin Örnólfsson,
og
Torfa Jóhannesson,
Rannsóknastonfún
landbúnaðarins og
Landbúnaðar-
háskólanum
á Hvanneyri
við LBH, vinnur að heildampp-
gjöri tilraunarinnar sem lokaverk-
efni til BS prófs nú í vor.
Haustið 2002 var gerð tilraun
með haustbötun og innifóðrun
lamba til slátmnar í nóvember og
desember. Markmið tilraunarinn-
ar var að kanna árangur mismun-
andi meðferðar lamba sem ætluð
em til slátmnar fyrir jól, bæði með
tilliti til vaxtar lambanna og hag-
kvæmni framleiðslunnar. í þessa
tilraun vom valin lömb sem komu
fremur létt af Qalli og þurftu á
bötun að halda til að ná ákjósan-
legum þroska fyrir slátmn.
Meðferðarhópar vom sex og 16
til 17 lömb í hóp. Um þriðjungur
lambanna vom geltir hrútar og af-
gangurinn gimbrar og var kynjun-
um jafnað á hópana. Einum hóp
var slátrað á venjulegum tíma í
byrjun október (A - viðmiðun) en
allir hinir hópamir settir á kálbeit
í rúman mánuð eða til 7. nóvemb-
er. Þá var B hóp slátrað en fjórir
hópar teknir inn á heyfóðmn í 3
eða 6 vikur. Tveir hópar (D og F)
fengu kjamfóður (320 g bygg og
| 54 - Freyr 3/2003