Freyr - 01.04.2003, Blaðsíða 58
Nokkur atriði um gæða-
stýringu í sauðfjárrækt
Með gæðastýrðri sauð-
fjárframleiðslu er átt
við framleiðslu sauð-
fjárafurða samkvæmt gæða-
kerfi Bændasamtaka Islands
sem landbúnaðarráðherra stað-
festir. Gæðakerfið nær til eftir-
talinna þátta: Landnota, að-
búnaðar og umhverfis, sauð-
tjárskýrsluhalds, jarðræktar,
fóðrunar, heilsufars og lyfja-
notkunar. Gæðakerfið byggist á
að skjalfesta framleiðsluaðferð-
ir og framleiðsluaðstæður.
Framkvæmdanefnd búvöru-
samninga hefúr yfirumsjón með
gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu
en er heimilt að leita aðstoðar hjá
öðrum aðilum varðandi tiltekna
þætti gæðastýringarinnar.
Umsóknir
Framleiðandi, sem óskar að
taka upp gæðastýrða sauðíjár-
framleiðslu, sendir skriflega um-
sókn til búnaðarsambands á því
svæði þar sem framleiðslan fer
fram. Umsóknareyðublöð er hægt
að nálgast hjá búnaðarsambönd-
um og/eða á vef Bændasamtaka
íslands (bondi.is). Umsóknum
þarf að skila inn fyrir 30. júní
2003 ef framleiðandi óskar eftir
álagsgreiðslum á næsta ári (2004).
Eftirfarandi upplýsingar þurfa
að koma fram í umsókninni:
a) Nafn, kennitala og lögheimili
ffamleiðanda.
b) Jörð eða jarðir sem framleið-
andi nytjar.
c) Beitiland viðkomandi fram-
leiðanda, sem hann hefúr til af-
nota, þar með talið heimaland,
upprekstrarheimaland og af-
réttur. Tilgreina skal eins og
kostur er þær jarðir sem eiga
land innan upprekstrarheima-
lands (aðliggjandi jarðir). Jafn-
framt þurfa að koma fram þau
friðuðu svæði sem eru innan
jarðar, s.s. skógræktargirðingar
og friðuð uppgræðslusvæði.
d) Fjöldi vetrarfóðraðs sauðfjár,
hrossa, nautgripa og geita, sem
framleiðandi beitir á úthaga,
þar með talið gripir í haga-
göngu. Jafnframt þarf að til-
greina beitartíma og fjölda eig-
in búfjár í heimalandi, upp-
rekstrarheimalandi og á afrétti.
e) Upplýsingar um aðra aðila sem
nýta beitarland framleiðanda.
Búnaðarsambönd fara yfir um-
sóknir og senda þær til Fram-
kvæmdanefndar búvörusamninga.
Hún heldur skrá yfir umsækjendur
og aðila sem fengið hafa staðfest
að þeir uppfylli skilyrði um gæða-
stýrða sauðfjárframleiðslu. Bún-
aðarsambönd senda Landgræðslu
rikisins allar upplýsingar úr um-
sóknum um beitamýtingu ein-
stakra framleiðenda.
Aðili frá hveijum ffamleiðenda
þarf að sækja undirbúningsnám-
skeið til að taka upp gæðastýrða
sauðfjárffamleiðslu. Sami aðili þarf
að sækja báða daga námskeiðsins.
Gæðahandbók
Framleiðendur sem óska eftir að
taka upp gæðastýrða sauðfjárffam-
leiðslu skulu skrá í gæðahandbók
upplýsingar um ffamleiðsluaðferðir
sínar, aðstæður og önnur atriði sam-
kvæmt ákvæðum reglugerðar um
gæðastýrða sauðfjárframleiðslu.
Skráning skal hefjast í síðasta lagi
1. janúar 2004 eða fyrsta dag þess
eftir
Arna B. Bragason
og
Þröst Aðalbjarnarson,
Landbúnaðar-
háskólanum
á Hvanneyri
árs sem ffamleiðandi tekur upp
gæðastýrða sauðfjárffamleiðslu.
Bændasamtök Islands bera
ábyrgð á útgáfú, viðhaldi og dreif-
ingu gæðahandbókar. I gæða-
handbókinni eru ítarlegar leið-
beiningar um hvaða upplýsingar
eigi að skrá og hvemig það skuli
gert.
Búfjáreftirlitsmenn annast ár-
legt eftirlit með skráningum í
gæðahandbókina. Uppfylli ein-
stakir framleiðendur ekki þau
skilyrði um gæðastýringu, sem
búQáreftirlitsmenn hafa eftirlit
með, skal veittur að hámarki fjög-
urra vikna frestur til úrbóta. Frest-
ur til úrbóta skal þó ekki veittur ef
um vísvitandi ranga skráningu eða
upplýsingagjöf er að ræða.
Bændasamtök íslands skulu til-
kynna framkvæmdanefnd búvöm-
samninga fyrir 1. júlí ár hvert
hvaða framleiðendur hafi ekki
staðist eftirlit með skráningum í
gæðahandbókina og lögbundið
158 - Freyr 3/2003