Freyr - 01.04.2003, Blaðsíða 57
gera það að verkum að nauðsyn-
legt er fyrir bændur að geta treyst
áreiðanleika sauðijánncrkja. All-
margar gerðir eymamerkja fyrir
sauðfé eru á markaði hérlendis og
aldrei hefur farið fram skipuleg
prófun á mismunandi gerðum
merkja og endingu þeirra. Skoð-
anir bænda á gæðum merkja eru
misjafnar og ástæða er til að reyna
að meta hvort munur sé milli
merkjagerða þannig að hægt sé að
leiðbeina um hvaða merki hafí
fullnægjandi endingu. A síðasta
ári var hafín prófun mismunandi
eymamerkja í sauðfé á Hesti í
þeim tilgangi að kanna áreiðan-
leika og endingu merkjanna.
Merki af mismunandi gerð er
sett í vinstra eyra lamba að vori og
borið saman við Bjargsmerki frá
plastiðjunni Bjargi, Iðjulundi, á
Akureyri í hægra eyra lambanna.
Metið er hversu auðvelt og fljót-
legt er að setja merkin í lömbin,
fylgst er með tíðni merkjataps og
hversu læsileg merkin eru að
hausti. Einnig er kannað hvort
hægt sé að endumýta merkin.
Svipuð athugun er gerð á merkj-
um fyrir fullorðið fé sem sett em í
gemlinga.
Merkjagerðimar, sem prófaðar
voru vorið 2002 i lömb, eru:
Snapp tag og Dalesman tagg-mini
ífá Ritchey sem Vélar og þjónusta
flytur inn og Dalton merki sem
Þór hf. flytur inn. 200 númer vom
notuð af hverri gerð. Vorið 2003
verður svo bætt við einni gerð enn
en það em Ewe babe tag frá ROX-
ANiD sem Asta F. Flosadóttir
flytur inn. Hafa ber í huga að fleiri
gerðir merkja em til en þetta em
þær helstu sem notaðar em hér-
lendis.
Helstu niðurstöður síðasta
sumars voru þær að í flestum til-
fellum var fljótlegt að setja merk-
in í eyru lambanna og auðvelt að
lesa á þau. Sérstaklega er þægi-
iegt að setja Dalton og Dalesman
tagg-mini merkin í eymn. Snapp
tag merkin þarf að setja á ákveð-
inn hátt í töngina sem tekur held-
ur lengri tíma en fyrir hin merk-
in.
Fylgst var með því hvort númer
væri horfið við vigtun lamba 30.
júní fyrir fjallrekstur og aftur að
hausti(2. október). 30. júní vant-
aði 3 Dalton merki, 2 Dalesman-
mini merki og 1 Snapp tag merki.
Að hausti vantaði svo til viðbótar
8 Dalton merki, 3 Snapp tag merki
og 2 Dalesman-mini merki. Það
týndust því 11 Dalton merki eða
5,5 % og 4 merki af hinum gerð-
unum tveimur eða 2 %.
Það ber að hafa í huga að merk-
in voru sett í með hlaupandi núm-
emm eftir burði ánna og þess
vegna röðuðust kollótt lömb al-
veg tilviljanakennt á númeragerð-
imar. Dalton og Dalesman-mini
merkin virtust týnast meira úr
kollóttum lömbum en hymdum
en Snapp tag merkin héldust vel í
kollóttu lömbunum. Sérstaklega
var áhugavert að sjá að svo virtist
sem það skipti máli hvar lömbin
vom yfír sumarið. Þannig vantaði
5 Dalton og 2 Dalesman-mini
merki í lömb sem vom heima við
í afgirtu hólfí. Ein líklegasta
ástæða þessa er sú að lömbin
troða hausnum í gegnum girð-
ingamöskvana og rífa merkin úr.
Þetta gerist ekki með Snapp tag
merkin þar sem þau em hringur
en á móti kemur að þau snúast
stundum upp á eyrað og getur
skemmt enda þess. Þetta gæti ver-
ið slæmt þar sem er yfírmark eins
og heilrifað eða sneiðrifað svo
dæmi sé nefnt.
Afkvæmarannsóknir á Hesti 2002
Frh. af bls. 53
Hylur 105 var valinn á sæð-
ingarstöð úr þessum hrútum og
var settur á dætrahópur undan
honum, auk Strengs 106 og
Loppa 104. Strengur var með
bestu holdfyllinguna á skrokk-
um, eins og áður sagði, auk þess
sem hann er ekki að gefa feitt.
Hann er með hæstu lærastig og
næst hæstu frampartsstigun. Að
auki eru tveir lambhrútar í próf-
un fyrir haustið 2003 undan
Streng. Sama má segja um
Loppa. Hann er faðir tveggja
hrúta sem eru í prófun fyrir
næsta ár. Auk þess var hann yfír
meðaltali í öllum mælingum og
stigunum nema fítu á síðu.
Þegar farið var að velja aðrar
ásetningsgimbrar komu all margar
gimbar undan Buna 102 í úrvalið.
Það kemur kannski á óvart, þegar
litið er á holdfyllinginguna ein-
göngu, en þegar grannt er skoðað
er hann með mjög gott vefjahlut-
fall lamba, auk þess sem hann er
yfír meðaltali fyrir lærastig, óm-
vöðva og með góða lögun bak-
vöðva. Athuga ber einnig að í töflu
2 eru einungis hrútlömbin notuð til
útreikninga og voru gimbrar und-
an Buna að mælast vel og með gott
átak.
NÆSTI VETUR
Fyrir haustið 2003 eru 10 lamb-
hrútar í afkvæmaprófún og fá þeir
heldur stærri hópa en oft áður. I
þessum 10 hrúta hópi er m.a. einn
sæðishrútur undan Túla 98-858 og
einn aðfenginn frá Hauki Engil-
bertssyni á Vatnsenda í Skorradal.
Það verður fróðlegt að fylgjast
með hvort þessir hrútar, auki
breytileika lambahópsins næsta
haust á einhvem hátt.
Freyr 3/2003 - 571