Freyr - 01.04.2003, Blaðsíða 21
sermi fyrir lömbin í tæka tíð girð-
ir að mestu fyrir sjúkdóminn.
Flosnýrnaveiki
(garnaeitrun)
Orsök: Flosnýmaveiki er ná-
skyld lambablóðsótt (D-stofn af
C. perfringens), en tekur sjaldan
lömb yngri en viku gömul, al-
gengast er að 2-4 vikna lömb
veikist. Sjúkdómur þessi er svo
bráður að lamb, sem var frískt,
finnst oft dautt eftir 2-3 klukku-
stundir. Þegar sjúkdómurinn er
svo bráður em krampar mest áber-
andi.
Einkenni: Lömbin hendast um,
reigja hausinn aftur og sprikla
með fótunum. Stundum fer sjúk-
dómurinn ekki svona geyst; lömb-
in þembast upp, froða kemur í
munnvik, þau hafa þrautir, standa
og leggjast á víxl, fá krampaflog,
en geta lifað dægmm saman. Ein-
kenni við kmfningu em svipuð og
við lambablóðsótt en nýmn em
oft með blæðingum, áberandi lin
og halda ekki lögun sinni, ef
nýmahjúpurinn er tekinn af. Þar
af er nafnið dregið. Blæðingar á
og í hjarta em algengar. Sykur í
þvagi er algengt einkenni.
Aðgerðir: Bólusetning ánna eða
sermi gefið lömbunum í tæka tíð
girðir að mestu fýrir sjúkdóminn.
Garnablóðsótt
Orsök: Gamablóðsótt er einnig
náskyld lambablóðsótt (C-stofn af
Cl. perfringens) en sjaldgæf í ung-
um lömbum. Erlendis er hún al-
gengari í veturgömlu fé.
Einkenni: Eru svipuð nema
gamir em að mestu fullar af blóði.
Aðgerðir: Blandað bóluefni
kemur að gagni.
Stífkrampi (Tetanus)
Orsök: Þessi sjúkdómur hefúr
fundist í hrossum víða um land en
þekkist í sauðfé og þá helst í
lömbum á svæðinu frá Eyjafirði
“Flosnýru” úr lambi sem dó úr flosnýrnaveiki af völdum pestarsýkla
(Clostridium perfringens, flokkur D). Yfirborð nýrnanna eins og flos. Sést vel
þegar þau eru skoðuá I vatni.
til Vopnafjarðar. Stífkrampasýkill-
inn er annar en sá sem veldur
lambablóðsótt en þó af sama flok-
ki (Clostridium tetani). Sýklamir
lifa í jarðvegi en sýkja um sár í
meltingarvegi eða sár eftir óhreina
sprautu, mörkun eða merkingu.
Einkenni: Einkenna verður fýrst
vart í 2-4 vikna gömlum lömbum.
Einkenni em viðvarandi vöðva-
krampar um allan líkamann.
Aðgerðir: Meðhöndlun er eng-
in nema sú helst að lina krampa
með lyfjum og næra með maga-
Lamb með stífkrampa (af völdum sýkilsins Clostridium tetani). Allir vöðvar
harðspenntir. Augun opin, nasir flenntar, fætur teygðir frá búknum.
Sýklaeitrið myndast á nokkrum vikum í lokuðum sárum.
Freyr 3/2003 - 21 |