Freyr - 01.04.2003, Blaðsíða 5
Ólöf og Jóhannes með börn sín Sveinbjörn og Svanborgu.
umst þar bæði með M.Sc.-próf.
Ég er svo reyndar í doktorsnámi
þar í fóðurfræði og ætla helst að
fara að ljúka því fljótlega án þess
að það sé alveg tímasett.
Þú ert svo með stöðu á RALA.
Jóhannes: Já, ég er þar í 70%
starfi og stundum meira, á fóður-
sviði.
Olöf Björg: Ég hef nóg að gera
við búskapinn og börnin.
Búskapurimtl
Jóhannes: Við fluttum heim til ís-
lands sumarið 1998 og svo hingað
að Heiðarbæ um áramótin
1998/1999, og tókum þá formlega
við búskapnum af foreldrum mín-
um, þ.e. við keyptum búið af þeim
en þau búa hér þó áffam og eru með
lítið kjúklingabú og ala upp slát-
urkjúklinga. Það varbyggt 1997 og
hugsað sem hluti af ættliðaskiptun-
um. Þetta hefúr verið ágætt þangað
til nú síðasta misserið að afkoman
af því hefúr hrunið vegna þess und-
arlega ástands sem nú er í þeirri bú-
grein. Síðan stundar faðir minn
veiði í Þingvallavatni af miklu
kappi, en þónokkur veiðiréttindi til-
heyra jörðinni. Veiðin hefúr verið
góð aukabúgrein í gegnum tíðina og
var fyrr á öldum eflaust ein megin
forsenda fyrir að margar jarðir við
Þingvallavatn héldust í byggð..
Fjárbúið?
Við erum núna með liðlega 600
fjár vetrarfóðrað, 460 ær, 135
gemlinga og rúmlega 20 hrúta.
Greiðslumarkið er tæplega 400
ærgildi.
Hvar gengur féð í sumarhög-
um?
Aðallega á Mosfellsheiði. Við
sleppum því út af túninu um 10.-
20. júní og það fer þá upp á heið-
ina, í áttina til Grafnings og
Hengils og Mosfellssveitar og í
minna mæli norður um til Botns-
súlna og Ármannsfells. Fé okkar
gengur saman með fé af bæjum
hér í Þingvallasveit sem eru ann-
ars vegar Heiðarbær II og Brúsa-
staðir og svo í hina áttina Fells-
endi og Stíflisdalur. Svo Grafn-
ingsmegin eru nokkrir bæir með
fé og eins bæir í Mosfellsdal.
Hvernig er göngum háttað hjá
ykkur?
Það fara í þetta fjórir dagar í
hvorri leit en þær eru tvær. Hins
vegar er alla daga komið heim að
kveldi.
Hvað þurfið þið mikið lið i
þetta?
Við hér á bænum erum oft með
6-8 smala með okkur og það er
nokkuð á annan tug manna í
hverri smalamennsku.
Nú hefur fœkkað mikið fé hér
vestan við, leitarféð ekki meira í
þá átt?
Steinunn Guðmundsdóttir og Sveinbjörn Jóhannesson á Heiðarbæ I.
I
Freyr 3/2003 - 5 |