Freyr - 01.04.2003, Blaðsíða 10
************
Alnafnarnir á Heiðarbæ, Sveinbjörn c
lnncmlandsmarkaðurirm ?
Já, hann er okkar besti markað-
ur. Þar höfum við ekki staðið okk-
ur nógu vel í vöruþróun og alhliða
markaðssetningu á kindakjöti.
Það var ákveðið sjokk eftir að
Goði hf. hrundi og svo hefur
ástandið á kjötmarkaðnum verið
mjög skrítið að undanfömu, það
er verið að framleiða kjöt og selja
undir kostnaðarverði.
Þið hafið verið að framleiða
kjöt til sölu á ferskmarkaðnum,
Sveinbjörn, fella net.
hvaða skilaboð fáið þið firá þeim
markaði?
Afurðastöð okkar, Sláturfélag
Suðurlands, hefur verið tilbúin að
borga hærra verð á þessum tíma,
þ.e. í nóvember og desember, auk
þess sem Markaðsráð kindakjöts
styður við þá framleiðslu og út-
flutningsskyldan verður þá minni.
Við fáum þannig þau skilaboð að
einhverju leyti ffá markaðnum að
hann vilji fá þetta kjöt, með því að
meira er greitt fyrir það.
Það sem truflar okkur dálítið er
að fítuflokkunin er þessu kjöti
óhagstæð og maður verður því að
fara varlega í eldið, ef kjötið fell-
ur í 3+ í fítu þá dettur yfírborgun-
in út. Þetta er sérstaklega við-
kvæmt varðandi páskalömb, sem
við höfum rétt prófað. Eg hef
reyndar aldrei skilið það að hag-
kvæmara sé að framleiða litla
skrokka en stóra, ég held að það
muni breytast stóra skrokkunum í
hag efitir því sem kjötið verður
unnið meira hér heima, sem mað-
ur vonar að gerist.
Auk þess tel ég að það sé til ein-
hver stærðarhagkvæmni í sauð-
fjárrækt, þ.e. miðað við fram-
leiðslumagn. Ég held að þar sé
fljótlegra að sækja hagræðinguna
í það að auka afúrðir eftir hverja á
heldur en stækka búið þó að það
verði líka að skoða á hverjum stað
og tíma.
Nýtist þér það í starfi þínu hjá
RALA að vera bóndi?
Jóhannes: Já, ég held og vona
það. Þar er ég við beinar fóður-
fræðirannsóknir í norrænu verk-
efni þar sem farið er nokkuð djúpt
í meltingu og efnaskipti jórtur-
dýra, í hermilíkani sem við erum
að vinna að. Aðaláherslan er þar á
mjólkurkýr en þekkingin, sem
fæst þar, nýtist við öll jórturdýr.
Auk þess hef ég verið í verkefn-
um sem varða tilraunir á Hesti,
skipuleggja þær og vinna úr þeim.
Mér fínnst ég nýta í þessu ein-
hverja reynslu af því að vera
bóndi og eins öfugt, í búskapnum
nýtist ýmislegt sem ég hef lært í
sambandi við mína vinnu hér á
RALA. Það að vera bóndi auð-
veldar líka e.t.v. að tala við bænd-
ur.
Við sáum það úti í Ultuna að
margir sem voru með okkur í
kúrsum höfðu ekki neina eigin
reynslu í sambandi við búskap.
Þar lærðum við betur að meta
þann grunn sem við höfðum frá
110 - Freyr 3/2003