Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2003, Blaðsíða 24

Freyr - 01.04.2003, Blaðsíða 24
baktería og veira. Sjúkdómur þessi hefúr breiðst nokkuð út um landið á síðustu árum. Þóað sjúk- dómurinn dragi lömbin sjaldnast til dauða veldur hann rýrð. Slátur- lömb geta orðið ósöluhæf. Einkenni: Lömbin smitast ung af fúllorðnu fé, sem oft er smitber- ar. Þau verða dauf, fylgja móður- inni illa, mæðast óeðlilega og fá hryglu við áreynslu. Einstöku lambi batnar að mestu, önnur sýna einkenni lungnabólgu er þau koma af fjalli. Þau hósta og grá- leitt slím er í vitum. Við krufn- ingu sjást mismunandi útbreiddar bólguskemmdir í framblöðum lungna, en yfirleitt ekki skemmdir í öðrum líffærum. Aðgerðir: Mjög hefur reynst erfitt að hamla gegn þessum sjúk- dómi þar sem hann hefúr náð fót- festu. Ættu bændur því að forðast að kaupa fé frá þeim bæjum þar sem sjúkdómsins hefur orðið vart. Tvíbólusetning er stundum reynd á öllu fé árlega með lungnapest- arbóluefni og fargað þeim kindum sem sýnt hafa einkenni um brjóst- veiki. Lyf eru til en virka ekki vel og eru dýr. Þess eru dæmi að bóndi hafi orðið að farga öllu sínu fé vegna þessa sjúkdóms. Koparskortur, óbeinn EÐA BEINN (FJÖRUSKJÖGUR) Orsök: Fjöruskjögur er gamal- kunnur sjúkdómur í nýfæddum lömbum hér á landi þar sem fjöru- beit var notuð, en ekki eða lítt gefið hey um meðgöngutímann. Sjúkdómsins verður vart á ein- stöku bæjum ennþá þótt fjörubeit að vetri sé að mestu aflögð. Efnin molybden, jám og brennisteinn í jarðvegi og plöntum hafa áhrif á koparbúskap líkamans og fram- kalla óbeinan skort. Sjaldnar mun um beinan koparskort að ræða. Einkenni: Einkenni koparskorts eða fjömskjögurs er skortur á valdi yfir hreyfmgu fótanna, eink- um afturfóta, svo að lömbin skjö- gra og slettast til í gangi. Stund- um em lömbin alveg ósjálfbjarga, geta ekki eða tæpast staðið, þó að þeim sé hjálpað á fætur. Þau eru sljó til augnanna, skynjun ófull- komin, oft liggja þessi lömb með sífelldum titringi eða krampaflog- um og taka út þrautir. Stundum koma sjúkleg einkenni fyrst fram við áreynslu. Við kmfningu finn- ast vökvafyllt holrúm o.fl. skemmdir í miðtaugakerfínu. Aðgerðir: Með því að gefa án- um koparlyf reglulega um með- göngutímann má að vemlegu leyti girða fyrir þennan sjúkdóm hjá lömbunum. Til em koparlyf sem sprauta má í vöðva. Hafið í huga að sauðfé er mjög viðkvæmt fyrir of miklum kopar. Tilgangslítið hefúr reynst að lækna lömb sem haldin em þessum kvilla. Selen / E-vítamínskortur (hvítvöðvaveiki, stíu- eða innistöðuskjögur) Orsök: Skortur á E-vítamíni og/eða seleni í fóðri ogjarðvegi er viða fyrir hendi. Misjafnt er ffá ári til árs hve mikil brögð em að sjúk- dómi af þeim völdum, einnig er munur milli landsvæða. Hættara er við að lömb fái sjúkdóminn ef ánum, einkum þeim yngstu, hefur verið haldið á húsi allan veturinn og ffam yfir burð, sérstaklega þeg- ar fóðrið er einhæft og heyin létt. Einkenni: Fyrir kemur að lömb fæðist með hvítvöðvaveiki. Þau em þá ófær um að risa á fætur og eiga sér varla viðreisnar von. Lömbin fæðast þó oftar fullfrísk og dafna vel fyrstu dagana. Sjúk- dómseinkenni koma skyndilega og oft samtímis því að farið er að láta lömbin út, einkum ef þau hreyfa sig mikið við leik eða rekstur. Lömbin missa þrótt, verða stirð, hölt og reikul i gangi, staulast um, stundum á hnjánum og vilja helst liggja. Oft em lömb, sem sett em út fullfrísk að morgni, orðin örmagna að kvöldi og geta ekki staðið. Sé ekkert að gert hrakar lömbunum smám saman og drepast eftir nokkra daga.Við krufningu sjást úrbreiddar skemmdir í vöðvum ganglima, en aðrir vöðvar, t.d. hjarta og þind, geta einnig verið skemmdir. Séu mikil brögð að selen- og eða E- vítamínskorti geta skemmdir á hjartavöðva valdið því að tals- verður hluti lambanna deyr snögglega af hjartabilun á fyrstu sólarhringunum. Aðgerðir: Ef tekið er eftir veik- inni á byijunarstigi er oft auðvelt að lækna hana með þvi að dæla í lömbin bætiefnum og seleni. Komist veikin á hátt stig er lækn- ing erfið og tekur langan tíma. Hægt er einnig að fyrirbyggja veikina með því að hafa nægilegt selen og E-vítamín í fóðri seinni hluta meðgöngu. Helst ætti að mæla þessi efni í fóðri ef slík vönt- un er líkleg. Hreyfing er heppileg fyrir æmar. Þær ætti að viðra þeg- ar mögulegt er að vetrinum. Fiski- mjöl (síldarmjöl) og hveitiklíð er selenauðugt. Selenauðugar forða- kúlur má setja í vömb ánna, en þess ber að gæta að stutt er í sele- neitrun. J OÐSKORTUR (STÆKKUN Á SKJALDKIRTLI, SKJÖLDUNGSAUKl) Orsök: Flest ár ber á joðskorti á stöku bæjum. Araskipti em að þessu. Vanhöld em oft talsverð. Einkenni: Skjaldkirtill stækkar á ærfóstmnum og verður stundum áberandi kúla á hálsi neðan við kverk og getur valdið erfiðleikum í fæðingu. Hárafar er slétt og eyru á lömbunum lafa. Lömbin líkjast hvolpum. Aðgerðir: Hægt er að fyrir- byggja þetta með því að hafa opið joðglas í fjárhúsglugga eða rjóðra joði á stoð. 124 - Freyr 3/2003
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.