Freyr - 01.04.2003, Blaðsíða 39
inni þó að greinilegt væri að engir
þeirra veittu framannefndum
tveimur hrútum samkeppni með
tilliti til kjötgæða. Rétt er að vekja
á því athygli að gríðarlega hátt
hlutfall lamba undan Víði og Gný
úr rannsókninni enduðu sem
ásetningslömb þannig að niður-
stöður úr rannsókninni um slátur-
lömb undan þeim eru tæpast sam-
anburðarhæfar við heimahrútana.
Á Brekku var Roði 01-591 með
mjög afgerandi yfirburði, þessi
hrútur, sem er sonur Lækjar 97-843
sýndi bestu aðalsmerki sona hans
sem ná að sameina í sláturlömbun-
um feikilega mikla vöðvasöfhun en
samtímis fremur litla fitu. Móðu-
faðir Roða er Váli 87-241 sem á
sinni tíð var grunneinstaklingur í
byijun ræktunar á því öfluga fé sem
nú er að finna á Brekku.
Á Reyðará féll toppurinn í hlut
Ýmis 01-722 með 126 í heilda-
reinkunn, en þessi hrútur var að
gefa vel gerð en mjög fitulítil slát-
urlömb eins og hann á kyn til en
hann er undan Sjóði 97-846.
Kóngur 00-714 staðfesti ágæti sitt
frá fyrra hausti með 120 í heilda-
reinkunn þó að nú fengi hann
meiri samkeppni. Kóngur er frá
Brekku undan Gný 99-555.
I afkvæmarannsókninni í
Bjamanesi voru feikilega miklir
yfirburðir hjá Hnoðra 01-041.
Hann fékk 141 í heildareinkunn
fyrir lambahópinn, en sláturlömb
undan honum voru ákaflega vel
vöðvuð en um leið fitulítil.
Hnoðri er sonur Spóns 98-849, en
móðurfaðir hans er Bassi 89-960.
Á Fomustekkum bar afkvæma-
hópur undan Bæti 96-176 mikið
af en hann fékk 130 í heildarein-
kunn í rannsókninni. Lömbin und-
an honum vom vel gerð en höfðu
um leið minni fitu en afkvæmi
hinna hrútanna í rannsókninni.
I rannsókn í Nýpugörðum voru
tveir feðgar sem gerðu garðinn
frægan. Háfur 00-149 var með
hæsta heildareinkunn, hvorki
meira né minna en 149 fyrir feiki-
lega öflugan og vel gerðan hóp, en
hann var einnig hæstur í hlið-
stæðri en minni rannsókn þar á bæ
á síðasta ári. Háfur er undan
Hæng 98-848 en móðurfaðir hans
er Gjafar 04-785 í Viðborðsseli,
sem var sonur Þéttis 91-931. Það
sem enn styrkti stöðu hans var að
sonur hans Mávur 01-195 fékk
140 í heildareinkunn í rannsókn-
inni og hann sýndi enn betri út-
komu hjá sláturlömbum en Háfur
gerði, þó að hún væri afbragðs-
góð. Móðurfaðir þessa hrúts er
Stubbur 95-815.
I Lækjarhúsum vom afgerandi
yfirburðir hjá Galdri 00-419 en
hann fékk 123 í heildareinkunn
fyrir lömb sem höfðu grípanlega
mikil lærahold og vom fremur
fitulítil. Þessi hrútur er sonur
Geisla 96-255, sem alllengi var
notaður í Lækjarhúsum, en sá
hrútur var albróðir Prúðs 94-834.
Freyr 3/2003 - 39 |