Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2003, Síða 13

Freyr - 01.04.2003, Síða 13
íslenska sauðféð hentar vel til aðlögunar að lífrænum búskaparháttum. Það er harðgert, frjósamt, dilkarnir vaxa hratt og unnt er að framleiða gæðaaf- urðir þegar saman fer góð vetrarfóðrun, að mestu á gróffóðri, og sumarbeit á úthaga með fjölbreyttum gróðri. Lífræn sauðfjárrækt er ein sjálfbærasta búgreinin hér á landi. (Ljósm. J.J.Freyr). Þróunin erlendis Sú umhverfisvakning sem varð á síðustu áratugum liðinnar aldar beindi athyglinni æ meir að kost- um lífrænnar ræktunar. Það var þó ekki fyrr en á 9. áratugnum sem viðurkenndur lífrænn búskapur varð meira en jaðarstarfsemi, oft kennd við sérvitringa og hippa. Eftirspum eftir lífrænt vottuðum vömm fór vaxandi og hefur sú þróun verið mjög hröð undanfarin 10-15 ár. I fyrstu var gróskan mest í ýmiss konar ávöxtum, grænmeti og komvöm þannig að nú er t.d. mjög mikið af bamamat, svo sem lfá Hipp í Þýskalandi, með líf- ræna vottun. Næst kom vefnaðar- vara á borð við baðmull og hör og síðan búfjárafurðir, einkum mjólk og egg, en á seinni ámm hefur kjötið komið í vaxandi mæli inn á markaðinn undir lífrænum vöm- merkjum, þar með talið dilkakjöt. Einnig er ullin komin í þessa vömflokka svo og lax, silungur og þömngaafurðir. Fjölbreytnin hef- ur aukist gífurlega, vömsýningar víða um lönd bera því vitni og nú er svo komið að í nokkmm lönd- um Evrópu er um eða yfír 10% af landbúnaðarframleiðslunni líf- rænt vottuð. Kannanir sýna að neytendur velja þessar vörur fyrst og fremst vegna umhyggju fyrir heilsufari, umhverfísvemd og bú- tjárvernd og greiða oftast fyrir þær hærra verð en fyrir aðrar landbúnaðarafurðir. í nokkrum Evrópulöndum hefur lífrænn bú- skapur fengið ákveðinn sess í landbúnaðarstefiiunni. Mótuð hef- ur verið stefna með markmiðs- setningum, aðgerðaáætlun lögð fram og verulegum Qármunum verið varið til aðlögunar að líf- rænum búskap. Góð dæmi um þetta er að finna í Danmörku og Svíþjóð og á meginlandi Evrópu em Austurríki og Sviss í farar- broddi. Það er ekki aðeins um að ræða beinan stuðning við bændur heldur er vaxandi hluta ijármagns til rannsókna, leiðbeininga og fræðslu beint inn á þessa braut með markvissum hætti í anda ný- sköpunar. (4). Þróunin hérlendis Um 1980 var hægt að telja líf- ræna ræktendur hér á landi á fíngrum annarrar handar, vorið 1993 þegar félag þeirra “VOR- vemdun og ræktun”, var stofnað vom þeir aðeins 7 en em nú um 30. Þótt framleiðslan hafí aukist töluvert og sömuleiðis Ijölbreytni innlendra lífrænna vara á markaði er ljóst að við emm 10-15 ámm á eftir þeim nágrannalöndum sem við miðum okkur oftast við. Enn er innan við 1 % af landbúnaðar- framleiðslunni lífrænt vottað. Markaður fyrir þessar vömr er þó í vexti þegar á heildina er litið og vitað er að innflutningur á land- búnaðarafurðum með lífrænum vömmerkjum hefur aukist mikið á seinni ámm. Oft er því haldið fram að hina hægu þróun lífræns landbúnaðar hér á landi megi rekja til þeirrar jákvæðu gæða- ímyndar sem íslenskar landbúnað- arafurðir hafa almennt. Vafalaust er það hluti skýringarinnar en meira kemur til. Tæknilega séð er helsti þröskuldurinn sú krafa að ekki má nota tilbúinn áburð við framleiðsluna (5) en einnig skiptir miklu máli að hér liggur ekki fyr- ir opinber stefna um eflingu líf- ræns búskapar og opinber stuðn- ingur er mun minni en tíðkast í nágrannalöndunum. Islenskir bændur, sem vilja fara yfir í líf- rænan búskap sitja því ekki við sama borð og nágrannar þeirra og getur það ekki talist viðunandi á tímum vaxandi samkeppni og milliríkjaviðskipta. Hin litla fram- leiðsla veldur miklum vanda við vinnslu og dreifíngu, t.d. varðandi slátmn og markaðssetningu dilka- kjöts, því að enn fylla íslenskir sauðljárbændur með lífræna vott- un rétt tuginn með eitthvað á ann- an tug tonna framleiðslu. Þessir bændur em töluvert dreifðir um Freyr 3/2003 - 13 |

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.