Freyr

Volume

Freyr - 01.04.2003, Page 20

Freyr - 01.04.2003, Page 20
Lambablóðsótt (lamb dysentery) af völdum pestarsýkla (Clostridium perfringens, flokkur B). Gollurshús þanið afgulum vökva. Trefjaflyksa á hjarta, lifrin blóðþrungin, blæðingar og loft i görnum. ma. Leyfið náttúrunni að hafa sinn gang. Eðlileg fæðing fyrra (fyrsta) lambs tekur 5-30 mínútur. Innan klukkustundar á seinna lambið að koma, að öllu eðlilegu. Þurft getur að kanna legu og ástand. Lamb ber ekki alltaf rétt að. Bíða má annan hálftíma, ef allt virðist á réttri leið eða ef ærin er lengi að opnast. Hjálpa þarf, ef vatnið er farið fyrir 1 1/2 klst. og ekkert hefúr hreyfst siðan. Notið hanska eða sótt- hreinsið hendur og handleggi vandlega áður en byrjað er. Kramarlömb Næringarskortur og misræmi í fóðri ánna seinni hluta meðgöngu leiðir til lítils vaxtar fósturbelgja og hildahnappa; fóstrin fá litla næringu, þau fæðast smá eða rýr, misstór, vangerð frá móður, auk þess er broddurinn oft lítill. Lömbin eru kulvís vegna lítillar orku eða fítuforða, viðkvæm gagnvart smitefnum og öðru áreiti í umhverfínu. Þessi lömb lognast oft út af án sýnilegra veikinda. Þetta eru svokölluð kramarlömb. Ef slík lömb eiga að komast á legg þarf að eiga broddbanka og kunna að nota magaslöngu fyrstu klukkustundimar, ef lambið tekur ekki við. Hlífa þarf lömbunum við áreiti og halda á þeim hlýju, gefa þeim sykur og saltaupplausn, ef þau fara að kólna (króknun). SULTUR OG KRÓKNUN Króknun og hungurdauði eru örlög 40-50% lamba sem deyja fyrstu dagana á ýmsum bæjum í Bretlandi. Ekki deyja svo mörg lömb hér á landi af þessum sök- um, en of mörg lömb deyja vegna þess að æmar mjólka ekki, vilja ekki lömbin eða lömb komast ekki á spena og lömb þróttlítil af hungri og kulda verða frekar fyrir hnjaski. Hægt er að koma í veg fyrir tjón af þeim völdum með aukinni vitneskju og aðgát. Eðli- legur líkamshiti lambs er 39,5 gráður C. Fari líkamshiti niður fyrir 37 gráður er hætta á ferð. Ef rétt er staðið að málum er unnt að bjarga lömbum frá dauða þótt lík- amshitinn sé korninn niður fyrir 30 gráður. Skil verða þegar lamb verður 5 klukkustunda gamalt, Þá er eyddur orkuforðinn í brúnu fít- unni við nýrun sem lambið fædd- ist með og hélt blóðsykrinum uppi. Ur því getur blóðsykur fall- ið svo aðlífshættulegt verði, þegar hungur og kuldi fara saman. Auka þarf blóðsykur áður en lambið er hitað. Annars fer illa. Lambablóðsótt Orsök: Lambablóðsótt (hjart- veiki) er þekktur sjúkdómur um allt land. Orsökin er staflaga og stór sýkill, sem myndar eiturefni í gömunum. Þau berast með blóð- inu um likamann og valda dauða. Sýkillinn (Clostridium perfring- ens B-stofn) fínnst í jarðvegi og kindasaur. Fullorðnar kindur em oft smitberar og af saur þeirra sóttmengast hús og hagar. Lömb- in smitast með því að sjúga óhreina spena móðurinnar og japla á sóttmenguðu heyi eða ull. I sýktu umhverfí hleðst smitið upp og vex eftir því sem líður á sauð- burðinn. Flest lömb veikjast á öðmm til fjórða sólarhring eftir burð, en geta veikst allt að 10-12 daga gömul. Einkenni: Venjulega er vinstrin í þessum lömbum fúll af mjólk- urdrafla. Fyrstu einkenni eru deyfð, svo hætta lömbin að sjúga. Þau em oft með þunna grænleita skitu, blóðblandaða. Lömbin geta þembst upp, þau rembast við, stynja, virðast sárþjáð. Fljótt ágerist sóttin, lömbin verða mátt- farin, leggjast fyrir, fá krampa, reigja hausinn aftur og teygja frá sér fætuma. Oftast drepast lömb- in á fáum klukkustundum. Sjúk- leg einkenni á líffærum þeirra em mismunandi. Ef sjúkdómurinn hefur dregið lambið til dauða á skömmum tíma eru einkennin ógreinileg eða engin. Hafi lambið verið veikt í nokkum tíma sést oft blóðfylling, loft og bólgueinkenni í gömum; smáblæðingar í hjarta og mikill gulleitur vökvi og trefja- skán í gollurshúsi. Aðgerðir: Bólusetning ánna eða | 20 - Freyr 3/2003

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.