Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2003, Síða 25

Freyr - 01.04.2003, Síða 25
Afkvæmarannsóknir á hrútum haustlð 2002 r vegum búnaðarsam- bandanna var boðið upp á afkvæmarann- sóknir á hrútum á líkan hátt og verið hefur frá haustinu 1998. Rannsóknir þessar eru styrktar af Framleiðnisjóði landbúnað- arins ef þær uppfylia áður aug- lýst skilyrði. Akveðnar breytingar voru gerð- ar haustið 2002 á því sem taldar voru styrkhæfar rannsóknir. Rannsóknir voru áður í tveimur þrepum. Annars vegar voru rann- sóknir þar sem í samanburði voru að lágmarki sex hrútar á því búi þar sem rannsókn var unnin, þetta voru kallaðar stærri rannsóknir. Síðan voru rannsóknir þar sem í voru aðeins fjórir eða fimm af- kvæmahópar, kallaðar minni rannsóknir. Haustið 2002 var styrkur til minni rannsókna felldur niður. Meginástæða þess var sú að til þess að á grundvelli rannsókn- ar séu möguleikar til að vinna úr- val, sem hægt er að vænta umtals- verðs árangurs af, þá þarf að vera ákveðinn lágmarksíjöldi hrúta til að velja úr að rannsókn lokinni og óneitanlega eru sex hrútar orðnir í neðri mörkum til að velja á milli til að merkjanlegur úrvalsárangur náist ef það þarf tvo eða þrjá af þessum hrútum til áframhaldandi notkunar. Það má aldrei gleymast að tilgangur rannsóknanna er í raun ekki að rannsaka hrútana, til að geta sagt að þeir séu afkvæma- rannsakaðir, heldur það að stefna að því að ná framförum í stofnin- um með að byggja úrvalið á bestu einstaklingunum úr rannsókninni. Með því að hækka þessi mörk þá er hins vegar ljóst að talsvert af minni íjárbúum, sem hafa ekki þann hrútafjölda sem rannsókn- imar krefjast, verða ekki lengur þátttakendur. Rétt er að vísu að taka það skýrt fram að eftir sem áður er ekkert því til fyrirstöðu að vinna rannsóknir við þær aðstæð- ur, þó að þær séu ekki lengur styrkhæfar. Aftur á móti var settur inn annar flokkur minni rann- sókna þar sem gert var ráð fyrir að rannsókn væri aðeins byggð á upplýsingum úr kjötmati. Þar vom neðri mörk um umfang, til að rannsókn teldist sfyrkhæf, sett við ijóra afkvæmahópa. Reyndin varð sú að þátttaka í þessu formi rann- sókna varð ekki umfangsmikil og það vom ekki síður bú með mik- inn fjölda hrúta sem tóku þátt í þeim. Ljóst er að vinnufreki þátt- ur rannsóknanna em sá sem snýr að mælingum og mati á lifandi lömbum og af ýmsum ástæðum ráða menn ekki við ffamkvæmd þess þáttar en hafa eftir sem áður mikinn grunn til úrvals meðal hrútanna á gmnni niðurstöðu úr kjötmati lambanna undan þeim. Við slíkar aðstæður er fúll ástæða til að gera vandaða úrvinnslu á kjötmatsupplýsingunum. Önnur breyting á rannsóknun- um, sem rétt er að gera að umtal- svefhi, snýr að úrvinnslu á niður- stöðunum. Fagráð í sauðfjárrækt ákvað að breyta áherslum milli þátta í kjötmatsupplýsingum frá því sem verið hafði. Þessar áhersl- ur vom þannig að mat um gerð í kjötmati hafði 60% vægi en fítu- rnatið 40% vægi. Akveðið var að víxla þessu, þannig að nú hefur fítumatið 60% vægi en mat fyrir gerð 40% vægi. Þessar breytingar geta að sjálfsögðu leitt til tals- verðarar víxlunar í innbyrðis röð- un hrútana ef um er að ræða hrúta sem hafa mikið ósamræmi á milli þessara tveggja þátta úr kjötmat- inu. Það er vel þekkt, og hefur oft áður verið rætt í hliðstæðum greinum, að slíkir einstaklingar em því miður miklu fyrirferða- meiri í íslenska Qárstofninum en hinir. Með rannsóknunum emm við hins vegar hvað mest að leita að gullmolunum sem ná að sam- eina báða þessa þætti. Gagnvart þeim hafa framangreindar breyt- ingar ekki mikil áhrif. Það má glöggt sjá úr niðurstöðum að með þvf starfi sem unnið hefúr verið á þessu sviði undanfarin haust hefur náðst umtalsverður árangur í að fjölga einstaklingum sem ná að sameina báða þætti á jákvæðan hátt og enn meiri árangri má ná á allra næstu áram með að vinna áfram á markvissan hátt. Það er veraleg ástæða til að hvetja bændur til að horfa stífara á niðurstöðumar úr fítumatinu en þeir hafa gert. Markaðslegir hags- munir og þá um leið afkomulegir liggja öðru fremur í þessum þætti. Freyr 3/2003 - 25 |

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.