Freyr

Volume

Freyr - 01.04.2003, Page 47

Freyr - 01.04.2003, Page 47
um. í hinum stóra afkvæmahópi mátti samt fmna mörg úrtökugóð lömb. einkum meðal gimbra, sem náð höfðu góðum þroska. Af hymdu hrútunum á stöðinni í Laugardælum sem áður höfðu verið á stöð var Bessi 99-851 líkt og haustið áður að skila feikilega góðum lömbum. Þessi lömb hafa mjög þykkan og vel lagaðan bak- vöðva, fremur litla bakfitu og gerðin er góð og lærahold oft fyrnasterk. Spónn 98-849 var einnig líkt og haustið áður að skila miklum fjölda af feikilega vöðva- þykkum og glæsilegum lömbum, en þau hafa talsvert meiri bakfitu en afkvæmi Bessa. Flotti 98-850 átti líkt og árið áður stóran af- kvæmahóp. Bakvöðvaþykkt er um meðallag hjá þessum lömbum en lögun bakvöðva áberandi góð og fita á spjaldhrygg með því allraminnsta sem sést. I saman- burði við marga af hinum hrútun- um eru það helst lærahold sem mættu stundum vera sterkari hjá þessum lömbum. Sekkur 97-836 átti líkt og árið áður feikistóran af- kvæmahóp. Þar mátti líta mikið af glæsilömbum með mjög góða bakvöðvaþykkt, en fita á spjald- hrygg mælist talsvert yfir meðal- tal hjá afkvæmum hans. SlGURVEGARAR HAUSTSINS 2000 Sigurvegara haustsins 2002 var tvímælalaust að finna á meðal hymdu hrútana í Laugardælum, sem nú vom að sýna í fyrsta sinn afkvæmahópa tilorðna við sæð- ingar. Yfirburðir hjá afkvæmum Ljóma 98-865 í bakvöðvaþykkt eru algerir á meðal afkvæma stöðvarhrútanna haustið 2002 og bakvöðvi vel lagaður. Hins vegar er þykkt fitu á spjaldhrygg hjá þessum lömbum að mælast óþarf- lega mikil. Mörg þessara lamba em að gerð úrtökugóð með mikil lærahold. Áll 00-868 sýnir hjá af- kvæmum sínum fádæma kosti, en hann á einn allra stærsta af- kvæmahópinn úr skoðun haustið 2002. Bakvöðvaþykkt er frábær hjá þessum lömbum, lögun bak- vöðva einnig sérlega góð og fita á spjaldhrygg mælist mjög þunn. Mörg þessara lamba em um leið fádæma vel gerð með lærahold með því besta sem gerist. Vinur 99-867 átti einnig feikilega stóran lambahóp. Bakvöðvaþykkt hjá af- kvæmum hans mælir sig ekki al- veg við toppana tvo sem fjallað er um hér á undan en hún er engu að síður góð, bakvöðvi mjög vel lag- aðar og bakfita lítil. Gerð af- kvæma hans margra er með ólík- indum. Þetta eru samanreknir vöðvahnyklar og lærahold meiri en sést hafa áður hjá afkvæmum stöðvarhrúta. Aðeins ber hins veg- ar á fúll bolstuttum lömbum und- an honum þó að í þeim efnum sé mikil breidd hjá afkvæmum hans. Ástæða er einnig að nefna að tals- vert af afkvæmum hans eru hrein- hvít. Þessir þrír hrútar, sem hér hefur verið fjallað unr, sýndu sig sem ótrúlega öfluga kynbótahrúta haustið 2002. Fengur 97-863 átti ekki stóran afkvæmahóp en tals- vert var af athyglisverðum lömb- um þar á meðal. Teigur 96-862 skilaði lömbum sem voru í slöku meðallagi um flesta þætti. Góð gerð var í mörgum afkvæma Stapa 98-866 þó að ljóst sé að hann mælir sig ekki við toppana sem fjallað er um hér að framan. Frek- ar fátt var um fína drætti hjá af- kvæmum Kana 98-864. Hjá kollóttum hrútum, sem áður höfðu verið á stöð, var Dalur 97- 838 að skila miklu af föngulegum lömbum og hefúr hann þegar sýnt sig sem einhver mesta kynbóta- kind í kollótta fénu sem reynsla er komin á. Dalur var notaður á báð- um stöðvunum í desember 2001. Mestu kostir hjá afkvæmum Styrmis 98-852 eru í öflugum læraholdum hjá afkvæmaum hans en bakvöðvaþykkt hjá þeim var heldur undir meðaltali. Veikasti punktur afkvæma Hörva 99-856 er fúll þunnur bakvöðvi, en gerð hjá þessum lömbum mörgum er góð og lærahold oft ágæt. Hvor- ugur nýju kollóttu hrútanna sló í gegn þó að báðir skiluðu mörgum góðum lömbum. Sónar 97-860 gaf sterkleg lömb með fremur góð lærahold en bakvöðvi mætti oft vera þykkari. Glær 97-861 skilaði talsvert breytilegum afkvæmum, sumt miklar glæsikindur en önnur þar sem fúll mikið skorti á vöðva- þykkt. Moli Umhverfisstyrkir til LANDBÚNAÐAR í BANDA- RÍKJUNUM Bandaríska þingið hefur sam- þykkt umhverfisverndaráætlun fyrir bandarískan landbúnað. Áætlunin er til tíu ára og felur I sér styrki til umhverfismála að upphæð 17 milljarða dollara á tímabilinu. Áætlunin, sem er ein af niður- stöðum stefnumörkunar í banda- rískum landbúnaði árið 2002, miðast að því að uppfylla fjögur aðalmarkmið; bæta gæði vatns og andrúmslofts, varðveita rækt- unarhæfni jarðvegs og vernda viðkvæmt náttúruumhverfi. Mikilvægur þáttur í áætluninni verður að stuðla að því að bændum verði unnt að fram- fylgja gildandi löggjöf um um- hverfisvernd og náttúruauðlindir. Annar þáttur er sá að gera svæðisbundnar áætlanir um um- hverfismál fyrir landbúnaðinn. (Internationella Perspektiv nr. 7/2003). Freyr 3/2003 - 47 |

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.