Freyr

Volume

Freyr - 01.04.2003, Page 61

Freyr - 01.04.2003, Page 61
Innrásfn í Noreg INoregi voru til skamms tíma ræktuð fjölmörg sauð- fjárkyn en fyrir nokkrum árum voru þau tlest sameinuð í eitt sem þeir kalla Norskt hvítt fé. Þessi kyn áttu það sam- merkt að flest voru þau mynd- uð í Noregi snemma á síðustu öld eða undir lok þarsíðustu við blöndun á heimafé við þekkt bresk sauðfjárkyn. Á síð- ustu árum hefur þetta sameig- inlega norska kyn verið talsvert blandað með hollenska Texel fénu. Auk þess er í Noregi það sem þeir kalla spælsau, sem er hið gamla landkyn. Þetta kyn hefur verið síðustu áratugi á bilinu fjórðungur til fimmtungur af nors- ka fénu. Fé af þessum stofni er léttara en norska hvíta féð, kostir þess er sagðir liggja í móðureigin- leikum og t.d. að burðarerfiðleik- ar séu stórum minni en algengast er hjá hinu fénu. Síðustu árin, eft- ir að tekið var upp í Noregi kjöt- mat samkvæmt EUROP mati, hef- ur samkeppnisstaða spælsau versnað stórum. Þar sem fleiri bú- fjárkyn eru, myndast áhangenda- hópar sem leita allra ráða til að bæta stöðu sína. Áhugamenn um spælsau í Noregi sannfærðust um síðir um að ef til vill mætti sækja kynbótafé til Islands. Þetta fjárkyn á sér að talsverðu leyti íslenskan uppruna. Snemma á síðustu öld mun þessu kyni að mestu hafa verið útrýmt í Noregi. Þá var hafist handa um ræktun þess. I byijun munu hafa verið sóttir hrútar til Færeyja. Um 1930 eru síðan fluttir þrír hrútar frá Is- landi á kynbótabú í Noregi. Þessir hrútar munu hafa haft þar feiki- Iega mikil áhrif og er víst talið að allt fé af kyninu þar í landi í dag reki uppruna sinn að einhverju leyti til þeirra. Ef svo vill til að einhverjir lesendur þekki einhver deili á þessum hrútaútflutningi til Noregs um 1930 væru allar upp- lýsingar þar um ákaflega vel þegnar. Um 1970 var afitur sótt blóð til Islands til kynbóta. Það var gert með sæðisflutningum úr hrútum sem þá voru á sæðingar- stöðvunum. Finna má greinar á þeim tíma í Frey þar sem ég gerði grein fýrir niðurstöðum úr þessari blöndun á þeim tíma. Ljóst var að blöndunin við íslenska féð þá varö til mikilla kynbóta, bæði hvað varðar kjötgæði og vaxtargetu. Hins vegar þótti íslensku hrútam- ir mjög spilla ull og sumir hrút- anna, sem þá vom notaðir, vom hymdir og það varð þeim víst ekki til framdráttar þama fyrir austan hafíð. eftir Jón Viðar Jónmundsson Bænda- samtökum Islands Fósturvísaflutningar til Noregs haustid 2001 Rétt áður en haustannir í sauð- tjárræktinni hófust haustið 2001 hafði einn af forsvarsmönnum spælsauræktunarinnar í Noregi og aðaláhugamaður um að sækja kynbætur til íslands, Jostein Röyseland, samband við mig. Lýsti hann áhuga Norðmanna á að fá fósturvísa úr íslensku sauðfé til að flytja til Noregs til kynbóta. Sigbjöm Eikje, Kristján Óttar Eymundsson og Kjell Horten með Hersi, faðir Hörvi 99-854, móðir 98-355 hjá Braga Guðbrandssyni á Heydalsá Freyr 3/2003 - 61 |

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.