Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.04.1919, Page 117

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.04.1919, Page 117
LÍF 1 LANDI. 97 sem liún þakkaði fyrir. Inni í tjaldinu sátu karlinn og dóttir lians, en þegar þau sáu peninginn stauluðust 'þau á fætur og komu til Jóns og réttu honum lófann. Karl- inn var í gömlum kjólfrakka, sem einhver hafði gefið honum!, og stóðu berir olnbogarnir út úr báð- um ermunum. Á höfði hafði hann rifinn stráliatt. Bóttir hans liafðí yfir sér sjaldruslu rifna og skitna, hún var há og þreklega vaxin, stórleit með tinnusvört augrn, en fhvítan í augunum var blóðstokkin, augnalokin þrútin, andlitið var alsett bólum og smákýlum, var- irnar bólgnar og 'sár á þeim. Það fór liryllingur um Jón, þegar hann leit framan í hana. Hann gaf þeim sinn skildinginn hverju og liraðaði sér í burtu. Þetta voru nú menningar-mörkin á hinni hraustu og frjálsu veiðiþjóð, sem liann liafði lesið svo margar sögur um. Jón lagðist niður í rjóður í skóg- inurn. Yorblærinn strauk honum um vanga, fug'larnir sungu í trjá- greinunum í kring, gróðrarilminn lagði fyrir vit lians og nýir lífs- straumar runnu eftir hverri taug. Þarna sat hann 'sem í leiðslu og starði út í geiminn bláheiðan og ómælandi. Hugljúfar æskuminn- ingar streymdu fram í liuga hans og livísluðu um leið og þær liðu fram hjá: “Hérerlíf. ” — Hann hrökk upp af þessum dvala, þeg- ar blásið var í eimlúður verk- smiðjunnar, og nú fanst honum hann vera kallaður frá lífinu til dauðans. Hann reis hægt á fætur og gekk áleiðis til verksmiðjunn- ar. Á miðri leið stóð hann við sem snöggvast og litaðist um. Öðru megin blasti við grasslétt- an, víð eins og útsærinn, með fangið hlaðið frjósemi og farsæld, fuglasöng og angandi gróðri. En hinu megin var borgin, menning hinna stóru landa. Menningin með sofandi sál, en vinnandi vöðva. Menningin, sem kæfir raddir náttúruimar með vinnu- vél-a skrölti. Menningin, sem bæg- ir sólargeislunum og vorblænum frá mannlífinu. Menningin. sem stingur augun úr fegurðartilfinn- ingunni og svíður ræturnar undan manndóminum. Jón leit löngunaraugum út á sléttuna fögru, þar sem frelsið og lífið réði ríkjum. Lífsþráin brauzt um í brjósti hans eins og lamaður fugl, sem horfir á eftir félögum sínum þar sem þeir svífa burt á lieilum vængjum, af því þeir voru svo hepnir að komast hjá sendingu skotmannsins. En lífsþráin dró að sér heila vænginn; viðurkendi vanmátt sinn; sætti sig við kjör sín; skreið í fylgsni sitt og beið dauðans með r-ó. Þegar Jón kom inn í verksmiðj- una, varð honum ógreitt um vinnu- tökin í fvrstu. Það var eins og ha.nn sæi ekki liandaskil, þó há- bjartur dagur væri; hann þurfti hvað eftir annað að bregða hendi upp að augum sér. Vélarnar kom- ust aftur í hreyfingu og unnu sinn hluta v-erksins, og Jón vann sinn. Bæði mólu gull í vasa menningar- innar. Dagamir liðu, árin liðu, Jón hélt áfram að vinna. Vinna fyrir sjálfstæðinu, fyrir lífinu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.