Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.04.1919, Page 120
100
TIMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLBNDINGA.
þessum félagssamtökum væri eigi
skapaður laugur aldur, og bar
margt til þess, eu einkum flutning-
ur manna af einum stað á annan,
þá bar liann þó allmikla þýðingu
fyrir seinni tíma og hefir óefað
hjálpað mikið til þess, að tungan
hefir haldist við. Sá félagsskap-
urinn, sem orðið hefir varanleg-
astur, er hinn kirkjulegi félags-
skapur, og getur engum hlandast
hugur um það, að hann hefir verið
öflugasta stoðin fyrir þjóðerni
vort hér. Iians verður því að
nokkru hér að geta, en fljótt verð-
ur yfir sögu farið og að eins drep-
ið á helztu atriði í sambandi við
stofnun hans og eigi annað. Saga
safnaðanna ætti að vera rituð,
hvers um sig, getið tildraganna
að safnaða mynduninni, með því
fengist heimildir fyrir sameigin-
legri kirkjusögu íslendinga vestan
hafs. Til þess að geta skýrt frá
félagssamtökum sem greinilegast,
verður að geta allra lielztu bygða,
en í því efni þvkir réttast að fylgja
aldursröð.
Fyrstu stöðvar íslendinga
vestan hafs.
Innflutningur Islendinga til
Norður Ameríku er alment talinn
að hafa byrjað með árinu 1870.4)
Þó voru nokkrir Islendingar komn-
ir hingað áður, er tekið höfðu Mor-
mónatró og fluttust til ITtah í
Bandaríkjunum árið 1855.1 2). Ár-
ið 1863 3) taka fjórir menn sig upp
1) Einar Ásm. Hkr. III. ár. Nr. 21, 23.
maí 1889.
2) E. H. Johnson. Saga ísl. í Utah.
Alm. 1915.
3) J. Jónsson frá Mýri. Enn um Braz-
illuferðir. Alm. 1917.
og flytja til Brazilíu úr Þingeyj-
arsýslu, og tíu árum seinna fara
þangað, úr sömu sýslu, um 35
manns. Eigi er þess getið, að
þangað flytji neinir eftir það.
En fyrir alvöru byrjar útflutn-
ingurinn til Norður Ameríku með
árinu 1870. Eru það fjórir ungir
menn af Eyrarbakka, er fyrstir
ríða á vaðið. Lögðu þeir af stað
að heiman 12. maí og komu til Mil-
waukee í Bandaríkjunum hinn 27.
júní. Fyrir þessum mönnum var
Jón Gíslason, prests ísleifssonar
etazráðs á Brekku Einarssonar.4)
Arið 1871 flytja enn nokkrir og
aðallega af Suðurlandi; er þar
talinn Jóhann nokkur5 6), bóndi
sunnlenzkur. Bitar liann um það
ferðalag bréf frá Washiugton, er
birtist í “Norðanfara” á Akur-
eyri, 11. árg., 1872. Þetta sama ár,
1872,G) fer hátt á þriðja hundrað
manns vestur, og meðal þeirra,
er ber að nefna, eru: Sigtryggur
Jónasson frá Möðruvöllum í Hörg-
árdal, er telja má aðal forgöngu-
niann að stofnan Nýja íslands;
séra Páll Þorláksson frá Stóru-
Tjörnum í Þingeyjarsýslu, er var
aðal hvátamaður að stofnun Da-
kota-nýlendunnar, og séra Hans
B. Thorgrímsen af Eyrarbakka,
er upphaf átti að því, að stofnað
var Hið ev. lút. kirkjufélag Islend-
inga í Vesturheimi..
Arið 1873 fóru frá Akureyri, að
kveldi liins 4. ágústmánaðar, 153
manns. Fleiri liöfðu “skrifað
sig” til vesturferðar, en eigi var
rúm fyrir fleiri á skipinu og urðu
4) Árni Guðm.: Landnám Isl. á Washing-
ton-ey. Alm. 1900.
5) Einar Ásm.: Hkr. III. ár. Nr. 21.
6) Einar Ásm.: Hkr III. ár. Nr. 21.