Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1931, Page 129

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1931, Page 129
ÁRSÞING 111 Júl. Jóhannesson. Attu þá sæti í nefnd- inni auk hans, þeir J. J. Bildfell, for- maður, Jakob Kristjánsson skrifari, séra Kögnv. Pétursson gjaldkeri, Árni Egg- ertsson, Asm. P. Jóhannsson, Joseph T. Thorson, séra Jónas A. Sigurðsson og Guðmundur Grímsson dómari. En bætt var við: W. H. Paulson þingmanni frá Leslie, Gunnari B. Björnssyni fyrrum ritstjóra, og síðar þeim séra Ragnari E. Kvaran og Sigfúsi Halldórs frá Höfn- um ritstjóra. Nefndin hélt nú áfram starfi sínu við að auka og efla samböndin við hinar dreifðu bygðir Islendinga, og einkum þó við að ná sem haganlegustum farkosti fyrir væntanlega heimfarendur, hjá flutninga- og eimskipafélögum. Áður hafði nefndin fengið ákveðið loforð hjá Sameinaða gufuskipafélaginu, um að fargjaldið skyldi ekki verða hærra en $172.00 fram og til baka frá Montreal. En nefndin var ekki ánægð með það. Henni fanst að taxti sá, er ákveðinn var á milli Canada og Bretlands, ætti að gilda til Islands í þetta skifti, en far- taxti sá nam $150.00 báðar leiðir frá Montreal. Félögin, sem nefndin átti við um þetta, féllust á, að krafa sú væri sanngjörn, þar eð vegalengdin til Islands frá Montreal væri styttri en frá Mont- real til Liverpool á Englandi. En á meðan á þeim samningstilraunum stóð, voru hafin opinber mótmæli gegn stefnu nefndarinnar í fjármálunum, og enda í sambandi við stefnu og gerðir hennar í fleiri málum. Breyttist nú aðstaða öll í málinu. Það var ekki lengur sameiginlegt mál allra Vestur-Islendinga, heldur kappsmál vissra- manna eða málsaðila, að skipuleggja för- ma á annan hátt en Heimfararnefndin hafði ákveðið. Skifti það fólki í flokka. Mér dettur ekki í hug að fara að rifja þá raunasögu upp hér, né heldur að færa fram rök eða ástæður fyrir því, að all- ar sameiningartilraunir urðu að engu, °S þar af leiðándi gerði sameiginlegt ferðalag ómögulegt, það alt er mönnum í fersku minni. En á áhrifin, sem sú andstaða hafði, á verk og verkahring Heimfaramefndar, verð eg að minnast með nokkrum orðum. Fyrst. — Hún skifti Islendingum í tvo andstæða flokka, sem báðir höfðu sama takmark, en greindi á um aðferð til að ná því takmarki. Annað. — Þetta skifti heimfarendum, svo að kapps og orku þurfti að neyta til að efla hópana, sem aftur krafðist ferða- laga og kostnaðar, sem þeim er ávalt samfara. Þriðja. — Það veikti áhrif beggja málsaðila til hagkvæmra farsamninga, og ekki sízt eftir að andstæðingar nefnd- arinnar höfðu samið við flutningafélag um flutninginn á heimfarendum þeim, er í þeirra hópi yrðu, þá urðu allar samn- ingatilraunir að engu, þvi öll hin stærri eimskipafélög tilheyra hinu svokallaða North Atlantic Conference (Norður-At- lantshafssambandinu), sem öllu ræður um slíka kosti og lætur eitt yfir alla ganga, og það eina er, að sá hæsti far- taxti, sem sambandið getur innheimt, skuli standa. Þegar þannig var komið, sömdum við Heimfararnefndarmenn við C. P. R. fé- lagið upp á sama taxta og Sameinaða félagið gekk inn á að veita 1927 — hinn svonefnda Kaupmannahafnartaxta, eða $172.00 frá Montreal til Reykjavíkur og til baka aftur á 3. farrými. Um niður- sett far á öðrum farrýmum var ekki að ræða. Eitt atriðið i samningum þeim, er nefndin gerði við C. P. R., var það að hún skyldi verða aðnjótandi fyrir hönd þeirra, sem á hennar vegum færu heim, vanalegra sölulauna, á eimskipafarbréf- um þeim, er Islandsförum yrðu seld, en það eru $12.00 á fullu farbréfi — far- bréfi fram og til baka á þriðja flokks farrými, og 5 prósent á fyrsta flokks farrými, og voru það, eins og nú var komið málum, aðaltekjur nefndarinnar, en eigi innheimtanlegar fyr en ferðin var hafin, auk $5000.00 tillags frá stjórn- unum í Saskatchewan og Manitoba. Þótt samningar væru þannig ákveðn- ir við flutningafélagið, var heimfarar- nefndin ekki laus við allan vanda í því sambandi. Einlægar snurður voru að falla á, nálega fram á siðustu stundu áður en farið var, sem kröfðust úrlausn- ar, og varð nefndin að senda • erindreka
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.