Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1940, Síða 53

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1940, Síða 53
HULDA SKÁLDKONA 31 hreina sem hér og lausa við alla truflandi aukahljóma úr ósamræmi daglegs lífs.” Hann fór einnig hin- um lofsamlegustu orðum um aðrar þulur Huldu, er hann tók til athug- unar, en þær höfðu verið prentaðar í Sumargjöfinni. Hér var því óneitanlega með af- brigðum vel úr hlaði farið af ungu skáldi, þó önnur kvæði Huldu frá þeim árum jafnist eigi að listgildi, eins og Þorsteinn tekur fram, við þulurnar hennar, enda mun mega telja þær fegursta og sérstæðasta skerf hennar til íslenskra bókmenta, þó að hún hafi síðan ort mörg list- raen kvæði og fögur og ritað margt með sömu einkennum í óbundnu máli. Áður en lengra er farið skal æfisaga skáldkonunnar sögð í höfuð- dráttum. II. Hulda (Unnur Benediktsdóttir) er fædd á Auðnum í Laxárdal í Suður- Þingeyjarsýslu 6. ágúst 1881, dóttir hjónanna þar, Benedikts Jónssonar °g Guðnýjar Halldórsdóttur. Var ^enedikt, sem er nýlega látinn á tí- ræðisaldri, sonur Jóns Jóakimssonar óðalsbónda á Þverá í Laxárdal og bonu hans Herdísar Ásmundsdóttur frá Stóruvöllum í Bárðardal, er var hin mesta hannyrða- og vefnaðar- bona. Var Þverárheimilið víðkunn- ugt fyrir reglusemi og híbýlaprýði, °g dvöldu erlendir ferðamenn þar lÖngum. Eignaðist Benedikt með þeim hætti þegar í æsku ýmsa ágæta 0g trygga vini í þeirra hópi og æfðist í að tala og rita erlend mál; n°tfærði hann sér einnig þau tæki- f^ri hið ágætasta. Lét Jón faðir hans kenna honum og systkinum hans dönsku; eigi lét Benedikt þar þó staðar numið, en lærði að miklu leyti af sjálfsdáðum bæði þýsku og ensku og allmikið í frönsku, enda var faðir hans vel efnum búinn og fékst eigi um, þó Benedikt eyddi tímanum í nám og fé til bókakaupa. Guðný móðir Huldu ólst fyrstu ár æfinnar upp hjá föðursystur sinni Hildi Johnsen á Húsavík, en síðar hjá afa sínum séra Jóni Jónssyni á Grenjaðarstað í Þingeyjarsýslu, fræðimanni miklum. Hún var náms- hneigð mjög og fékk að læra tungu- mál og fleira, sem sjaldgæft var að stúlkur næmu í þá daga. Kyntust þau Benedikt og Guðný á unga aldri, enda var mikil vinátta með Grenjað- arstaða og Þverárheimilum. Betri bókakostur var þar en annarstaðar í sýslunni og heimilishættir með meiri menningarbrag en alment gerðist; dvöldu ýmsir merkismenn þar einnig langvistum. Millbank lávarður, dótt- ursonur Byrons skálds, var t. d. heilan vetur á Grenjaðarstað. En sérstaklega hlýlega mintust foreldr- ar Huldu Williams Morris, hins enska skálds og umbótamanns og fslandsvinar. Benedikt og Guðný reistu bú að Auðnum næsta bæ við Þverá; eign- uðust þau fimm dætur og er Hulda næst yngst af þeim. Virðist skáld- gáfan vera harla rík í ættinni, því að í hinu nýútkomna safni þingeyskra Ijóða (Þingeysk ijóð. Eftir 50 höf- unda, 1940) eiga tvær systur Huldu, Aðalbjörg og Bergljót, falleg kvæði. En “fjórðungi bregður til fósturs” má með sanni segja um þær systur, því að bæði áttu þær til bókmenta- hneigðra og listrænna að telja og ólust upp í menningarríku umhverfi,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.