Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1940, Blaðsíða 65
Eftir séra Valdimar J. Eylands
Víst mun það ekki of mælt, að
hugsandi mönnum um víða veröld
hrís hugur við hinu ægilega ófriðar-
báli, sem nú veltist eins og sjóðandi
hraunleðja yfir löndin. Hvar sem
það fer, skilur það eftir hrannir af
dauðum mönnum og örkumluðum, og
eyðileggur bæi og blómlegar sveitir.
Fyrir aðeins fjórðungi aldar síðan
var önnur svipuð bálför hafin, og er
þeim leik var lokið, töldu menn að
bálið hefði verið slökt fyrir fult og
alt. En nú er það orðið ljóst, að eld-
urinn slokknaði ekki, en var aðeins
falinn uns aftur yrði að honum blás-
Nú stara menn höggdofa á hinn
uýja bálköst, sem ber við háan himin,
°g lesa með áfergju fregnir um rösk-
lega framgöngu þeirra, sem bera alt
hið besta er þeir eiga í æskumönnum
°g efnivið á hið eyðandi bál.
Menn spyrja um orsakir þessa
stríðs, horfur þess og væntanleg
endalok. Um horfur þess og vænt-
anleg endalok er enn of snemt að
tala, enda geta menn yfirleitt ekki
rætt þau atriði af nokkurri verulegri
þekkingu. Vér fréttum það eitt af
stríðinu sem fréttariturum og fregn-
skoðurum hinna ýmsu hernaðarþjóða
þóknast að fræða oss um, og sem
Þeir telja oss holt að heyra. Þær
tregnir sem berast eru næsta sundur-
leitar og oft í beinni mótsögn, eftir
því, hvaðan þær koma og hvers mál-
stað þær halda fram. Geta þær því
ekki talist traust undirstaða undir
heilbrigða skoðun um horfurnar. Um
væntanleg endalok stríðsins getum
vér þá ekki heldur rætt fyrir sömu
ástæður, enda liggja þau eins og
aðrir ókomnir viðburðir í hulins-
heimi framtíðarinnar. Vér getum að
vísu ýmsu spáð um endalok þessarar
skálmaldar, en spádómar vorir eru
jafnan í molum, er um slík efni er
rætt, enda þótt á einn veg falli, eins
og vænta má um flesta þá sem lesa
þessar línur.
En þótt oss skorti innsæi spá-
mannsins og þekkingu sérfræðings-
ins á þessum málum, getum vér þó
rætt um orsakir þess stríðs. Þær
liggja að baki. Vér getum haldið
þeim upp við ljósið og rannsakað
þær. Þær er að finna í sögu og
lífsspeki einnar aðal þjóðarinnar
sem hér á hlut að máli.
Enda þótt Bretar lýstu stríði á
hendur Þjóðverjum, mun það nú al-
ment talið í enskumælandi löndum
að Adolf Hitler hafi komið stríðinu
af stað. Söguritarar allra þjóða, að
undanteknum Þjóðverjum og sam-
herjum þeirra, munu í framtíðinni
telja hann einn hinn mesta vand-
ræðamann, og óprúttnasta varg í
véum sem uppi hafi verið á þessari
öld. En á bak við Hitler liggur löng
harmsaga og sálrænn kyngikraftur.
Það eru öflin, sem hafa skapað þenn-
ann einkennilega leiðtoga og stýra
gjörðum hans. Þessi öfl munu reyn-
ast erfiðari viðfangs og á allan hátt
hættulegri en maðurinn sjálfur, sem
nú er talsmaður þeirra og fulltrúi.
Þessi öfl þurfum vér að skilja, því
að í þeim felast orsakir stríðsins