Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1940, Side 68

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1940, Side 68
46 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA skapast af almenningsálitinu, er sjálfsagt fyrir hvern mann að hafna öllum takmörkunum á einstaklings- frelsi sínu og láta í hverju máli svo sem hann sjálfur vill. Úr þessum lausu þráðum afneitunar á öllu andlegu valdboði, takmarka- lausri efnishyggju og siðspeki hins óháða og alfrjálsa náttúrubarns myndaði svo heimspekingurinn George Hegel ákveðið kenninga- kerfi, sem við hann er kent og nefn- ist hin Hegelska heimspeki. í kerfi þessu leggur Hegel mikla áherslu á andstæðurnar í lífinu. Þær koma strax í ljós er maðurinn fer að hugsa skýrt um lífið og tilveruna. Hver hugsun mannsins hefir tvær hliðar, jákvæða og neikvæða. Áður en maðurinn getur nokkuð hafst að verður hann að heyja baráttu í huga sínum, en af baráttunni skapast svo ásetningur hans. Um leið og ásetn- ingurinn er ákveðinn hefst ný bar- átta og svo koll af kolli. Þessa kenn- ingu um baráttu hinna eilífu and- stæðna heimfærði hann svo upp á líf og sögu þjóðar sinnar, sem svo mjög hafði liðið af ágengni herskárra ná- grannaþjóða. Hegel virðist hafa tekið fegins hendi þeirri kenning upplýsinga- stefnunnar, er afneitaði tilveru per- sónulegs Guðs, og þeirri kenning ritningarinnar, að maðurinn væri gæddur Guðs anda og skapaður í hans mynd. Hann komst að þeirri niðurstöðu, að hinn æðsti máttur opinberaði sig eingöngu í þeim stofnunum sem menn mynda, sem þeir lifa og hrærast í. Fullkomnust allra mannlegra stofnana er ríkið. Opinberun Guðs til mannanna kemur því ljósast fram í ríkinu—þannig verður ríkið Guðs ríki á jörðu. Kjósi maðurinn sér það hlutskifti, að losna við hið eilífa stríð and- stæðnanna bæði í heimi hugsana og athafna, vilji hann eignast þann frið, sem yfirstígur allan skilning, verður hann að leita Guðs í ríkinu, á svipað- an hátt og kristnir menn leita hins persónulega Guðs og finna hann í Jesú Kristi. Maðurinn verður að gefa sig ríkinu á vald í fullkominni hlýðni. Takist honum það, eignast hann frið fyrir samvisku sína. Utan við takmörk ríkisins—guðsríkisins— eru andstæðurnar enn að verki. Ef í huga mannsins rís svo mikið sem vandlætingar eða efasemda stefna gagnvart athöfnum ríkisins, þá fell- ur hann samstundis frá guðsríkinu, hann heyrir því þá ekki lengur til og er réttlaus gagnvart því frá þeirri stundu. Þegnar ríkisins verða að gefa sig ríkinu á vald með lífi og sál, takmarkalaust—skilyrðislaust,— því ríkið er sjálfur Guð. Til þess að vér getum betur skilið afstöðu stjórnarvaldanna á Þýska- landi, þeirra sem nú eru við völd, leyfi eg mér að birta hér lauslega þýðingu á skilgreining Hegels á rík- inu. Hann segir: “Ríkið er opinberun Guðs á jörð- unni. Það er fullkomið. Það er ó- háð öllum venjum. Ekkert stendur því framar. Það viðurkennir engan rétt nema sinn eigin. Það getur aldrei verið spursmál um hvað rétt er eða rangt, að því er ríkinu við kemur. Ríkið er syndlaust og ofar öllum að- finslum. Ríkið er alt. Það er hin guðdómlega vera eins og hún birtist á jörðunni. Það er hinn guðdómlegi vilji. Það er hið fullkomna vald.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.