Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1940, Qupperneq 134
112
TIMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA
Bókasafn hjá deildinni “Frón”:
Bókasafnið er eign Þjóðrœknisfélags-
ins; Deildin “Frón” mun leggja fram
skýrslu því viðvíkjandi á þessu þingi.
—Winnipeg, 19. febr. 1940.
S. W. Melsted, skjalavörður
Þá flutti ritari svohljóðandi yfirlit
yfir störf sin á árinu:
Ritaraskýrsla
Á þessu nýliðna nefndarári hefir
stjórnarnefnd Þjóðræknisfélagsins haft
með sér 10 fundi. Voru fimm þeirra
setnir að heimili Ásmundar P. Jóhanns-
sonar, tveir heima hjá forseta félagsins,
Dr. Rögnv. Péturssyni, tveir í Jóns
Bjarnasonar skólanum og hinn síðasti í
húsi ritara. Nefndin hafði með höndum
öll hin vanalegu störf, sem þingið hafði
falið henni og sjaldan breytast ár frá
ári, svo sem útbreiðslu- og útgáfumál,
auk nokkurra ófyrirsjáanlegra auka-
atriða, sem fyrir koma á ári hverju, svo
sem gestakomur, óumflýjanleg veislu-
höld í sambandi við þær og fleira þess-
háttar. Tekur það oft meiri undirbún-
ing og fleiri snúninga en margan varir.
Það sem kastaði skugga á, að öðru
leyti ánægjulega og friðsama samvinnu
nefndarinnar, voru hin langvarandi og
ólæknandi veikindi forsetans. Samt sat
hann sex fundi nefndarinnar og stjórn-
aði þeim, oftast sárlasinn. Hinir fjórir
fundirnir fóru fram undir stjórn vara-
forsetans, Dr. Richard Beck.
Ritari skrifaði fleiri bréf á þessu ári,
viðvíkjandi ýmsum málum félagsins,
en hann minnist að hafa gert nokkru
sinni fyr. Var fjöldi þeirra í sambandi
við hinar svonefndu ókeypis blaðasend-
ingar frá íslandi til lestrarfélaga og fé-
lagsdeilda hér vestra. Bendi eg meðal
annars á þetta vegna þess, að eg hefi
fengið ákúrur úr ýmsum áttum fyrir
vanskil og að kostnaðaráætlun standi
ekki heima, o. s. frv., ennfremur bendi
eg á það nú vegna þess, að þetta þing
verður að ákveða og ráða fram úr
hvað gera skuli framvegis í þessu blaða-
máli. Kemur það væntanlega upp síð-
ar á þinginu, þótt því hafi enn ekki
verið ætlað sæti á dagsskrá.
Enda þótt vara-forsetinn hafi nú þeg-
ar í ávarpi sínu farið mjög ítarlega út í
samvinnumálin, get eg ekki leitt hjá
mér, að gleðjast yfir og benda á með
honum, að aldrei hefir höndin yfir hafið
að heiman verið rétt til vor af meira
örlyndi og einlægari vinarhug en á
þessu liðna ári. Má eflaust rekja það
að nokkru leyti til fyrri heimsókna góðra
gesta frá íslandi, — en óhikað tel eg þ''
að mest stafi það frá hinum víðtæku og
heillaríku áhrifum vors fallna forseta,
sem ávalt ástundaði, að halda á lofti
hinum hærri hugsjónum og virðuleika
félags vors, og aldrei lét undir höfuð
leggjast að krefjast fullrar viðurkenn-
ingar og jafnræðis Vestur-fslendinga í
hinu andlega ríki íslensku þjóðarinnar.
Félag vort er nú tuttugu og eins árs
gamalt. Það stendur því á þýðingar-
miklum tímamótum. Vér vitum öll, að
það hefir oft átt ervitt uppdráttar, en
hvað framundan liggur verður tíminn
auðvitað að skera úr. (Hér var með
nokkrum orðum minst á sögu félagsins
og þeirra, er lengst hafa setið í stjórn
þess. Hefir það verið aukið að nokkru
og birtist sem sérstök grein hér næst á
undan.)
Gísli Jónsson
Var þessi greinargerð samþykt af
þingheimi á vanalegan hátt.
Ásmundur P. Jóhannsson gerði til-
lögu um, að forseti skipi þriggja manna
fjármálanefnd. — Sveinn Thorvaldson,
M.B.E., studdi, og í nefndina voru skip-
aðir:
Ásm. P. Jóhannsson
Sveinn Thorvaldson
Thorsteinn J. Gíslason
Þá varð lítið hlé á fundarstörfum, Því
fulltrúar frá deildum voru ekki við-
búnir að flytja deildarskýrslur. Á með-
an tók Ásm. P. Jóhannsson til máls,
og benti þingheimi á, að félaginu hefði
borist að gjöf frá Ungmennafélögum Is'
lands 500 eintök af mynd Jóns Sig-
urðssonar, og væru þær til útbýtingsr