Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1940, Page 136
114
TIMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA
lendingsins göfuga og forystu-
mannsins mikla, Dr. Rögnv. Péturs-
sonar — Þjóðræknisfélaginu, konu
hans og öllum aðstandendum. —
Blessist og þróist viðgangur als þess,
er honum var eiginlegt.
—Keewatin, Ont., 16. febr. 1940.
Jón Pálmason
Bjarni Sveinsson
Matthildur Sveinsson
Voru þá teknar fyrir skýrslur frá
deildum og var fyrst lesin:
Ársskýrsla Dakota deildarinnar
"Báran"
Á þessu liðna ári má telja að helsta
starf okkar deildar hafi verið að stuðla
að áframhaldi tilsagnar í söng, bæði
meðal barna, unglinga og fullorðinna.
Fram að þeim tíma sem Mr. R. H.
Ragnar tók við söngstjórn hjá okkur,
um mánaðarmótin maí og júní höfðu
þær barnakóra sönstjórn á hendi, Mrs.
H. Johnson úr Hensel-bygð og Miss
Kathryn Arason, Mountain. Kórarnir
voru 3, einn á Garðar, annar á Moun-
tain, og sá þriðji í Hallson og Svoldar-
bygðum. 1 þessum þrem kórum voru
um 110 börn og unglingar. Við þessum
kórum tók Mr. Ragnar, þegar hann kom,
ásamt Karlakórnum sem þá hafði verið
formlega stofnaður, og sem taldi um 35
meðlimi. Upp að þeim tíma var Mr.
Jonathan Björnson stjórnandi hans, með
aðstoð Miss Arason, utanvið umsjón
Bárunnar. En þær 6 vikur sem Mr.
Ragnar hafði söngstjórn á hendi hjá
okkur, var öll kensla undir umsjón, og
í ábyrgð deildarinnar, hvað fjármál
snerti.
“Concert” voru haldin í fjórum stöð-
um í ísl. bygðunum, og urðu saman-
lagðar inntektir af þeim $186.45. En
öll útgjöld, fyrir kenslu, keyrslur, húsa-
leigu og fleira $198.15, svo þar urðum
við í undir balance $11.70, fyrir utan
það sem deildin var áður búin að borga
fyrir söngkenslu. Seinna átti deildin
frumkvæði að því að Karlakórinn fór til
Bismarck til að syngja á 50 ára afmæli
ríkisins, sem varð til þess að hleypa svo
miklu sjálfstrausti og fjöri í kórinn að
hann stökk til Winnipeg, en það var nú
Ragnar að kenna.
Annað verkefni sem deildin hafði með
höndum var tilsögn í íslensku; en ekk-
ert af ísl. bygðarlögunum tjáðu sér fært
að sinna því, nema Eyford og Moun-
tain. Þessi tilsögn stóð yfir einn kl.tima
á hverjum laugardegi i nokkra mán-
uði, og var Miss Kristjánsson frá Ey-
ford aðal kennarinn. Þar að auki veitti
Mr. Haraldur Sigmar nokkra tilsögn í
íslenzkri málfræði, fáeinum miðskóla-
nemendum. — Það er liklega hægt að
segja að lítill árangur sjáist af þessu
stauti; samt vonum við að eitthvað af
því kunni að bera ávöxt, með tíð og
tíma, ef andúð og afskiftaleysi ekki fá
því í hel komið.
Fundir: Báran hefir haldið fjóra
lögákveðna fundi á árinu, og einn auka-
fund; þar að auk hefir stjórnarnefndin
mætt nokkrum sinnum. Tvær arðber-
andi skemtisamkomur hafa verið haldn-
ar á árinu undir stjórn Bárunnar, önnur
seint í febrúar s. 1. ár, þegar Mr. Árni
Helgason kom hingað í fyrsta sinn með
ísl. hreyfimyndirnar sínar, okkur að
kostnaðarlausu, eins og hans er vandi.
Hin samkoman var á sumardaginn
fyrsta, þar sem börnin og unglingarnir
skemtu aðallega, með söng og fram-
sögn á íslensku. — Einnig stóð deildin
fyrir íslendingadagshaldi 16. júní í sam-
ráði við fulltrúa Mountain-þorps, en
sökum rigningar þann dag varð ágóð-
inn sára lítill. En í sambandi við það
hátiðahald viljum við hér með þakka
öllum þeim utanbygðarmönnum sem
hjálpuðu til að gera samkomuna eins
ánægjulega og unt var, undir kring-
umstæðunum. En sérstaklega erum við
í stórri þakklætisskuld við hr. Árna
Helgason, sem kom alla leið frá Chi-
cago með islensku hreyfimyndirnar sín-
ar, og sýndi þær tvisvar, án endur-
gjalds. Ekki svo mikið að hann þægi
keyrslukostnað. — Þessar myndasýn-
ingar hr. Helgasonar álít eg einn með
stærri þáttunum í þjóðræknisstarfi okk-
ar; og mér finst að þetta þing ætti að
votta honum þakklæti sitt fyrir þá fram-