Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1940, Side 140
118
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
Þessi skýrsla viðtekin samkvæmt til-
löngu Árna Eggertssonar og Páls Guð-
mundssonar.
Gunnar Jóhannsson las þá skýrslu frá
deildinni “Fjallkonan” í Wynyard.
Skýrsla fró þjóðrœknisdeildinni
"Fjallkonan" í Wynyard.
Fundir deildarinnar hafa verið fáir,
eins og undanfarin ár, en hún hefir
haldið áfram hinum venjulegu störf-
um með svipuðu móti og verið hefir.
Islendingadagurinn 2. ágúst, var hald-
inn hátíðlegur, og tókst hann með allra
besta móti. Herra Árni Helgason frá
Chicago kom hingað gagngert til þess
að flytja erindi og sýna kvikmyndir frá
Islandi, og vöktu þær óskifta hrifn-
ingu. Bar öllum saman um, að þar færi
saman listrænt efnisval, skýr framsetn-
ing, og fræðsla um fólk og staðhætti,
eins og best verður á kosið. Aðrir liðir
skemtiskrárinnar voru stuttar ræður,
upplestur og söngur. — Konur úr yngri
og eldri þjóðræknisdeildunum sáu um
veitingar, og yfirleitt var undirbúningur
samkomunnar á höndum nefnda úr báð-
um félögum.
Guttormur skáld Guttormsson og
kona hans heimsóttu deildina á leið
sinni vestur að hafi, og flutti skáldið
erindi um Islandsferð sína. Var það
fróðlegt og skemtilegt. Lýsti hann
bæði í gamni og alvöru því er fyrir
augu bar á gamla landinu. Áheyrend-
ur nutu frásagnar hans ágætlega, og
deildin er honum og frú hans þakklát
fyrir komuna.
Bókasafn deildarinnar hefir verið
starfrækt eins og að undanförnu, undir
umsjón sömu manna.
Fullveldisdagsins 1. desember var
minst með samkomu, þar sem íslenskur
matur var á borð borinn, og stutt
skemtiskrá til gleðskapar.
Eftirfarandi meðlimir hafa látist, síð-
an síðasta skýrsla var samin: Andrés
Helgason, Halldór Jónsson.
Um leið og deildin minnist þessara
manna með virðingu, vill hún ennfrem-
ur minnast forseta Þjóðræknisfélags ís-
lendinga, séra Rögnvaldar Péturssonar
með sérstakri þökk og virðingu, sökum
hins mikla starfs, sem hann hefir int af
hendi í þágu félagsins, og í þágu ís-
lensku þjóðarinnar yfirleitt.
Virðingarfylst,
Th. Bardal, forseti
Jakob Jónsson, ritari
Skýrslan var þvínæst samþykt, sam-
kvæmt tillögu þeirra J. J. Húnfjörð og
B. Dalman.
Thorst. J. Gíslason las samúðarbréf í
tilefni af fráfalli forseta félagsins, á-
samt skýrslu deildarinnar “Island” í
Brown.
Deildin "ísland"
Brown, Man.
Á fundi deildarinnar “ísland” sem
haldinn var föstudagskveldið 16. febrúar
1940, var eftirfarandi tillaga samþykt
af öllum viðstöddum, og á viðeigandi
hátt:
Innileg hluttekning deildarinnar “Is-
land” til ástvinanna og einnig Þjóð-
ræknisfélagsins út af missi Dr. Rögn-
valdar Péturssonar, forseta fél. vors og
máttarstoðar frá fyrstu byrjun þess fé-
lagsskapar.
Við eigum ekki orð sem lýsa söknuði
vorum, en minning hans eigum við og
geymum, og hún mun verða oss og fé-
lagi voru uppörfun í viðleitninni, að
stuðla að því, að viðhalda okkar fagra
máli og því sem best er í fari okkar
Islendinga.
Með skáldinu óskum við að þjóðar-
brot vort hér vestra, og Þjóðræknisfélag:
“Eigi jafnan menn að missa
meiri og betri en aðrar þjóðir”
Thorst. J. Gíslason
Guðrún Thómasson, ritari
Þjóðrœknisdeildin 'Tsland", Brown, Man.
Skýrsla 1939
Frá okkar deild er það helst að frétta
að starfið hefir gengið líkt og undan-
farin ár.
Við höfðum 5 fundi s. 1. ár sem allir
voru vel sóttir.