Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1948, Page 32

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1948, Page 32
14 TIMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA ar, með nokkrum styrk af ríkisfé. 1 þessari Italíuför voru í ferð með hon- um þeir Ingólfur Gíslason læknir og Davíð skáld Stefánsson frá Fagraskógi. Er það alkunnugt af kvæðum skáldsins, hversu ávaxtarík honum varð þessi sögulega suðurför þeirra félaga. Rík- arði, er var árlangt í förinni, varð hún eigi síður til hinnar mestu gagnsemdar og vakningar í listinni. Varð hann fyrir sterkum áhrifum og djúptækum af listaverkum liinna suðrænu meistara, er hann kyntist nú af eigin sjón, eink- um, að því er hann sjálfur telur, af verkum hins fræga ítalska málara Don- atello (1386-1466). Eftir heimkomuna úr utanförinni dvaldi Ríkarður næstu tvö árin á Djúpavogi. Er það vafalaust rétt álitið, að þessi dvöl hans á æskustöðvunum hafi orðið til þess, “að bræða áhrif suðrænnar listar betur en ella saman við Islendingseðli hans og beygja þau undir töfra íslenskrar náttúru og þjóð- legrar menningar” (Aðalsteinn Sig- mundsson). Verk hans bera því einnig órækt vitni, að tréskurðarlist hans hef- ir með árunum fengið á sig æ sterkari þjóðlegan blæ, enda hefir hann gerl sér sérstakt far um að kynna sér gaml- an tréskurð íslenskan og drukkið í sig anda hans og svip. Síðan Ríkarður settist að í Reykja- vík fyrir nærri hálfum fjórða áratug, hefir hann unnið að myndskurði, andlitsmyndagerð, teiknun og teikni- kenslu, og árum saman haldið uppi föstum skóla í teiknun og tréskurði. Er það orðinn stór nemendahópur, sem notið hefir kenslu hans í þeim grein- um. En afköst hans í hinum ýmsu list- greinum, sem hann hefir lagt á gjörva hönd, hafa verið svo mikil, að furðu sætir, og skal það nú nokkuru nánar rakið II. Eins og fyrr er vikið að og vitnað til, komu út í Reykjavík Alþingishátíðar- árið 1930 Myndir Ríkarðar Jónssonar, safn mynda af ýmsum helstu verkum hans og viðfangsefnum, skrautleg bók og vönduð, er Aðalsteinn Sigmundsson kennari hafði búið til prentunar. Gef- ur hún góða yfirsýn yfir verk Ríkarðs fram að þeim tíma og ber fagurt vitni fjölhæfni hans, hugmyndaauðlegð og starfsemi. Eru í bókinni myndir nær tvö hundruð smíðisgripa og teikninga, en þó hvergi nærri allt, sem eftir lista- manninn lá, þegar bókin kom út. Ríkarður hefir lagt mikla og vax- andi stund á höggmyndalist, manna myndagerð, og eru í bókinni margar myndir af slíkum listaverkum hans. Hann hefir gert myndir af mörgum kunnum íslendingum vorrar tíðar, körlum og konum, auk annara, og eru þær, að kunnugra dómi, mjög líkar þeim að svip og látbragði, lifandi eftir- myndir, því að listamanninum hefir tekist að móta í leirinn sérkenni fyrir- mynda sinna. Er þeim hæfileika hans vel lýst í eftirfarandi ummælum: “Rík- arður Jónssan veitir andlitsmyndum sínum líf og anda eins og sá einn getur gert, er samlagast fyrirmyndinni með öllu. Dauð stæling getur aldrei hent listamann með hans skapgerð”. (Björn Björnsson, Perlur, I, 3-4., júní 1930). Afbragð eru myndir hans af sér- kennilegum alþýðumönnum, svo sem Bergsveini í Urðarteigi, “Viðsjál” og “Djáknanum á Djúpavogi”. Þá má sér- staklega geta tveggja rismynda (relief). önnur er a£ Stefáni G. Stefánssyni skáldi og var birt í Almanaki Ó. S. Thorgeirssonar 1918, ásamt öðrum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.