Fréttablaðið - 15.12.2012, Page 66
KYNNING − AUGLÝSING
til veislunnar en maturinn hefði
vel dugað fyrir sex og enginn fór
svangur frá borði. Allir borðuðu
eins og þá lysti og daginn eftir var
nægur afgangur.“
Íris er dugleg að bjóða gestum
í mat og hefur ánægju af bakstri
og eldamennsku. „Í matar boðum
býð ég alltaf upp á eftirrétt en
í þessu þurfti ég að sleppa því.
Valið stóð á milli malts og app-
elsíns eða íss og ég velti fyrir mér
að kaupa ís og nýta ananas í gam-
aldags, ljúffengan jólaábæti; ís og
niðursoðna ávexti. Hann svíkur
engan og er sannarlega val-
kostur fyrir þá sem eru hagsýnir í
matar innkaupum jólanna.“
Hátíðarmatur LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 20122
Mér fannst ég fá frekar mikið fyrir peninginn en þurfti auðvitað að horfa í
hverja krónu og vandaði mig mikið
við að spara,“ segir Íris Saara, sem
sló upp jólaveislu með aðeins
5.000 krónur í buddunni.
„Ég keypti dýrindis ham-
borgar hrygg, allt hráefni í kart-
öflusalat, maísbaunir, rauðkál
og dósir af malti og appelsíni en
einnig hálfa flösku af rauðvíni til
að sjóða hrygginn upp úr og eiga
í rauðvínssósu,“ útskýrir Íris, sem
studdist við uppskrift frá fjöl-
skyldu unnusta síns þegar hún
eldaði hamborgarhrygginn upp
úr ananassafa og rauðvíni.
„Kærastinn sagði kjötið verða
að sælgæti með þessari eldunar-
aðferð og ég treysti honum al-
gjörlega enda var útkoman lost-
æti og rauðvínssósan einkar vel
passandi við.“
Íris valdi ódýrari kostinn í inn-
kaupunum svo peningurinn
dygði. „Maísbaunir frá Ora voru
of dýrar svo ég valdi þær frekar
frá Euroshopper. Þegar upp var
staðið fannst mér ótrúlegt að geta
teflt fram fullkominni jólamáltíð
fyrir 5.000 krónur. Ég bauð fjórum
Jólaboð fyrir 5.000
Jólahátíð frelsarans togar vel í pyngjuna enda margir dagar veislumatar og yfirlætis.
Íris Saara Karlsdóttir myndlistarnemi bauð þó til ódýrrar jólaveislu fyrir fjóra.
Íris Saara er vön að borða kalkún á aðfangadagskvöld og hamborgarhrygg um áramótin.
Hún segir hamborgarhrygg í rauðvíni og ananassafa einstaklega ljúfan og bragðgóðan.
Kartöflusalat:
5 kartöflur
2 til 3 epli
1 laukur
1 dós sýrður rjómi
Súrar gúrkur
Rauðvínssósa:
Soð af hamborgar-
hryggnum
Rjómi
Smá mjólk
Rifsberjasulta að
smekk
Rauðvín að smekk
Hamborgarhryggur:
2 dl rauðvín
2 dl ananassafi
Vökvanum hellt yfir kjötið sem er vafið inn í ál pappír.
Eldað í ofni (200 °C) í lokuðum álpappír í einn og hálfan
tíma. Þegar korter er eftir af eldunartímanum er sætt
sinnep og sykur brætt á pönnu og penslað yfir hrygginn.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Ég bauð fjórum
en maturinn
hefði vel dugað fyrir sex.
Jólamatur a la Íris Saara