Heimilisritið - 01.02.1944, Side 36
' rölti svo heim. Verð að fara á fæt-
ur nógu snemma til þess að vera
viðstaddur Minningardagsathöfn í
Óperuhúsinu á morgun. Hún ætti
að verða jafnvel betri en síðastlið-
ið ár. Nema Frakkar-------------•—.
Berlin, 8. marz.
Hitler mistókst ekki! Frakkar
hreyfa sig ekki. Ákalla þess í stað
Þjóðabandalagið! Ekki er að furða,
þó að Hitler, Göring, Blomberg
og Fritch ljómuðu af ánægju í dag,
þar sem þeir sátu í keisarastúk-
unni í Ríkisóperunni og héldu í
annað sinn á tveim árum heilagan
iNIinningardaginn með hinum
mesta hermennskubrag. Þetta á að
tryggja það, að ekki gleymist þess-
ar tvær milljónir hermanna, sem
féllu í heimsstyrjöldinni.
Hve furðanlega heimskir eru
Frakkar. eða er þetta lömun? Ég
komst að því í dag eftir órækum
heimildum, að þýzku sveitirnar.
sem fóru inn í afvopnuðu svæðin
í Rínarlöndum, höfðu fengið
strangar skipanir um að hörfa til
baka í snatri ef franski herinn
veitti þeim nokkurt viðnám. Þær
voru hvorki við því búnar né nógu
vel vopnaðar til þess að berjast við
reglulegan her. Af þessu verður
skiljanlegt, að Blomberg var fölur
og fár í gær. Það var augljóst, að
Fritsch yfrrhershöfðingi ríkis-
varnaliðsins og flestir herforingjar
hans höfðu andæft þessu tiltæki,
34
en að Blomberg, sem trúir í blindni
á foringjann og óskeikulleik hans,
hafði unnið þá til þess. Má og
vera. að Fritsch, sem ann hvorki
Hitler né nazistastjórninni, hafi
fallizt á ævintýrið með það í huga.
að ef það mistækizt, myndi það
velta Hitler. en ef það heppnaðist.
var leyst eitt af erfiðustu hernað-
arvandamálum hans.
Önnur eftirtektarverð saga barst
mér í dag. Franska sendiráðið seg-
ir — og ég hef það fyrir satt — að
Poncet hafi átt tal við Hitler fvrir
fáum dögum og mælzt til. að hann
léti uppi skilmála sína fyrir við-
reisn vináttusambands milli
Þýzkalands og Frakklands. For-
inginn bað um nokkurra daga um-
hugsunarfrest. Það þótti sendi-
herranum að vonum, en hitt var
honum umhugsunaratriði, að Hitl-
erlagði ríkt á. að ekkert kvisaðist
út til almennings um heimsóknina.
Nú undrast hann ekki lengur. Það
hefði gert að engu ásökun Hitlers
um, að Frökkum væri um að
kenna, er hann rauf Locarnosátt-
málann, ef öllum heimi hefði verið
kunnugt, að Frakkar. sem þá höfðu
ekki enn gert alvöru úr samning-
um við Rússa, voru fúsir að semja
við hann — höfðu óskað eftir því.
Tónverk Wágners settu svip á
Minningarhátíðina í Óperuhúsinu
í dag. Annars hafa menn erlendis
aldrei skilið áhrif Wagners á naz-
ismann og Hitler. Sviðið var Ijósi
MEIMILISRITIÐ
I