Heimilisritið - 01.12.1947, Side 16
panta far með Parísarvélinni.
Til allrar hamingju fyrir hann
var ekki annað sýima, en að einn
farþeginn ætlaði að heltast úr
lestinni.
„Ef þér haldið yður í grennd
við vélina, skal ég aðgæta, hvað
ég get gert fyrir yður“, sagði
einn af starfsmönnum flugfélags-
ins í þeim tóni, að telja mátti
fullvíst að Mortimer fengi far.
Mortimer gelck út úr skrif-
stofunni og að hinni stóru áætl-
unarvél. Skyndilega rak hann
augun í eitthvað, sem líktist
vegabréfi rétt við fæturna á sér.
Ég þori að veðja, að einhver
frúin hefur týnt vegabréfinu
sínu, hugsaði Mortimer um leið
og hann beygði sig niður og tók
það upp. Hún má vera mér
þakklát fyrir að finna það. Þetta
kvenfólk þarf líka alltaf að vera
að týna öllu, sem það hefur milli
handanna.
Hann átti kollgátuna. Þetta
var vegabréf, og eigandi þess var
kvenmaður. Mortimer virti
hugsandi fyrir sér vegabréfs-
myndina, er var af brosleitri,
ungri stúlku, með ljóst og ó-
stýrilátt hár og tvö stór og ei-
lítið spurul augu.
Mortimer brosti ósjálfrátt við
brosandi stúlkumyndinni.
„Við tvö ættum í rauninni að
geta skemmt okkur bærilega
saman í París“, sagði liann hálf-
hátt, og í sömu andrá kom starfs-
maður flugskrifstofunnar á
hlaupum og sagði, að allt væri í
lagi, það væri laust sæti í vél-
inni, en hann yrði að flýta sér
að stíga upp í hana.
Eigandi vegabréfsins var kom-
inn inn í farþegaklefann, og
Mortimer var svo furðulega
heppinn að hljóta sæti við hlið
hans.
HÚN var yndisleg. Vegabréfs-
myndin gaf aðeins óljósa hug-
mynd um hið sólgullna hár henn-
ar og djúp og safírblá augun
undir dökkum augnahárunum.
„Ég býst við að þér eigið
þetta“, sagði Mortimer og rétti
henni vegabréfið.
Ilún hrölck við.
„Hvar hafið þér náð í það?“
spurði hún fremur kuldalega.
„Ég fann það hérna rétt fyrir
utan, það lá á vellinum“, út-
skýrði hann. „Leyfist mér að
spyrja, hvort þér ætlið að halda
jólin hátíðleg í París?“
Safírblá augun virtu hann fyr-
ir sér með lítilsvirðingu.
„Ég skil ekki, hvað yður kem-
ur það við“, sagði hún. „Ekki
svo að skilja, að það sé neitt
leyndarmál. Ég œtla nefnilega að
halda jólin í París“.
„Ég býst við að þér ætlið að
búa hjá vinum eða kunningjum,
og að það sé búið að semja full-
14
heimHjIsritið