Heimilisritið - 01.12.1947, Side 23
„Hérna“, sagði Mortimer, „hef
ég lifað mínar hamingjusömustu
stundir. Þess vegna hef ég dreg-
ið að koma hingað þar til allra-
síðast“.
Hann leiddi hana upp tröpp-
urnar, gekk að afgreiðsluborð-
inu og sagði svo hátt, að hún
hlaut að heyra það:
„Eru herbergin tilbúin, sem ég
bað yður að hafa til handa mér?
Eg hringdi í morgun og bað um
að farangur minn yrði sóttur, og
sömuleiðis farangur konu minn-
ar frá Hótel D’Artagnan“.
Það var ekki laust við, að af-
greiðslumaðurinn væri dálítið
syfjaður. Hann svaraði sljólega:
„Hvað er nafnið, herra?“
„Herra og frú Mortimer
Shane. Eg þekki hótelstjórann
— við bjuggum hér fyrir tveim
árum síðan — svo ég býst við að
hann hafi séð um allt saman per-
sónulega“. Hann rétti út hönd-
ina og dró Pierrette til sín, með-
an þjónninn flýtti sér að opna
lyftudyrnar fyrir þau.
E N D I R
Ýmislegt smávegis um hjónabönd
I Siam getur sérliver stúlka, sem orðip
er þrítug, snúið sér lil hins opinbera og
krafist eiginmanns.
I Englandi kom það f.vrir við hjóna-
vígslu fyrir nokkrum úrum, að ]>resturinn
gifti brúðurina svaramanni hennar í stað
brúðgumans. Þetta stafaði af því, að svara-
mennirnir og brúðhjónin voru í annarri röð
en venjulega og presturinn þekkti engan
aðilann. Þar sem loforð, gefið með röngum
forsendum. eru ekki bindandi, var fljótlega
liægt að leiðrétta mistökin.
Talið er að bónorð í Bandaríkjunum fari
flest fram í bílum, eða 25%. 23% fara
fram á heimili ástmærinnar, 20% á götuin
úti, í skemmtigörðum eða í veitingastofum,
10% í samkvæmum, 6% bréfleiðis, sím-
leiðis eða í símskeyti og 3% á ferðalögum.
Hjón í Hindustan mega ekki tala saman
fyrstu dagana eftir giftinguna.
Hnefaleikakappar mega hugsa sig um
tvisvar, áður en þeir giftast, þvi það er
staðreynd að oft hefur farið illa fyrir þeim
„í hringnum" á eftir. Til dæmis heltist
Jaok Dempsey úr lestinni eftir að liann
kvæntist Estelle Taylor. og Max Schmeling
tapaði mörgum keppnum fyrsta hjúskapar-
ár sitt. Samt fullyrða sérfræðingar að giftir
íþróttamenn standi sig betur, þegar til
lengdar lætur, en þeir ógiftu.
Dýrasta bónorð í heimi er áreiðanlega
það sem fraihi fór í síma milli Bandaríkj-
anna og Englands. Það kostaði 5000 krónur.
Fyrir nokkrum árum kom fram svokall-
aður hjúskaparsjálfsali í borginni New
York. Var hann mjög eftirsóttur og mikið
notaður um tíiua, þangað til lögreglan
bannaði hann. Ef látinn var smápeningur í
sjálfsalann komu í ljós myndir af mörg-
um gfitingarsjúkum blómarósum. En væri
stungið dollaraseðli í sjálfsalann, þar sem
númer einhverrar stúlknanna var skrifað,
fekk viðkomandi mynd hennar í hendur —
ásamt nafni stúlkunnar, heimilisfangi, aldri
og líkamsþunga.
HEIMILISRITIÐ
21