Heimilisritið - 01.12.1947, Page 29

Heimilisritið - 01.12.1947, Page 29
mitt á óveðursdögum sem í dag að andi fljótsins birtist. — Andi? Haukur horfði spyrj- andi á föður sinn. Hann hafði aldrei heyrt hann minnast á slíka dularfulla hlnti áður og vissi ekki hvort hann átti að taka þetta í gamni eða alvöru. — Já, einmitt andi! Heyrðu, við skulum fara inn í skemmu! Þar skal ég skýra þetta nánar. Sigurgeir settist á stóra kistu og tók upp brennivínsflösku. — Þér er alveg óhætt að smakka á því! Það hlýjar í kuldanum. Haukur \’issi varla hvaðan á sig stóð veðrið. Pabbi hans hafði aldrei verið svo leyndardóms- fullur áður og allra sízt að hann liefði hvatt hann til þess að dreypa á brennivíni fyrr. Sigurgeir rétti sig upp í sæti sínu og leit á son sinn með augnaráði, sem bæði gat verið glettnislegt og alvarlegt í senn. Svo mælti hann: — Þú hittir sjálfsagt stund- um bróður minn á þessum ferð- um þínum að HvammiP — Nei, sagði Haukur. — Er hann aldrei heima þegar þú kemur þangað? Það er ein- kennileg tilviljun. Sigurgeir og hló, en varð brátt alvarlegur aftur. þegar hann sá að Hauki líkaði miður að hann skykli hafa þetta í gamanmálum. I raun og veru var þetta alvar- legt mál fyrir Hauk og Dísu. Það var engu líkara en að allt hefði gert samsæri á móti þeim. Þau hlutu að halda ást sinni leyndri, þó að það væri auðvitað ómögu- legt til lengdar. Þeim þótti ó- endanlega vænt hvort um ann- að. Dísa var tveim árum yngri en Haukur. Hún var smágerð og það var eins og hún væri alltaf hrædd við eitthvað, sem hún ekki vissi hvað var. En þegar hún kynntist Hauk, varð það öðruvísi. Hann fullvissaði hana nm að hann væri maður til að ryðja þeim báðum braut. — Líttu á handleggina á mér, sagði hann. Heldurðu að þeir séu ekki nógu sterkir til að bera þig gegn- um brotsjóa lífsins? .. . En það hafði Dísa í raun og veru aldrei efast um. Það var annað sem gerði hana leiða. Mamma hennar gat alls ekki hugsað til þess að Dísa færi frá henni. Það var svo margt, sem var öðruvísi en ann- arsstaðar þarna í Hvammi. Guð- rún móðir hennar var frá Vestur- landi. Hún hafði misst manninn sinn í sjóinn þegar Dísa var eins árs. Þegar hún frétti að Helga í Hvammi vantaði ráðskonu, sótti hún um starfann og flutti að Hvammi með dóttur sína og hafði verið þar síðan. Helgi hafði metið hana mikils fyrir dugnað hennar, og nú fannst Guðrönu hún eiga heima í Hvammi og flffilMILISRITIÐ 27

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.