Heimilisritið - 01.12.1947, Page 53

Heimilisritið - 01.12.1947, Page 53
Hermenn þeir, sem fengið höfðu hræðileg sár á andlitið, fengu þau ótrúlega vel lagfærð fyrir tilstilli handlækningameist- aranna. Og því skyldi þá ekki mega laga andlit, sem ellin hafði herjað á, og gefa þeim aftur þokka æskunnar? Nú þyrptust að þessu nýja handverki hópar skottulækna og loddara. Þar sem slíkir hrapp- ar vaða uppi, er hverjum manni hyggilegast að halda sér fjarri. Og þó myndi slík afstaða hinna lærðu lækna verða vatn á myllu hinna óhlutvöndu manna, sem gera sér það að féþúfu að blekkja einfaldan almenning. Þessum glæpamönnum verður ekki rýmt burtu, nema þeir, sem vit hafa og þekkingu, fáist til að setjast í fyrirrúm fyrir þeim. Eg sá fram á, að ég hlaut að taka þetta að mér. Eg varð að kappkosta að fullkomna þessar aðferðir, svo að kákinu yrði útrýmt. Ég fékkst lítið við að laga and- litslýti, heldur tók ég að mér að breyta afskræmdum líkamspört- um, sein höfðu vaxið óeðlilega. Mér þótti sérstaklega eftirsókn- arvert að lækna konur, sem þjáð- ust af líkamslýtum. Konum fell- ur venjulega meira en illa að verða að burðast með líkamslýti eða verða afskræmi vegna of- fitu. Þær verða þunglyndar og þjást af minnimáttarkennd. Læknir, sem bjargar þessu við, vinnur bæði konunni og þjóðfé- laginu gagn. Það er bezt að ég taki það fram nú þegar, að oftast er ekki hægt að lækna offitu með upp- skurði. Ef hún sezt á afmörkuð svæði, er oftast hægt að ná henni með aðgerð. En þó er þetta næsta vandasamt verk og þarfn- ast sömu snilldarhandtaka og góð höggmynd. Læknirinn verð- ur þá að sameina afbragðs hand- lagni, listgáfu og leikni í skurð- lækningum. Samstarfsmenn mínir við Cook County spítala báðu mig að taka að mér st.úlku, sem Lilja hét. Þegar ég fyrst sá hana var hún falleg stúlka um tvítugt. Réttara sagt, hún hefði verið mjög falleg stúlka, ef truflun í heiladinglinum, litlum kirtli, sem stjórnar efnaskiptum líkamans að miklu leyti, hefði ekki valdið offitu. Hún vóg 400 ensk pund. Þetta ástand var ekki nýtt. Hún hafði verið meira en hundrað pund að þyngd, þegar hún var sex ára, og engin hekningaaðferð hafði gagnað hið minnsta. Hún var örvinluð. Læknar hennar spurðu migj hvort ég trevsti mér til að hjálpa henni. Það var ógurlegt verk. Það var ekki ókleift, en þarfnaðist ekki aðeins eins, heldur margra upp- skurða. HEIMILISRITIÐ 61

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.