Heimilisritið - 01.12.1947, Síða 54

Heimilisritið - 01.12.1947, Síða 54
Nú er Lilja orðin meira en helmingi léttari en hún var þá. Ilún veit, að hún muni aldrei framar þurfa að dragnast með þessa hvimleiðu byrði, því að fita safnast ekki í fullvaxinn bandvef í örum. Tilraunir meS yngingar. NÁTENGD baráttunni fyrir fegurð er baráttan fyrir æsku. Árið 1920 blossaði upp vonin um, að unnt væri að lengja æsku- skeiðið að árum, og þá var hvískrað og pískrað: „apaeistu“. Á öllum öldum hefur æskan og varðveizla hennar verið hið mesta keppikefli. I söguin og sögnum er víða sagt frá tjörn- um, sem þeir vættir ríktu yfir, er veittu mönnum aftur horfna æsku og lengdu lífið. Og vegna þess, að þverrandi kynorka er einhver ljósasti vottur þess, að ellin sé að nálgast, litu menn vonaraugum hvern vott þess, að úr þessu mætti bæta. Á liðnum öldum hafa óprúttnir náungar verzlað með ástardrykki, yng- ingarlyf, óskeikular pillur, lífsins elexíra og leyndardómslyf, og lofað hverri konu, sem æskan var farin að fjarlægjast, yfirbragði Eryggjar eða Freyju, og hverjum karlmanni tvíauknum æsku- þrótti. Loddaramennskan óð uppi, en jafnframt kom fram upphaf vís- indalegra ynginga, eins og skín- andi vonarstjarna. Frá rann- sóknarstofu Claude Bernard kom hugtakið „innrennsli úr kirtl- um“. Arftaki hans, Charles Eoudard Brown-Séquard, bar rannsóknir hans lengra fram, og tókst að uppgötva það, að nýr- un gefa frá sér ýmsa aflvaka og með því móti stuðla þau að því, að halda uppi eðlilegu jafnvægi í lífsstörfum líkamans, ýmist með því að gefa frá sér vökva, sem annað hvort örfa lífsstörf eða hefta þau. Þegar skýrsla hans um þetta efni kom fram árið 1889, var henni tekið með mestu efasemd- um og óvild, sem enn hefur ekki horfið að fullu. Þrjátíu árum seinna barst sú fregn út frá París, eins og eldur í sinu, að skurð- læknir í College de France hefði gert þá uppgötvun, sem allt mannkynið hefði vænzt og ósk- að sér. Ivyndill sá, sem Claude Bernard hafði tendrað, er rann- sóknir lians á innrennsliskirtlum tóku að bera árangur, og hann hafði fengið í hendur Brown- Séquard, var nú fenginn Serge Voronoff. Samkvæmt skýrslu frá árinu 1919, hefur Voronofi' boðað, að græðsla kynkirtla úr öpum í karlmenn, myndi valda því, að þeir yngdust. Þessar staðhæfing- 52 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.