Heimilisritið - 01.12.1947, Side 59

Heimilisritið - 01.12.1947, Side 59
Til minnis fyrir húsmóðurina Auðvitað skreytirðu íbúðina á einhvern hátt núna um jólin, eins og venjuiega. En hvers vegna ekki að breyta svolítið til frá því i fyrra? Jú, sýndu nú frumleik ])inn með því að láta skreytinguna bera annan svip en hjá öllum almenningi. Hengdu t. d. fallegan jólapappír yfir myndina, sem er yfir litla skápnum — Láttu laglega tilbúna jólasveina á skápinn fyrir neðan. Til endanna getur svo verið sitt hvort kertið, og kertastjaka geturðu búið til úr sundurskornum eplum og kar- löflum eða hnoðuðum leir, sem þú skreytir með skrautpappír. Ef þú hel'ur arinn, sem þú notar ekki, skaltu láta blóm, jólatrésgreinar, kerti eða eitthvað því um líkt i eldholið, í stað þess að hafa það gapandi og kuldalegt yfir hátíðina. Festu borðum með fánalitunum yfir borðið á smekklegan hátt. Eins og þú veizt táknar blár litur tr.vggð, hvítur lit- ur frelsi og rauður litur hugrekki. Þegar þú kaupir gjafir skaltu ekki ein- ungis spyrja heila þinn ráða heldur einn- ig hjartað. Sumir líma lauslega silfurstjörnur á gluggatjöldin, eða sjálfa gluggarúðuna, á jólunum. Ef þú liefur einlitan pappír utan um jólagjafabögglana, hvernig pappír sem það nú er, geturðu skreytt hami á ótal hátt með því að líma á hann skart úr marg- litum pappír er þú klippir sjálf út, t. d. gullnar skeifur, rauð Iijörtu, livítar fígúr- ur, stjörnur o. fl. A jólunum eru aldrei til of margir ljósa- stjakar og þá er hægt að búa til af ótal gerðum og stærðum úr hnoðuðum leir, tré, hálfum kartöflum vöfðum inn í silki- papír o. fl. Eallegt blóm í jurlapotti, sem þú hef- ur inálað sjálf að utan, verður áreiðan- lega vel þegin jólagjöf. — I'að er ekki mikill vandi að mála rautt hjarta. Mundu, að jólaskreytingin vekur at- hygli, ef hún skapar andstæður. Hafðu til dæmis livíta Iampa í herbergi með dökk- grænu veggfóðri eða dökkleita lampa í herbergi með ljósu veggfóðri. Kertin endast miklu lengur ef þau eru smurð með fernis og látin þorna í viku áður en þau eru notuð. I staðinn fyrir hina algengu borðdregla, sem seldir hafa verið í búðum, má láta borðdregil úr bláum pappír. skrevttan gulum eða hvítum stjönium úr pappir er þú klippir út og límir á dregilinn. HEIMILISRITIÐ 57

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.